Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
• Gler og umgjörð frá 16.900 kr.
plast með glampavörn
• Margskipt gleraugu frá 39.900 kr.
umgjörð og gler.
• Verðlaunaglampavörn frá NEVA MAX,
150% harðari, sleipari og þægilegri í
þrifum 8.000 kr.
Öll verð miðast við plast-gler
SJÓNARHÓLL
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi
Við höfum lækkað gleraugnaverðið
Nú geta ALLIR
keypt sér gleraugu
Reykjavíkurvegur 22, Hafnarfirði | S. 565 5970 | sjonarholl.is
Margverðlaunuð
frönsk gæðagler
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Nick Cave og hljómsveitin The Bad
Seeds tóku tónlistarhátíðina All To-
morrow’s Parties með trompi. Alveg
frá því að hann stökk inn á sviðið á
laugardagskvöldið var ljóst að þetta
yrði ekkert venjulegt kvöld. Cave
lék á als oddi, talaði til áhorfenda –
ráðlagði meira að segja einum að
uppfæra snjallsímann sinn í texta-
spuna.
Lagður hafði verið rani út frá
sviðinu út í salinn fyrir Cave. Eins
og fram hefur komið í fréttum og
sást á myndskeiði á mbl.is datt hann
af rananum niður á gólf í upphafi
tónleikanna. Hljómsveitin hélt
áfram að leika eins og ekkert hefði
ískorist, en augljóst var að ekki var
allt með felldu þegar öryggisvörður
kom hlaupandi og stökk niður til
hans. Nokkur löng augnablik liðu
áður en Cave kom hlaupandi inn á
sviðið aftur, hóf upp raust sína á ný
og færðist í aukana ef eitthvað er.
Honum virtist ekki hafa orðið meint
af byltunni, en hafði þó á orði milli
laga undir lokin að sig sárverkjaði í
afturendann.
Sló sjálfum sér við
Cave fór vítt og breitt um feril
sinn, kyrjaði dimma og drungalega
texta sína af fítonskrafti á meðan
hljómsveitin The Bad Seeds með
hinn stríðhærða Warren Ellis í far-
arbroddi ýmist með fiðlubogann á
flugi eða standandi upp úr hálsmál-
inu eins og hann hefði orðið fyrir
árás indíána lék sem andsetinn,
fylgdi söngvaranum hvert á land
sem hann vildi fara, um sögusvið
farandpredikara, loddara, fjölleika-
húsmanna og morðingja, inn í
myrkustu öngstræti og um ögn
bjartari lendur þar sem vonarglæta
náði að brjótast í gegn; og flutn-
ingur hennar féll að tónlistinni eins
og hanski að hönd, hvort sem söngv-
arinn hvíslaði í hljóðnemann eða
þandi raddböndin sem mest hann
mátti.
Cave náði salnum strax á sitt
vald, áhorfendur grétu, hlógu og
dönsuðu. Eftir að hafa heyrt Cave í
þessum ham verða plöturnar eins
og bergmál, frekar en að sýna hvers
hann er megnugur, eins og skuggi
af frummynd, afrit en ekki frumrit.
Cave hefur áður komið til Íslands
og ekki alltaf verið með á nótunum.
Í viðtali þegar hann kom hingað í
annað sinn var hann svo út úr heim-
inum að þegar hann var spurður um
fyrri heimsókn sína þvertók hann
fyrir að hafa nokkru sinni komið áð-
ur til Íslands. Að þessu sinni var
Cave með algera stjórn á hlutunum.
Skrifari heyrði í nokkrum tónleika-
gestum, sem áttu það sammerkt að
hafa séð Cave oftar en einu sinni áð-
ur á tónleikum, og voru þeir á einu
máli um að þeir hefðu aldrei séð
hann í jafn góðu formi. Þegar Cave
fór af sviðinu brutust út dynjandi
fagnaðarlæti og eftir að hafa látið
ganga nokkuð á eftir sér steig
hljómsveitin á svið að nýju og tók
eitt aukalag.
Fláráður farandklerkur
Megindagskráin var í gömlu flug-
skýli á hinu yfirgefna varnarliðs-
svæði á Miðnesheiði. Staðurinn er
tilvalinn fyrir dagskrá af þessu tagi.
