Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Helgar Alvöru Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch brunch Steikt beikon Spælt egg Steiktar pylsur Pönnukaka með sírópi Grillaður tómatur Kartöfluteningar Ristað brauð Ostur Marmelaði Ávextir kr. 1740,- pr. mann Barnabrunch á kr. 870 Ávaxtasafi og kaffi eð a te fylgir. H u g sa sé r! H u g sa sé r! Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu Phone + 354 527 5000 www.grillhusid.is Ótrúlega gómsæt byrjun á góðum degi! Alla laugardaga og su nnudaga frá kl. 11.30 til kl. 14 .30 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Við höfum horft til Esjunnar í ein- hvern tíma og ákváðum að gera frumrannsókn á málinu, bæði hvað þetta myndi kosta í framkvæmd og einnig hvaða eftirspurnarþættir gætu verið fyrir svona þjónustu,“ segir Sigurður Skagfjörð Sigurðsson hjá Verkfræðistofu Jóhanns Indriða- sonar, en stofan hefur óskað eftir þremur lóðum í hlíðum Esju vegna fyrirhugaðrar farþegaferju. Um- sóknin var tekin fyrir á fundi borgar- ráðs í síðustu viku og var í framhald- inu send til þriggja nefnda innan borgarinnar til umsagnar. Sigurður og samstarfsmenn hans hafa farið víðsvegar um heiminn og skoðað farþegaferjur sem þessar, svokallaða kláfa, og athugað hvernig þær falla að íslenskum aðstæðum. „Við skoðuðum út frá ferðaþjón- ustunni á Íslandi hvaða afþreyingar- möguleikar eru á höfuðborgarsvæð- inu. Niðurstaðan var sú að ekki er mikil vöruþróun á þeim markaði og því fannst okkur vanta afþreyingar- möguleika sem héti fjöll og útsýni og fórum þá að skoða þessi mál í fram- haldi af því. Áhugi Íslendinga á úti- vist og fjallgöngu hefur aukist mikið ásamt auknum ferðamannafjölda hingað til lands og því teljum við vera markað fyrir þessu,“ segir Sig- urður. Veðurfar skiptir verulegu máli Sigurður segir að undanfarna sex mánuði hafi stofan fylgst með skýja- fari, veðri og vindum við Esjuna, en miklu máli skipti að gera vandaða veðurrannsókn. Hann segir að ef leyfi fáist frá borginni muni þeirra fyrsta verk vera að ráðast í veður- rannsóknirnar, en verkið veltur á því hvort þær verði hagstæðar eða ekki. Gert er ráð fyrir að kláfarnir verði að norskri fyrirmynd, með tveimur burðarvírum og einum togvír, sem gerir þá stöðugri en ella, en Sigurður telur það nauðsynlegt í íslensku veðurfari. Veitingastaður á tindi Esjunnar Kláfurinn mun taka 30 manns, en hver ferð mun taka um fjórar mín- útur. „Við förum líklega upp hjá gróðrarstöðinni við rætur fjallsins en höldum í austurátt þannig að við erum ekki fyrir ofan göngustígana eða neitt slíkt. Þegar upp er komið er ætlunin að hafa þar veitingastað og þjónustu sem þar þarf að vera, en fólk þarf að geta fengið sér kaffi og næringu og jafnvel meira en það,“ segir Sigurður. Ef allt gengur að óskum er áætlað að verklok verði í upphafi árs 2016, en reksturinn myndi hefjast í maí- mánuði þar á eftir. Vilja fá farþegaferju í hlíðar Esjunnar  Enn einn möguleiki í afþreyingarflóru ferðamanna Fyrirsögn hér Fyrirhuguð leið kláfsins Gönguleið Tölvumynd/Batteríið arkitektar Útsýnispallur Ein af þeim hugmyndum sem uppi eru á Verkfræðistofunni er að setja upp útsýnispall við endastöð farþegaferjunnar. Gönguleið Fyrirhuguð leið kláfsins er austan við gönguleiðina vinsælu. María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Formenn stúdentafélaga funduðu með Illuga Gunnarssyni mennta- málaráðherra í gær. Illugi segir fundinn hafa verið gagnlegan og að mikilvægt hafi verið að hitta fulltrúa námsmanna milliliðalaust. „Stúdent- ar höfðu undirbúið sig vel fyrir fundinn og komu með margar ábendingar sem vert er að hlusta á. Næstu dagar fara í það að skoða til- lögur námsmanna og athuga hvort hægt sé að finna einhvern flöt á þessu máli. Þó liggur ljóst fyrir að námsframvindukrafan er sambæri- leg við það sem gengur og gerist á Norðurlöndum og var hér á Íslandi allt fram til ársins 2007. Þá má ekki gleyma því að þessi aðgerð skapar svigrúm til þess að hækka fram- færslugrunn námslána sem er ánægjulegt en stúdentar hafa kraf- ist þess.“ Niðurskurðartillögur standa María Rut Kristinsdóttir, formað- ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir það mikilvægt að hafa fengið að koma sjónarmiðum stúdenta á framfæri við menntamálaráðherra. „Við fórum yfir tillögur okkar auk þess sem við afhentum mennta- málaráðherra, framkvæmdastjóra og stjórnarformanni LÍN og aðstoð- armanni ráðherra bók sem við lét- um binda inn, en hún hefur að geyma allar reynslusögur náms- manna sem birtust á Facebook-síð- unni okkar. Að öðru leyti var engin ákvörðun tekin á fundinum og því standa enn þær tillögur um niður- skurð. Það verður stjórnarfundur hjá LÍN á miðvikudag og málin munu skýrast eftir þann fund. Við bindum vonir við að hlustað verði á okkar hlið máls og þá aðallega það sem snýr að kröfunni um 22 eininga námsframvindu. Við erum í grunn- inn alfarið á móti þessum niður- skurðartillögum en höfum þrátt fyr- ir það lagt áherslu á að benda á önnur úrræði.“ Námsmenn fund- uðu með Illuga  Mál LÍN skýrast á næstu dögum Illugi Gunnarsson María Rut Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.