Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 38

Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Bíólistinn 24.-26. maí 2013 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Fast & Furious 6 Star Trek: Into Darkness The Great Gatsby Iron Man 3 Croods The Place Beyond the Pines Evil Dead Oblivion Ófeigur Gengur Aftur The Call Ný 1 2 3 4 5 8 11 12 10 1 3 2 5 9 4 4 7 9 5 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Sjötta myndin í hasarmyndasyrp- unni The Fast & the Furious, Fast & Furious 6, naut mikilla vinsælda í ís- lenskum kvikmyndahúsum yfir helgina og er í fyrsta sæti á lista yf- ir þær myndir sem mestum tekjum skiluðu í miðasölu. Toppmynd síðustu viku, Star Trek Into Darkness, var einnig vel sótt sem og kvikmynd Baz Luhrmann, The Great Gatsby, enda sjálfur Leonardo DiCaprio þar í aðal- hlutverki. Járnmaðurinn í túlkun Roberts Downey Jr. fellur um eitt sæti milli vikna, Iron Man 3 er fjórða tekjuhæsta kvikmynd helg- arinnar. Bíóaðsókn helgarinnar Hraðskreiðir heilla Harðhausar Ökuþórar spá í spilin í hasarmyndinni Fast & Furious 6. Bandaríski myndlistar- og tónlist- armaðurinn Dan Reeder opnar sýn- ingu á nýjum vatnslitamyndum í Gallerí Gangi, heimagalleríi Helga Þorgils Friðjónsonar myndlist- aramanns að Rekagranda 8, í dag klukkan 17. Reeder hefur áður sýnt í Ganginum, fyrir níu árum, og hélt þá stutta tónleika við opnunina. Reeder hyggst ekki bregðast aðdáendum sínum í dag og tekur lagið við opn- unina ásamt Peggy dóttur sinni. Þau munu einnng troða upp á KEX hos- teli við Skúlagötu klukan 20.30 ann- að kvöld, miðvikudag. Reeder er fæddur í Louisiana en hefur um árabil verið búsettur í Þýskalandi. Hann hefur gefið út þrjá geisladiska á vegum OhBoy Records í Nashville og hafa þeir vakið tals- verða athygli, enda Reeder sér- kennilegt söngvaskáld á jaðri sveita- og blústónlistar með íróníska texta. „Á sýningunni mun fólk sjá frekar litlar vatnslitamyndir en sumar þeirra hef ég málað aftur og aftur, með ýmiskonar tilbrigðum,“ segir hann. „En hvaða myndir eru þetta? Kannski má lýsa þeim sem gam- anmyndum. Þær eru að minnsta kosti ekkert mjög alvarlegar, þótt það kunni að vera pólitískur undir- tónn í þeim. Ein er sjálfsmynd þar sem ég er á nærbuxunum að taka gítarsóló á tennisspaða, eins og allir gera…“ En hvað með tónleikana á KEX á miðvikudagskvöld; munu feðginin taka klassísk Dan Reeder-lög? „Nokkur, en líka einhverjar ábreiður. Dóttir mín þolir nefnilega ekki lögin mín,“ segir hann og hlær. Morgunblaðið/Einar Falur Fjölhæfur Dan Reeder lék á heima- gert banjó í Ganginum árið 2004. Reeder sýn- ir og syngur Tvö af frægustu dans-tónverkum Ígors Stravins-kíjs, Vorblótið og Pet-rúska, voru flutt í Eld- borgarsal Hörpu síðastliðinn föstudag. Það er mögnuð upplifun út af fyrir sig að sjá dansverk flutt með heilli sinfóníuhljómsveit og vonandi fá íslenskir áhorfendur að sjá fleiri viðburði af þessu tagi. Ígor Stravinskíj samdi tónlistina við dansverkið Pertúska fyrir Ball- ets Russes; dansflokk Sergei Di- aghilev en danshöfundurinn Mikhail Fokine samdi ballettinn sem var frumfluttur árið 1911. Petrúska er rússnesk þjóðsaga um strábrúðu sem lifnar við og öðlast tilfinningar. Fyrra verkið á Dönsum í Eldborg var Petrúska í útfærslu finnska danshöfundarins Jorma Uotinen. Verkið var frumsýnt árið 1994 af finnska ballettflokknum og nú var það aðlagað sérstaklega að sviðinu í Eldborg. Það er nútímadansverk byggt á klassískum ballett og er því skemmtileg nýbreytni við það sem Íslenski dansflokkurinn hefur feng- ist við síðustu ár. Jorma Uotinen nálgast söguna út frá höfuðpersónu- num þremur, Petrúsku, Ballerínunni og Máranum. Sagan er dönsuð af finnska dansaranum Riku Letho- polku, ásamt tveimur dönsurum Ís- lenska dansflokksins, þeim