Í flugskýlinu er nú kvikmyndaver,
sem ber nafnið Atlantic Studios. Í
gamla kvikmyndahúsinu á vellinum,
Andrews Theatre, tróðu einnig upp
hljómsveitir auk þess sem þar voru
sýndar bíómyndir. Á laugardags-
kvöldið valdi leikkonan Tilda Swin-
ton, sem stelur senunni í myndbandi
Davids Bowies, The Stars Are Out
Tonight, myndirnar. Þegar skrifari
leit þar inn var að hefjast myndin
The Night of The Hunter, óhugn-
anleg mynd þar sem Robert Mitch-
um leikur fláráðan farandklerk, sem
hefur illt í hyggju. Mitchum var svo
ógnvekjandi að það var léttir að
koma út í bjarta sumarnóttina.
Í kvikmyndahúsinu náði skrifari
fyrr um daginn að hlusta á for-
vitnilega raftónlist Valgeirs Sig-
urðssonar og seiðandi tóna Amiinu.
Nick Cave var snemma á dagskrá
kvöldins og enginn öfundsverður af
að koma í kjölfar hans. Hjaltalín
fékk það vanþakkláta hlutverk og
komst eins vel frá því og búast má
við, Högni Egilsson hefur mikla
nærveru á sviðinu, Sigríður Thorla-
cius syngur eins og engill og hljóm-
sveitin þétt og kraftmikil.
Hljómsveitin Deerhoof hefur far-
ið vaxandi. Meðlimirnir eru frá San
Francisco utan söngvarinn og
bassaleikarinn Satomi Matsuzaki,
sem er frá Tókýó. Tónlistin er hröð
og grípandi, villt og gáskafull.
Hljómsveitar Thurstons Moores,
Chelsea Light Moving, hafði verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Moore var forsprakki hinnar áhrifa-
miklu hljómsveitar Sonic Youth
ásamt Kim Gordon. Þegar slitnaði
upp úr sambandi þeirra var hljóm-
sveitin sett á ís. Moore stofnaði
hljómsveitina Chelsea Light Moving
í fyrra. Nafnið vísar ekki til flökku-
ljóss í hverfinu Chelsea í New York,
heldur flutningafyrirtækis, sem tón-
skáldið Philip Glass stofnaði til að
eiga fyrir salti í grautinn áður en
frægð og frami gerðu honum kleift
að lifa af listinni. Moore er spor-
göngumaður bandarísks pönks og
hættir sér ekki langt frá upprun-
anum með hinni nýju hljómsveit.
Tónlistin var kraftmikil og hrá og
lögin af ýmsum toga, eitt til stuðn-
ings rússnesku hljómsveitinni Pussy
Riot í prísund sinni, annað innblásið
af skáldinu William S. Burroughs.
Synir Lees Marvins
Áður en Cave tróð upp spilaði
hljómsveitin Sqürl, tríó kvikmynda-
leikstjórans Jims Jarmusch. Meg-
instefið var þungur rafmagnsgít-
arniður, sem á köflum minnti á
tímamótaplötu Lous Reeds, Metal
Machine Music. Ekki amalegt.
Þess má geta að þrír af flytj-
endum kvöldsins eru sagðir vera fé-
lagar í sama leynifélaginu, sem ber
heitið Synir Lees Marvins (Sons of
Lee Marvin). Eina skilyrðið fyrir
inngöngu er að líta þannig út að
ekki sé útilokað að maður gæti verið
sonur leikarans, sem þekktur var
fyrir að leika harðsoðnar hetjur.
Jarmusch stofnaði leynifélagið,
Cave er sagður vera félagi og sömu-
leiðis Moore að því að hermt er.
Þegar allt er talið var All Tomor-
row’s Parties frábær tónlistarveisla
þar sem Nick Cave stóð upp úr með
stórkostlegum tónleikum, sem slógu
út allar veislur morgundagsins.
Kraftmikill Cave fór á kostum
Funheitur Nick Cave lagði salinn að fótum sér á frábærum tónleikum á há-
tíðinni All Tomorrow’s Parties og galdraði fram ógleymanlega stemningu.
Ljósmynd/Arnar Bergmann Sigurbjörnsson
Tignarlegur Söngvarinn Högni Egilsson fer á flug á tónleikum Hjaltalín.
Fjör Mikið gekk á þegar sveitin Æla tók nokkur lög undir berum himni.
Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s Parties