Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Flestir þeirra þingmanna, sem Morg- unblaðið hefur rætt við sem greiddu atkvæði með ákærum á hendur fyrr- verandi ráðherrum til Landsdóms, eru enn sömu skoðunar og þegar at- kvæðagreiðslan fór fram. Þeir telja þó að endurskoða eigi lög um Landsdóm. Þing Evrópuráðsins samþykkti ályktun á föstudag sem segir að lýð- ræðið og réttarríkið krefjist þess að stjórnmálamenn séu verndaðir fyrir því að vera ákærðir vegna pólitískra ákvarðana sem þeir tóku sem kjörnir fulltrúar í embætti. Ekki er minnst sérstaklega á Landsdómsmálið í ályktuninni en fjallað er um það í skýrslu sem fylgir ályktuninni. Um hana má lesa frekar hér fyrir neðan. Stendur við feril málsins Allir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði með því að ráðherr- arnir fjórir, sem þingmannanefnd sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis lagði til að yrðu ákærðir, yrðu ákærðir. Lilja Rafney Magnúsdóttir átti sæti í þingmannanefndinni sem lagði til að þau Geir H. Haarde, Árni M. Mathiesen, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir og Björgvin G. Sigurðsson væru ákærð. Hún segist standa al- gerlega við feril málsins. „Ég greiddi atkvæði fyrir mig og get ekki borið ábyrgð á því hvernig aðrir þingmenn vörðu sínu atkvæði. Ég hefði viljað sjá fjóra ráðherra ákærða,“ segir hún en er jafnframt hlynnt því að lög um Landsdóm verði endurskoðuð og uppfærð. Hún telji ekki að þeir einstaklingar sem skip- uðu Landsdóm hafi dæmt og komist að niðurstöðu út frá pólitískum for- sendum heldur út frá lögum um ráð- herraábyrgð en þar sé grundvallar- munur á. Undir það sjónarmið um endur- skoðun laganna tekur Katrín Jak- obsdóttir. Hún segir að lagastoð hafi verið fyrir ákærunum gegn fyrrver- andi ráðherrunum, en rétt sé að end- urskoða fyrirkomulagið sem sé barn síns tíma. Ögmundur Jónasson hefur hins vegar áður lýst því að Landsdóms- málið hafi verið mjög misráðið. Hann hefði greitt atkvæði með því að aft- urkalla málið hefði þess verið kostur. Enginn efi vegna ákæra „Ég hef engar efasemdir. Ég stend fullkomlega við ákvörðun mína þegar þetta mál kom til at- kvæða,“ segir Mörður Árnason, fv. þingmaður Samfylkingarinnar. Hann vildi ákæra alla ráðherrana fjóra en greiddi atkvæði gegn ákæru á hendur Björgvini G. Sigurðssyni eftir að ljóst varð að ákæra gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hafði verið felld vegna þess að mál þeirra væru tengd. „Ég gerði mér ljóst þá og geri enn að Landsdómsleiðin er ekki fullkom- in en hún var sú eina sem stóð til boða. Ég taldi okkur skylt að fara hana samkvæmt hálfrar aldar göml- um lögum og stjórnarskrá,“ segir Mörður sem bendir á að fyrirkomu- lagi Landsdóms hafi verið gjörbreytt í tillögum stjórnlagaráðs. Var æðsti embættismaðurinn Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pír- ata sem var þingmaður Hreyfingar- innar og fulltrúi í þingmannanefnd- inni fyrir hennar hönd, hafnar því alfarið að Landsdómsmálið hafi ver- ið einhvers konar nornaveiðar eins og gefið hafi verið í skyn. Hún greiddi atkvæði með því að ákæra ráðherrana fjóra. Hún telur að eðli- legra hefði verið að aðrir en þing- menn tækju ákvarðanir um að ákæra vini sína. Landsdómsfyrirkomulagið sé úrelt og það þurfi að endurskoða. Þá hafi aldrei staðið til að draga að- eins einn mann til ábyrgðar. „Við getum samt ekki horft fram hjá því að viðkomandi ráðherra var æðsti embættismaður á þessum tíma. Ég hafna því fyrir mína parta að þetta hafi verið persónulegt gegn Geir H. Haarde heldur eingöngu út frá þeirri ábyrgð og því embætti sem hann gegndi á þessum tíma.“ Mistök að ákæra Geir einan Ásmundur Einar Daðason, þing- maður Framsóknarflokksins, var þingmaður VG þegar atkvæða- greiðslan um ákærurnar fór fram. Hann telur að það hafi verið mistök að ákæra Geir H. Haarde einan. „Ef það átti að ákæra, þá átti að ákæra ríkisstjórnina en ekki einn mann. Það voru mikil mistök, enda mun ég seint gleyma þessari at- kvæðagreiðslu,“ segir Ásmundur Einar þegar hann er spurður hvort að mistökin hafi falist í því að ákæra einn mann eða að ákæra til Lands- dóms almennt. Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, greiddi at- kvæði með öllum ákærunum á sínum tíma. Hún hafði hins vegar ekki lesið ályktunina eða skýrsluna þegar við- bragða hennar var leitað og vildi því ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Landsdómur engar nornaveiðar  Þingmenn sem stóðu að Landsdómsákærum gegn fyrrverandi ráðherrum standa flestir við þær  Segja lagastoð hafa verið fyrir þeim og skylt hafi verið að beita lögunum  Tilbúnir að endurskoða lögin Morgunblaðið/Kristinn Atkvæðagreiðsla Þingmenn fylgjast spenntir með niðurstöðu atkvæðagreiðslna um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum. Alþingi samþykkti að ákæra Geir H. Haarde en hafnaði ákærum á hendur þremur öðrum ráðherrum. „Svo það sé alveg ljóst þá greiddi ég atkvæði með og studdi afgreiðslu nefndarinnar [á ályktuninni]. Það er talað og látið eins og ég hafi verið að mótmæla af- greiðslu nefnd- arinnar. Það er ekki rétt. Ég fór yfir feril málsins og gerði athuga- semdir við nokk- ur atriði í skýrslu Omtzigt,“ segir Þuríður Back- man, fyrrverandi þingkona VG og formaður Íslands- deildar Evrópuráðsþingsins. Þuríður segir að meðal þeirra at- hugasemda sem hún hafi gert við skýrslu hollenska þingmannsins hafi verið að skýra hvenær skipað var í Landsdóm, en í skýrslunni hefði mátt skilja að sama þing og tók ákvörðun um ákæru í Landsdóms- málinu hafi kosið í Landsdóm. Það sé hins vegar ekki rétt, því dóm- urinn hafi verið skipaður löngu áð- ur, af öðru þingi og annarri stjórn. Sérálit hennar sem vísað sé til séu þessar athugasemdir við framsetn- ingu í skýrslunni og fylgi skýrslunni. Nefndin hafi hins vegar aldrei greitt atkvæði um skýrsluna sjálfa, enda sé hún alfarið á ábyrgð höfundar. „Skýrslan var mjög gagnrýnd í nefndinni fyrir að vera svo pólitísk að hún væri varla nothæf, sögðu sumir,“ segir Þuríður. Þuríður greiddi atkvæði með því að ákæra alla ráðherrana fjóra, sem þingmannanefnd lagði til við Al- þingi, til Landsdóms. Hún segir að málið hafi tekið mjög á sig persónu- lega, bæði að þurfa að kalla til Landsdóm og afgreiðsla Alþingis á ákærunum. Hún telur þó ekki að það hafi verið mistök að ákæra. „Ég tel að við höfum staðið frammi fyrir því að vera með nið- urstöður rannsóknarnefndar Al- þingis og þingmannanefndarinnar, ákvæði í stjórnarskrá og lög um Landsdóm sem við urðum að lúta og hvorki stjórnarskrá né lögum um Landsdóm varð breytt við þessar að- stæður. Við vissum að það var löngu tímabært að endurskoða lögin um Landsdóm og yfirfara til samræmis við þau lög og reglur sem nú gilda, en því miður var þeirri endurskoðun ekki lokið þegar hrunið skall á. Við sátum uppi með lögin eins og þau voru og fengum þau skilaboð frá rannsóknarnefnd Alþingis og þing- mannanefndinni að nú reyndi á þau og ég tel mig hafa farið eftir því og þingið ekki geta komist hjá því á þessum tíma,“ segir hún. Hún segir að leiðbeiningar Evr- ópuráðsþingsins gagnist vel við gerð laga um ráðherraábyrgð og breyt- ingu á stjórnarskrá landsins. Greiddi atkvæði með ályktuninni Þuríður Backman Ályktunin sem þing Evrópu- ráðsins samþykkti á föstudag byggist á skýrslu sem hol- lenski þingmaðurinn Pieter Omtzigts vann og nefnist „Að- greining pólitískrar ábyrgðar og sakarábyrgðar“. Þar fjallar hann meðal annars um landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde og fangelsun Júlíu Tí- mósjenkó, fv. forsætisráðherra Úkraínu. Skýrslunni var vísað til laga- og mannréttindanefndar þingsins en er á ábyrgð höf- undar. Þuríður Backman lagði fram athugasemdir við skýrsl- una þar. Nefndin lagði svo fram álykt- un um viðbrögð við skýrslunni sem þingið samþykkti á föstu- dag. Vísanir til Íslands voru fjar- lægðar úr fyrstu drögum ályktunarinnar í meðferð nefndarinnar. Vísanir til Ís- lands teknar út SKÝRSLA OG ÁLYKTUN EVRÓPURÁÐSÞINGSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.