Brian Gerke og Ellen Margréti Bæhrenz. Persónurnar koma fram sem strengjabrúður og notast er við ein- falt hreyfiform í nýklassískum stíl. Verkið var gott á köflum en það stóð samt ekki undir stærð sviðsins. Margir kaflar verksins byggðust á samþættum hreyfingum. Dansar- arnir voru þó oft ósamtaka sem gerði það að verkum að töfrarnir skiluðu sér ekki til fulls. Ellen Mar- grét á þó sérstakt hrós skilið fyrir frammistöðu sína í verkinu, hún fangaði athyglina í hverju spori. Vorblót Stravinskíjs var frumflutt í leikhúsinu Champ-Élysées í París þann 29. maí 1913. Sergej Pavlovitsj Djagilev keyrði verkefnið áfram og fékk hann Vatslav Nizjinskí til þess að semja þennan byltingarkennda ballett sem stundum er kallaður einn magnaðasti listgjörningur sög- unnar, því aldagamlar hefðir tónlist- ar og dans voru brotnar með þessu verki. Nú hundrað árum síðar er verkið flutt út um allan heim í ólík- um útfærslum. Hið íslenska Vorblót er lítið byggt á upprunalegu útfærsl- unni og hafa listrænir stjórnendur verksins mótað sína eigin afstöðu til tónverksins. Búningar og ljós mynd- uðu sviðsmyndina, en í verkinu voru tuttugu dansarar sem voru inni á sviðinu allan tímann. Karlarnir voru klæddir í klassísk jakkaföt og kon- urnar í glansandi síðkjóla. Sumir hverjir skreyttir glitrandi steinum. Hár dansaranna var svo vel túberað að það sást varla í andlit þeirra. Allt minnti þetta svolítið á fegurðar- samkeppni sem endaði með ósköp- um. Búningarnir voru mjög vel heppnaðir og gerðu þeir mikið fyrir heildarmynd verksins. Verkið hófst á skemmtilegan hátt þar sem karl- dansarar verksins lögðu höfuð sín á gólfið og drógu athygli áhorfenda að hljómsveitinni sem var staðsett und- ir sviðinu. Atriðið setti tóninn í verk- inu sem var einkar léttur. Það var mikið að gerast á sviðinu allan tím- ann og staðsetningar dansaranna mynduðu fallegar myndir, hvað eftir annað. Danssmíðin var þó frekar einföld og jafnvel fyrirsjáanleg á köflum, sér í lagi um miðbik verks- ins. Kraftmiklar hreyfingar dans- aranna og gott samspil við tónlist gerði það þó að verkum að einfald- leikinn átti nokkuð vel við. Hópurinn dansaði sem ein heild, þrátt fyrir nokkur stutt sóló var enginn einn dansari sem skar sig sérstaklega úr hópnum sem var einkar jákvætt fyr- ir heildarmynd verksins. Það verður því að hrósa nemendum samtíma- dansbrautar Listaháskóla Íslands sérstaklega, þeir stóðu sig virkilega vel. Það getur ekki talist neitt minna en stóratburður þegar dansað er við stórkostlega lifandi tónlist og það í flutningi annarrar eins hljómsveitar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistin og flutningur hennar magnar dansinn upp og stundin verður töfrum hlaðin. Morgunblaðið/Eggert Einfaldleiki „Kraftmiklar hreyfingar dansaranna og gott samspil við tónlist gerði það þó að verkum að einfaldleik- inn átti nokkuð vel við. Hópurinn dansaði sem ein heild,“ segir m.a. í umsögn dansgagnrýnanda um Vorblótið. 100 árum síðar... Dansar í Eldborg bbbmn Dansar í Eldborg. Petrúska. Danshöf- undur: Jorma Uotinen. Dansarar: Riku Lehtopolku, Brian Gerke og Ellen Mar- grét Bæhrenz. Stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Íslands: Pascal Rophé. Vorblótið. Listrænir stjórnendur: Lára Stefánsdóttir, Melkorka Sigríður Magn- úsdóttir, Filippía Elísdóttir og Björn Bergsteinn Guðmundsson. Dansarar: Ís- lenski dansflokkurinn og fyrsta árs nemar samtímadansbrautar Listahá- skóla Íslands. Stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Íslands: Pascal Rophé. Listahátíð í Reykjavík 2013. Eldborg- arsalur Hörpu. 24. maí 2013. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Silkimjúkir fætur fyrir sumarið Þökkum frábærar viðtökur Fæst í apótekum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.