Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinir og þínir nánustu hafa setið á
hakanum hjá þér að undanförnu. Stundin
rennur upp í dag og það er eins og þið getið
ekki hætt að spjalla, svo gaman er það.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú fer stressið að segja til sín. Viðskipti
og samskipti um praktísk atriði við einhvern í
útlöndum ganga vel. Gefðu þér tíma til að
slaka á og treysta því að þetta leysist.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hið rétta virðist svo rétt í dag og
það ranga svo rangt. Reyndu að muna eftir
því hvað það er gott að eiga góða vini þegar
maður þarf á þeim að halda.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leggðu þig sérstaklega fram um að
vera liðleg/ur í samskiptum. Trúðu ein-
hverjum með opinn huga fyrir því sem hefur
legið á þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður framúrskarandi ef þú venur
þig á nokkra góða siði á næstu vikum. Leit-
aðu á önnur mið því það er fullt af öðrum
fiskum í sjónum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekkert er nýtt undir sólinni. Vertu því á
varðbergi gegn freistingum og gylliboðum.
Leitaðu ráða hjá sérfræðingum til þess að
áætlanir þínar séu líklegar til að standast.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú verður ekki lengur hjá því komist að
taka til hendinni því verkefnin hafa hlaðist
upp. Breyttu neikvæðni í jákvæðni með því
að anda rétt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fjarlægð er ekki rétta aðferðin
til þess að fá það sem maður þráir. Fylgdu
innsæi þínu. Nú er ekki rétti tíminn til þess að
þröngva markmiðum sínum áleiðis.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert mjög metnaðarfull/ur og
finnur að árangur erfiðisins er innan seilingar.
Þú talar um hvernig þú vilt að hlutirnir séu,
ekki hvernig þeir eru í raun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú skiptir öllu að huga að heilsu-
farinu og gæta hófs í mat og drykk. Auglýsing
er þín leið að peningum og tækifærum fyrir
persónulegan þroska.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér getur orðið vel ágengt við
vinnu í dag þar sem aðrir sýna þér skilning og
stuðning. Vel má vera að þú hafnir þar sem
draumar þínir uppfyllast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það sem var einskis nýtt í gær er
verðmætt í dag, en bara fyrir þá sem sjá
verðmætagildið. Leiddu þetta ekki hjá þér
heldur líttu í eigin barm og skoðaðu málin.
Það kom í fréttum Mbl. is ásunnudag, að Jón Gnarr borg-
arstjóri hefði „gefið saman brúð-
hjón“ – og með því hefði fertugs-
afmæli snúist upp í brúðkaups-
veislu. Um þetta var karlinn á
Laugaveginum að tauta, þegar ég
hitti hann, – horfði upp í loftið,
þagnaði og sagði eins og við sjálfan
sig:
Borgarstjórinn brosti og fór á kostum.
Gjörninga hann gera kunni
að gifta fólk í þykjustunni.
Mér þykir fara vel á því að láta
uppkast að biðilsbréfi Tryggva H.
Kvaran fylgja í kjölfarið:
Ég á ósk í eigu minni
ofurlítið grey –
að mega elska einu sinni
áður en ég dey.
Að það sé svo undurgaman
allir segja mér.
Eigum við að vera saman
og vita hvort það er.
Og síðan kemur vísa til elskunnar
sinnar:
Komdu sæl, mín kjaralds ausu
Nanna.
Hvernig líður högum þín
hákarls grútar liljan fín?
Mér þykir stuðlafall allra brag-
arhátta skemmtilegast en naut þess
ekki til fulls fyrr en Ragnar Að-
alsteinsson benti mér á, að síðari
stuðullinn yrði að standa í þriðja
áhersluatkvæði. Ég tek dæmi af
stuðlafalli, þar sem það kemur af
sjálfu sér að hafa hljóðdvöl á eftir
kátur:
Lifa kátur
líst mér mátinn bestur.
Þó að bjáti eitthvað á
úr því hlátur gera má.
Eins og hér sést er fyrsta vísu-
orðið bundið með aðalhendingunni
„kátur-mátinn“ í lágkveðunum í 2.
og 4. áhersluatkvæði. Magnús Jóns-
son á Laugum í Dalasýslu sagði við
hund prestsins en meinti prestinn
sjálfan:
Farðu sláni
fjarri láni öllu
heiðurs án úr húsi mín.
