Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 1
Flottur Ferðalag niður í iður jarðar.
Þ R I Ð J U D A G U R 2. J Ú L Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 152. tölublað 101. árgangur
KRAFTMIKILL
CAVE FÓR
Á KOSTUM
ÁTTRÆÐUR
Í ÆVIN-
TÝRAFERÐ
KÓRAR MEÐ
SKÁLMÖLD OG
SINFÓNÍUNNI
ÖKUÞÓR BÍLAR STÓRTÓNLEIKAR 32AF LISTUM 30
Margar kríur eiga hreiður á Álftanesi og leit einn kríuunginn dagsins ljós í
gærmorgun. Hann er líklega með fyrstu kríuungunum á Álftanesinu.
Ljósmyndari Morgunblaðsins beið í rúma klukkustund eftir að unginn
kæmi undan væng móður sinnar þar sem hann hélt sig í dágóðan tíma.
Sennilega er eitt annað egg í hreiðrinu.
Varp kríunnar virðist vera betra í ár en síðustu ár og hefur sandsíla-
stofninn braggast eftir mögur ár, að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fugla-
fræðings. Sandsíli eru gríðarlega mikilvæg fæða fyrir kríuunga. Það kem-
ur þó betur í ljós þegar fleiri ungar koma hvort sílastofninn hafi náð sér
nægjanlega á strik.
Ungarnir munu verða fleygir á þremur til fjórum vikum, en kríur verpa
að meðaltali einu til þremur eggjum í hverju varpi.
Krían er friðuð á Íslandi en hún verpir hér og annars staðar á norður-
slóðum.
Morgunblaðið/Ómar
Kíkti undan vængnum eftir klukkutíma bið
Kríuvarpið virðist betra í ár en í fyrra
Eva María Einarsdóttir segir
bæjarbúa í Prescott í Arizona
harmi slegna vegna skógareldanna
á svæðinu og afleiðinga þeirra. 19
slökkviliðsmenn létust við störf sín
og um 250 heimili hafa brunnið.
„Ég hef miklar áhyggjur. Það
getur allt breyst á örskotsstund,“
segir Eva María sem búið hefur í
bænum í 24 ár en í síðustu viku
þurfti hún að flýja heimili sitt en er
nú komin til baka. „Það er mjög
erfið tilfinning að ganga frá heimili
sínu,“ segir Eva en mikill reykur er
í bænum sem og hætta af villtum
dýrum sem hlaupa yfir vegi og eru
að forða sér frá eldinum. »2
Erfitt að ganga frá
heimili sínu og vita
ekki um örlög þess
Skógareldar Miklir skógareldar eru nú í
Arizona og hafa um 250 heimili brunnið.
Freyja Haralds-
dóttir, varaþing-
maður Bjartrar
framtíðar, flutti í
gær jómfrúræðu
sína og beindi fyr-
irspurn til Illuga
Gunnarssonar
mennta-
málaráðherra.
Hún segir að
óviðunandi sé að
geta ekki flutt ræðu úr pontu en
hún flutti ræðuna úr sæti sínu. „Það
eru allir að gera sitt besta í stöð-
unni,“ segir Freyja og bætir við að
verið sé að vinna við að gera breyt-
ingar sem vonandi verði að veru-
leika á kjörtímabilinu. »6
Gera á breytingar
á pontu Alþingis
Freyja
Haraldsdóttir
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Heilbrigðisráðherra hefur ásamt
fulltrúum sjálfstætt starfandi sér-
greinalækna og Sjúkratrygginga
Íslands undirritað viljayfirlýsingu
um gerð samnings sem taka á gildi
1. janúar 2014 og skal gilda í 3-5 ár.
Sérgreinalæknar hafa verið samn-
ingslausir síðan í mars 2011, en SÍ
hafa áfram endurgreitt sjúklingum
vegna kostnaðar við þjónustu
þeirra. Þar sem verðskrá lækna
hefur hækkað um 18-20% af við-
miðunarverðskrá SÍ á tímabilinu
hefur hins vegar hlutdeild sjúk-
lings aukist á tímabilinu úr 31% í
42%.
Kostnaður sjúklinga of hár
Í yfirlýsingunni segja aðilarnir
samningsleysið undanfarin ár hafa
leitt til þess að kostnaður sjúkra-
tryggðra sé orðinn allt of hár, og
að hann ógni því markmiði sjúkra-
tryggingalaganna, að tryggja jafn-
an aðgang að heilbrigðisþjónustu,
óháð efnahag. Markmið samnings-
ins sé að tryggja jafnan aðgang
sjúkratryggðra að þjónustu sjálf-
stætt starfandi sérgreinalækna.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra fagnar vilja sérgreina-
læknanna til samningsgerðar og
segist bjartsýnn á framhaldið. „Við
erum sammála um ákveðin atriði
sem tekið verður á í nýjum samn-
ingi með aukna hagræðingu að
leiðarljósi til hagsbóta fyrir sjúkra-
tryggða, hið opinbera og þá sem
veita þjónustuna.“
Samræmd gjaldskrá
Meðal þess sem fram kemur í
viljayfirlýsingunni er að einstakir
þættir þjónustunnar verða kostn-
aðargreindir og miðað við að nýjar
reglur um greiðsluþátttöku tryggi
að þeir njóti aðstoðarinnar sem
mest þurfi á þjónustunni að halda.
Einnig kemur fram að nýr samn-
ingur skuli fela í sér samræmda
gjaldskrá sem miðist við umfang
og heildarkostnað þjónustunnar í
júní 2013.
Læknar ganga til
samningaviðræðna
Viljayfirlýsing undirrituð Samningslausir í tvö ár
Morgunblaðið/Ásdís
Sérgreinalæknar Samningurinn
tæki gildi 1. janúar 2014.
MSamningur eðlilegt ástand »4
Þyrla sem nota átti til að flytja
dísilolíu frá Bláfjallavegi að Þrí-
hnúkagíg í maí sl. er skráð í Dan-
mörku og er rannsókn á því að
krókur á þyrlunni opnaðist, líkt og
talið er að hafi gerst, á forræði
danskra rannsóknaryfirvalda.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
hefur ekki fengið svör þaðan um
hvernig rannsókninni miðar. »4
Danir rannsaka
óhapp við Bláfjöll
Til stendur að reisa metangasverk-
smiðju á urðunarstað SORPU á
Álfsnesi. Ekki eru komnar nákvæm-
ar áætlanir um stærð hennar, en
fjárfestingin er þó metin á um tvo
milljarða króna og er verksmiðjunni
ætlað að taka við öllum lífrænum úr-
gangi á landinu ásamt einhverju frá
atvinnulífinu. Með verksmiðjunni
má stytta framleiðslutíma metan-
gass um nokkra áratugi, en fram-
leiðsla sem nú tekur um 20-30 ár
myndi þess í stað taka 3-4 vikur. Þá
verður einnig hægt að stýra fram-
leiðslunni betur hvað varðar hitastig
og pH-gildi metansins. »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gas Auka á nýtingu á metani.
Um tveggja
milljarða
fjárfesting