Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 44

Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. „Það er einfaldlega til vont fólk“ 2. Drap gömul hjón og braut … 3. Stórhættulegur aðhaldsfatnaður 4. Milljarðamæringur aðalvitnið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söngkonan Janis Carol Walker, sem áður kallaði sig Janis Carol, kemur fram á djasstónleikum á Café Rosenberg laugardaginn 1. júní kl. 21. Carol var þekkt hér á landi á árunum 1965-1976 en þá söng hún með þekktum djasstónlistarmönnum og popphljómsveitum. Carol kemur fram á Rosenberg með hljómsveit, Janis Carol-bandinu, en það skipa Kjartan Valdemarsson á píanó, Sigurður Flosason á saxófón, Gunnar Hrafns- son á bassa og trommuleikarinn Ein- ar Scheving. Janis Carol og djass- sveit á Rosenberg  Pólsk kvikmyndahátíð hófst í Ed- inborgarhúsinu á Ísafirði í fyrradag og lýkur í dag. Myndir heimskunnra leikstjóra á borð við Krystow Kies- lowski og Roman Polanski eru meðal þeirra sem eru á dagskrá hátíðarinnar auk nýlegra kvikmynda og heimild- armynda sem notið hafa vinsælda í Póllandi. Myndirnar eru sýndar í Ísa- fjarðarbíói og eru aðalmyndirnar Jes- tés Bogiem (Þú ert Guð), Mój Rower (Reiðhjól föður míns) og Fuck for For- est, umdeild heimildarmynd sem sýnd er á vegum hátíð- arinnar Reykjavík Shorts & Docs og er hún jafnframt loka- mynd hátíðarinnar á Ísafirði. Lokahóf há- tíðarinnar fer fram í kvöld í Vagn- inum á Flateyri og hefst kl. 22.30. Pólsk kvikmyndahá- tíð haldin á Ísafirði Á miðvikudag Fremur hæg suðlæg átt. Léttskýjað á NA- og A-landi, en skúrir í öðrum landshlutum. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Mun hægari austlæg átt og úrkomulítið, en áfram norðaustan 8-15 og rigning á Vestfjörðum fram eftir degi. Hiti 2 til 13 stig, hlýjast syðst. VEÐUR KR-ingar eru efstir á betri markatölu en FH, svo munar einu marki, þegar fyrstu fimm umferðum Pepsi- deildar karla í knattspyrnu er lokið. Liðin eru með 13 stig hvort en KR hefur skor- að einu marki meira. KR- ingar töpuðu sínum fyrstu stigum í gærkvöld þegar þeir gerðu jafntefli, 1:1, við Breiðablik á heimavelli og Stjarnan er skammt undan eftir 1:0 sigur á Fram. »2-3 KR-ingar efstir á einu marki LeBron James sýndi enn einu sinni hvers hann er megn- ugur þegar Miami Heat náði 2:1 forystu gegn Indiana Pacers í undanúrslitum NBA- körfuboltans. Gunn- ar Valgeirsson, NBA-sérfræðingur Morgunblaðsins, segir að James sé duglegri að sækja ná- lægt körfunni en hann var þegar hann lék með Cleveland. Með því hafi hann bætt vopni í annars vel birgt vopnabúr sitt. »4 LeBron James bætir vopni í vopnabúrið Handknattleiksmaðurinn Guð- mundur Árni Ólafsson hefur samið við danska úrvalsdeild- arliðið Mors-Thy. Guðmundur Árni hefur undanfarin ár leikið með Bjerringbro/Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni og var m.a. í silfurliði liðsins í deildinni fyrir ári. Samningur Guð- mundar Árna er til eins árs. »1 Guðmundur Árni samdi við Mors-Thy ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Þórir Gunnarsson flutti nýlega til Íslands eftir að hafa búið í Tékk- landi síðan 1991. Þar gat Þórir sér gott orð sem veitingahússeigandi en nú hefur hann tekið við rekstri Munnhörpunnar, kaffi- og veitinga- húss í Hörpu. „Í raun á ég að vera kominn