Helst er smán að komu þín.
Sveinbjörn Egilsson orti:
Edda prýðir,
allir lýðir segja
en hana að brúka of mjög er
eins og tómt að éta smér.
Þessi vísa er af öðrum toga:
Sigla fleyi,
sofa í meyjarfaðmi
ýtar segja yndið mest
og að teygja vakran hest.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af gjörningi og biðilsbréfi
Í klípu
„OKEI, NÚ SKULUM VIÐ SKOÐA NÁNAR
PLAN B, BETUR ÞEKKT SEM: HVER MAÐUR
FYRIR SJÁLFAN SIG.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KRAKKI, ÞAÐ ER BANNAÐ SAMKVÆMT
LÖGUM AÐ SEGJA FÓLKI AÐ ÞÚ SÉRT 50
ÁRA GAMALL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að lifa í von.
PLAN
B
YNG-
INGAR-
LYF
50 KR.
„ANDVARP!“ HELGA SEGIR AÐ
TÖFRARNIR SÉU FARNIR ÚR
HJÓNABANDINU.
Á ÉG AÐ KENNA ÞÉR
NOKKRA SPILA-
GALDRA?
TÖLVAN ER
YNDISLEGUR HLUTUR.
TIL AÐ
MYNDA …
EF ÉG SLEKK Á HENNI, ÞÁ GET
ÉG SÉÐ FRÁBÆRA ENDUR-
SPEGLUN AF SJÁLFUM MÉR.
Víkverji man varla eftir knatt-spyrnumanni á Íslandi sem haft
hefur jafnmikið yndi af því að skýla
knettinum fyrir andstæðingum sín-
um og Chukwudi Chijindu, miðherji
Þórsara í Pepsi-deildinni.
Víkverji hefur séð nokkra leiki
Þórsara í sumar og glímurnar eru
orðnar ófáar, þar sem andstæðingar
liðsins reyna að ná knettinum af
Chijindu, sem Akureyringar kalla
einfaldlega Chuck enda nafnið í
heild tungubrjótur hinn mesti. Yfir-
leitt fara glímur þessar á tvo vegu,
annaðhvort skilar Chuck boltanum
af sér til samherja, eftir japl, jaml og
fuður, eða brotið er á honum. Hann
tapar honum eiginlega aldrei.
Chuck er ekkert sérstaklega hár í
loftinu en feikilega sterkur á líkam-
ann og þegar hann setur óæðri end-
ann út í loftið og stendur yfir bolt-
anum er nær útilokað að komast að
honum. Meinfyndið var að fylgjast
með Keflvíkingum kljást við kapp-
ann um liðna helgi. Ekkert gekk og
það var nokk sama þótt Kristján
Guðmundsson þjálfari henti hverju
heljarmenninu inn á af öðru, alltaf
stóð Chuck atlögurnar af sér.
Kappinn hlýtur að hafa lagt stund
á glímu af einhverju tagi á æskuár-
unum í heimalandi sínu, Bandaríkj-
unum.
x x x
En Chukwudi Chijindu er annað ogmeira en bara skjól fyrir bolt-
ann, hann hefur þegar gert fjögur
mörk fyrir Þórsara í Pepsi-deildinni
og er kominn í hóp markahæstu
manna. Efstur á blaði er KR-
ingurinn Gary Martin með sex
stykki. Chuck gerði eitt af þremur
mörkum liðs síns í Keflavík og átti
stóran þátt í öðru sem Jóhann Helgi
Hannesson skoraði. Hann er algjör
lykilmaður í sóknarleik Þórsara sem
hefur á köflum verið býsna góður í
sumar. Alltént er það ekki varn-
arleikurinn sem hefur skilað liðinu
10 stigum og áttunda sætinu í deild-
inni. Hann hefur verið afleitur og
engin tilviljun að Þórsarar hafa
fengið á sig flest mörk allra liða, 22
talsins. Eitthvað er Eyjólfur þó að
hressast, þess bera aðeins tvö mörk í
síðustu tveimur leikjum vitni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til
samfélags við son sinn Jesú Krist,
Drottin vorn.
(Fyrra Korintubréf 1:9)
Hollt smurbrauð
alla daga
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Ciabatta
með laxi 839 kr.
Píta með
buffi 779 kr.
Núðlur með kjúkling
og eggjum 629 kr.
Beikonbræðingur
910 kr.
Roastbeef
borgari 689 kr.