Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 40
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta verður alvörukonsert-strætó,“ sagði Ilmur Stef-ánsdóttir myndlistarkona við
mig á dögunum þegar tónlistar-
ævintýrið sem þau Davíð Þór Jóns-
son píanóleikari kalla Routeopiu var
að hefjast. Og það fer ekki á milli
mála; strætónum gamla, sem Ilmur
keypti, hefur verð breytt í kons-
ertstrætó og þess njóta um fimmtíu
farþegar í hverri ferð. Það eru
sannkallaðar ævintýraferðir með
lifandi hljóðrás flygilrútunnar –
Davíð Þór á fullu á flyglinum í stræ-
tónum miðjum. Listahátíð býður
upp á margar forvitnilegar uppá-
komur en það er óvíst hvort nokkur
er eins skemmtileg og þessi.
Ilmur hefur á liðnum árum gerttalsvert af því að breyta allskyns
hlutum í hljóðfæri, til dæmis strau-
borði í selló, og þau Davíð Þór hafa
brallað sitthvað saman. En nú er
Ilmur búin að kaupa strætó, taka
meirapróf og ekur með gesti í eins-
konar teygða furðuslaufu um borg-
arlandið meðan á tónleikunum
stendur; frá Hörpu út á Seltjarn-
arnes, út í Örfirisey, aftur að Hörpu,
að Sundahöfn, og til baka.
Tónleikagestir mæta með miða
sína að rútunni þar sem hún stendur
við Hörpu, með plussgluggatjöld og
kristalsljósakrónur. Við innganginn
stendur frakkaklæddur maður með
sólgleraugu, vopnaður exi. Það gef-
ur tóninn, því þegar áhorfendur
hafa komið sér fyrir í vagninum,
sem flygillinn skiptir alveg í tvennt,
mæta listamennirnir ævintýralega
búnir, með fjaðraskraut, tjull og í
kjólfrakka. Svo er ekið af stað vest-
ur á Nes og Davíð Þór hefur leikinn.
Davíð Þór er enginn venjuleg-ur hljóðfæraleikari, eins og
margir ættu að þekkja, hvort sem
hann hefur leikið djass með Flís-
tríóinu, í leikhúsuppfærslum, með
stórsveitum eða klassísk sönglög í
úthaldsgjörningum með Ragnari
Kjartanssyni. Í flygilrútunni situr
hann við flygilinn í miðjum vagn-
inum, horfir út um gluggann á húsin
og hafið sem siglt er hjá og bregst
við útsýninu með tónum og áslætti.
Hann leikur á hljómborð flygilsins
en einnig á innvols hans; slær með
kjuðum á strengina og plokkar þá,
dempar hljóminn með límböndum
eða smellir á symbala og annað dót
sem þar liggur. Þá eru þarna nótna-
bækur með allrahanda tónlist;
ásjónur framúrstefnutónskáldanna
Johns Cage og Mortons Feldman
horfast í augu við farþegana og
bunkar af öðrum nótum eru andlits-
lausir. Stundum trommar Davíð á
strengina, þrífur svo kannski nótna-
bók og leikur fislétt númer úr henni
en spinnur það áfram í þungan um-
ferðarnið. Þegar ekið er hjá JL-
húsinu leikur hann ómstríða hljóm-
kviðu, veifar síðan farþegum í öðr-
um bíl og skiptir yfir í lýrík sem
endar á ægifagurri „Ave Mariu“
Schuberts úti á Granda, þar sem
ljósakrónur sveiflast upp í loft þeg-
ar farið er yfir hraðahindrun. Eftir
taktfastan leik á Sæbrautinni beygir
Ilmur niður að Sundahöfn og aftur
tekur ljóðrænan yfir, sjálfur „Dala-
kofinn“ og kemur gæsahúðinni út á
farþegunum, en þar sem farið er hjá
brotajárnshaugum magnast styrk-
urinn um stund og áslátturinn verð-
ur ágengari, ryðbrunninn og beygl-
aður. Svo aftur ekkert nema
mildileikinn.
Þegar ég spurði Ilmi á dög-
unum hvað Davíð Þór myndi leika,
þá hló hún og spurði á móti hvort
það væri nokkur leið að vita það.
„Þettta verður örugglega upp-
ljómað af stemningunni, rútustuð og
klassískur píanókonsert. Allt getur
gerst,“ sagði hún. Sú var líka raun-
in. Þetta var frábær og ófyr-
irsjáanleg skemmtun; líflegur og
spruðlandi ferskur tónlistarflutn-
ingur, óvenjuleg uppákoma – og leið
til að upplifa borgina á nýstárlegan
hátt. Sannkölluð listahátíð sem end-
aði með útfærslu píanóleikarans á
„Dagnýju“.
Búið er að bæta við nokkrum
aukaferðum á næstu dögum – þetta
er ferð sem enginn ætti að missa af.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ófyrirsjánlegur Davíð Þór Jónsson situr við flygilinn í strætónum miðjum og spinnur á hann fjölbreytilegar hljóm-
kviður. Hann leikur jöfnum höndum á hljómborðið og innvolsið, og kemur víða við í lagavalinu.
Ævintýri á
rútuferðalagi
» Listahátíð býðurupp á margar for-
vitnilegar uppákomur
en það er óvíst hvort
nokkur er eins
skemmtileg og þessi.
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Hljómsveitin Gus Gus mun koma
fram á Þjóðhátíð í Eyjum í ár og
verður það í fyrsta sinn sem hún
kemur fram á hátíðinni. Þá mun
Páll Óskar Hjálmtýsson koma fram
tvisvar á lokakvöldinu, á undan
brekkusöng og undir lok dagskrár-
innar. Af öðrum sem skemmta má
nefna Bubba Morthens, Retro Stef-
son og Skálmöld.
Gus Gus í fyrsta sinn á Þjóðhátíð
Morgunblaðið/Eggert
Eyjar Daníel Ágúst og félagar í Gus Gus skemmta á þjóðhátíð í ár.
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS!
ÍSL TAL
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
12
FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 5:20 -8 -10(P) -10:40
STAR TREK 3D Sýnd kl. 8 - 10:40
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 7
THE CROODS 3D Sýnd kl. 5
Stórmyndin
sem tekin
var upp
á Íslandi
„Toppar alla forvera sína í
stærð, brjálæði og hraða.”
- T.V., Bíóvefurinn
HHH
H.K.
-Monitor
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Þriðjudagstilboð