á eftirlaun en það var bara hundleiðinlegt að vakna á morgnana og vita ekkert hvað maður átti að gera,“ svarar Þórir, spurður hvort hann hafi ætlað sér að halda áfram í veitingarekstri eftir komuna til Ís- lands. Þórir hefur starfað í bransanum í 50 ár eða frá því hann hóf störf sem kokkalærlingur á Matstofu Austur- bæjar í desember 1962. Lengst af hefur hann einbeitt sér að rekstri en hann er einnig lærður kokkur. Þrátt fyrir langan starfsferil er engan bil- bug að finna á Þóri sem hefur aðeins tekið sér einn frídag síðan hann tók við rekstrinum 16. apríl síðastliðinn. Þórir segist ætla að leggja áherslu á að einfalda rekstur Munnhörpunnar og hraða allri afgreiðslu. Slíkt sé nauðsynlegt þegar stórir hópar komi inn á sama tíma fyrir og eftir viðburði í Hörpu. „Mín skoðun er að Munnharpan eigi að vera staður fyr- ir fólkið á götunni, við sjáum fyrir okkur huggulegt kaffihús með mat- sölu,“ útskýrir Þórir og bætir við að hann ætli að reyna að halda verðlagi í skefjum. Skemmtilegast að hitta fólk En hvað er það skemmtilegasta við veitingahúsareksturinn? „Þú hittir svo mikið af fólki, fólk úr öllum áttum sem kemur inn af götunni,“ segir Þórir sem greinilega nýtur þess að rölta á milli borða í Munn- hörpunni og ræða við viðskiptavini. Þórir varð fyrsti útlendingurinn til að reka „frjálsan“ veitingastað í Tékklandi eftir fall kommúnismans. „Þetta var stórfenglegur tími sem ég átti, að vera í landi sem er verið að byggja upp og þróa. Það er ekk- ert eins gefandi og fá að taka þátt í því,“ segir Þórir sem einnig hefur verið aðalræðismaður Íslands í Tékklandi frá 1992. Sér aðeins björtu hliðarnar Þórir útskýrir fyrir blaðamanni hvernig ríkið átti alla veitingastaði þegar kommúnisminn réð ríkjum. Það hlýtur því að hafa verið meira en að segja það fyrir kraftmikinn ís- lenskan veitingamann að hasla sér völl í Tékklandi við slíkar aðstæður. Þórir vill ekki kannast við að erfitt hafi verið að koma sér af stað í Prag. „Ég hugsa aldrei um hvað er erfitt. Ég sé bara skemmtilegu hliðarnar, sem betur fer.“ Hálfa öld í veitingabransanum  Í Munnhörpuna í stað þess að fara á eftirlaun Morgunblaðið/Styrmir Kári Ástríða Þórir á erfitt með að slíta sig frá hinu daglega amstri sem fylgir veitingahúsarekstri þrátt fyrir að vera kominn á sjötugsaldur. Hann hefur aðeins tekið sér einn frídag frá því hann tók við Munnhörpunni hinn 16. apríl. Afskipti Þóris af veitingahúsum byrjuðu fyrir hálfri öld, nánar til- tekið í desember 1962. Hann byrj- aði 16 ára sem kokkalærlingur á Matstofu Austurbæjar við Hlemm. Ungur starfaði hann einnig á Hótel Loftleiðum og þá bjó hann í Banda- ríkjunum og Sviss um tíma. Hann hefur verið sinn eigin herra frá upphafi áttunda áratugarins, ávallt í veitingahúsabransanum. Þessi mikli frumkvöðull hefur greinilega alltaf verið óhræddur við að stökkva út í djúpu laugina því auk þess að byrja í veitinga- rekstri í Tékklandi opnaði hann ungur fyrsta hamborgarastaðinn á Íslandi, en hann nefndist Vinnie’s. „Þegar ég byrjaði í þessu þá var helst feiti út á allt saman. Nú er það hollustan,“ segir Þórir sem ætlar að leggja áherslu á að bjóða upp á heilsumatseðil í hádeginu á Munnhörpunni. Feitin víkur fyrir hollustu BYRJAÐI 16 ÁRA Á MATSTOFU AUSTURBÆJAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.