Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HUMARSALAT “á la Café Paris”
með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk,
cous-cous og hvítlaukssósu
RISARÆKJUR MARINERAÐAR
í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati,
klettasalati, rauðlauk, tómötum,
mangó og snjóbaunum
BARBERRY ANDAR ,,CONFIT” SALAT
með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati,
rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum,
rauðlauk og appelsínufíkjugljáa
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Þegar rútan mætti í Ásbrún voru
Apparat Organ Quartet því miður
hálfnaðir með tónleika sína og þeir
fáu tónleikagestir sem mættir voru
hylltu þá af miklum móð. Mér þykir
einnig miður að hafa misst af kvik-
myndinni Diabolik sem var ein þeirra
mynda er leikstjórinn Jim Jarmusch
hafði valið til sýningar á hátíðinni.
Það þótti heldur undarlegt að dag-
skráin skyldi hefjast áður en rút-
urnar mættu á svæðið en hundurinn
liggur eflaust grafinn í vinnutíma
fólks en aðstandendur hátíðarinnar
hafa eflaust viljað gefa vinnandi fólki
tækifæri til að ná rútunum í Reykja-
vík. Hví rúturnar lögðu ekki af stað
fyrr á laugardeginum, þegar dag-
skráin byrjaði í raun klukkan 11,
kann ég engar skýringar á. En nóg
um það.
Rafpopp og njósnarar
Eitt af stærri nöfnunum á hátíð-
inni, þýska plinkerpoppsveitin The
Notwist, steig fremur snemma á svið
og heillaði viðstadda með rafdrifnum
laglínum og gítarspili. Sveitin var
stofnuð fyrir tuttugu og fjórum árum
en það var ekki að sjá að meðlimir
sveitarinnar væru orðnir lúnir. Há-
punktur framkomu þeirra var klár-
lega þegar þeir tóku lagið Pick Up
the Phone af plötunni Neon Golden
og ég er ekki frá því að lagið sé tals-
vert betra í lifandi flutningi. Martin
Gretschmann, forritari sveitarinnar
sem margir ættu að þekkja sem Con-
sole, var einkar flottur á sviði þar sem
hann stóð stjarfur og lék sér að alls-
kyns tölvubúnaði.
Eins og áður sagði var Jim Jar-
musch fenginn til að velja kvikmyndir
til að sýna á föstudeginum í Andrews
Theater, sem er skammt frá Atlantic
Studios þar sem tónleikarnir voru
haldnir. Það fyrirkomulag að geta
valið á milli tónleika eða kvikmynda á
sömu hátíðinni er frábært og til eft-
irbreytni. Bíósalurinn var þó fremur
tómlegur, líkt og tónleikastaðurinn,
þegar kvikmyndin Our Man Flint frá
árinu 1966 hófst. Myndin segir frá
njósnaranum Derek Flint, sem leik-
inn er af James Coburn, sem sigrast
á erfiðleikum vopnaður persónutöfr-
um og skjalli. Kvikmyndin, sem er
einskonar háð í garð James Bond,
hefur skipað sér sess sem einskonar
költ-kvikmynd enda yndislega hall-
ærisleg. Í myndinni má finna ákveðna
ádeilu á kynjahlutverk í kvikmyndum
á borð við James Bond-myndirnar,
þar sem eldklár flagari tælir til sín
heilu kvennabúrin með fagurgala.
Rokkhundur frá Manchester
Í Atlantic Studios var röðin komin
að Manchester-sveitinni The Fall.
Mikil spenna var í loftinu þegar
söngvari sveitarinnar, gamli rokk-
hundurinn Mark E. Smith, steig á
svið en kauði er þekktur fyrir ansi líf-
lega sviðsframkomu. Með honum í för
var fríður flokkur hljóðfæraleikara en
hljómsveitin hefur breyst mikið í ár-
anna rás. Sveitin var hluti af síðpönk-
stefnu áttunda áratugar síðustu aldar
en hún hefur aðeins orðið pönkaðri
með árunum ef eitthvað er. Smith fór
á kostum á sviðinu og ef hann var
ekki í mjög annarlegu ástandi þá er
hann mjög góður leikari. Á köflum
var það þó orðið heldur pínlegt þegar
hann var farinn að andskotast í hljóð-
færum hljómsveitarmeðlima sinna
við litla hrifningu þeirra en mikla kát-
ínu tónleikargesta. Sveitin komst þó
vel frá sínu og lýðurinn var ánægður.
Botnleðja þakti því næst sviðið og
náði að skapa góða stemningu. Sveit-
in, sem er nýbúin að gefa út safn-
plötu, tók hvern slagarann á fætur
öðrum og meðlimir hennar virtust
skemmta sér jafn vel og sá tryllti lýð-
ur er hyllti þá. Gaman var að sjá
Andra Frey Viðarsson, útvarps- og
sjónvarpsmann með meiru, stíga á
svið með sveitinni en kappinn tekur
sig vel út á sviði.
Svartagaldur og sofandi gestir
Kvikmynd frá Hong Kong, The
Boxer’s Omen, hófst í Andrews Thea-
ter á miðnætti en því miður var sal-
urinn enn nokkuð tómur. Nokkrir fé-
lagar virtust hafa komið sér fyrir í
salnum til að hvíla lúin bein og þung
augnlok og var það allt gott og bless-
að. Myndin, sem einnig er költ-mynd
frá árinu 1983, segir sögu bardaga-
kappa sem leggur í mikinn hefnd-
arleiðangur. Á vegi hans verður
svartagaldursprestur sem gerir allt
hvað hann getur til að stöðva sögu-
hetjuna. Þær tæknibrellur sem not-
aðar eru í myndinni eru ansi frum-
legar og kynjaverur þær er
presturinn kallar fram einkar seið-
andi og skemmtilegar.
Að mynd lokinni var ferðinni aftur
heitið í Atlantic Studios þar sem Gho-
stigital stóð sig frábærlega í því að
halda uppi stuðinu í þeim fáu tón-
leikagestum sem eftir voru.
Eins og gefur að skilja var heim-
ferðin í rútunni heldur skrautleg þar
sem tónleikagestir voru misvel á sig
komnir. Þrátt fyrir fámenni var dag-
urinn mjög vel heppnaður. Þær
sveitir sem tróðu upp stóðu sig
einkar vel auk þess sem kvikmynd-
irnar í bíósalnum voru áhugaverðar
og fjölbreyttar. Breskur tónleika-
gestur sem var að fara á sína fimmtu
ATP-hátíð tjáði mér að hátíðin væri
nokkuð minni í ár en hún hefði verið
fyrir nokkrum árum. Það kom þó
ekki að sök og vonandi verður hátíð-
in á sínum stað að ári liðnu, enda um
að gera að nýta húsnæðið í þessu
fyrrverandi Natóbæli til hins ýtr-
asta.
Ljósmynd/Arnar Bergmann Sigurbjörnsson
Svalur Mark E. Smith, söngvari The Fall, er farinn að nálgast sextugt en kappinn lætur það ekki á sig fá.
Seiðkarlar og síðpönk
Ljósmynd/Arnar Bergmann Sigurbjörnsson
Leikstjóri Jim Jarmusch valdi kvikmyndirnar á föstudeginum.