Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.07.2013, Blaðsíða 4
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Hreinsun eftir olíuslysið við Blá- fjallaveg í maí síðastliðnum, þegar 600 lítra dísilolíutankur féll neðan úr þyrlu yfir bílastæði við veginn, gekk vonum framar og má það þakka skjótum viðbrögðum, góðri fram- kvæmd og heppilegum aðstæðum. Þetta kemur fram í skýrslu heil- brigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um slysið, sem varð þegar þyrla fyrirtækisins Reykjavík Helicopters var að flytja olíu yfir í aðstöðu við móttöku ferða- manna við Þríhnúk. Í skýrslunni segir að svo virðist sem krókur þyrlunnar hafi opnast, en lokun hans er rafræn og fer fram í þyrlunni. Tankurinn, sem var sam- kvæmt sjónarvottum í 6-8 metra hæð þegar hann féll, sprakk þegar hann lenti á jörðinni, með þeim af- leiðingum að öll olía flæddi úr hon- um. Brugðust strax við „Þegar það verður mengunarslys á að bregðast strax við og Þríhnúkar gerðu það,“ segir Guðmundur H. Einarsson, framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópa- vogssvæðis, og á þar við fyr- irtækið sem rekur ferðaþjón- ustu við Þríhnúkagíg. Samkvæmt skýrslunni köll- uðu fulltrúar fyrirtækisins um- svifalaust til verktaka með gröfu og vörubíla og voru um 38 tonn af möl, sandi, mold og snjó flutt af svæðinu til förgunar hjá Sorpu. Það er mat Heilbrigðiseftirlitsins að alls hafi 50-100 lítrar af olíu runn- ið niður í jörð eða gufað upp, en Guðmundur segir um hámarkstölur að ræða. Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykja- víkur, segir hins vegar að mælingar OR á jarðveginum, sem fluttur var af svæðinu, bendi til þess að meira af olíunni hafi endað ofan í jörðu. Verst ef enginn segir frá Í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins er fjallað um olíuflutninga og -notkun á fjarsvæðum vatnsverndar, en þar segir m.a. að skíðasvæði höfuðborg- arsvæðisins séu þar stórtækust, með árlega notkun upp á 20-25 tonn af dísilolíu og á annað tonn af bens- íni. Þar segir einnig að vegir í Blá- fjöllum uppfylli ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til nýrra vega: „Þeir eru víða hreinlega hættulegir og það væri nánast hending ef tækist að hreinsa upp olíu að einhverju ráði ef slys verða.“ Guðmundur segir Heilbrigðiseft- irlitið hafa lagt áherslu á að Blá- fjallavegurinn verði endurhannaður og endurbættur og að menn haldi vöku sinni yfir stækkun suðvest- urlína, þvert yfir grannsvæði vatns- bóla. Auknar kröfur hafi verið gerð- ar um að allar framkvæmdir fari fram með opnum hug, á besta árs- tíma og í björtu. „Við verðum að vinna út frá því að vatnsbólin njóti vafans,“ segir Guð- mundur, en mesta hættan sé sú að olíuslys verði og engin tilkynni um það. Morgunblaðið/Styrmir Kári Umhverfisslys Samkvæmt skýrslunni var það mat manna að sú olía sem ekki tókst að moka upp myndi með tím- anum seytla niður en að hún myndi a.m.k. að hluta til brotna niður á leiðinni niður jarðlögin. Telja að krókur þyrl- unnar hafi opnast  Segja 50-100 lítra hafa farið ofan í jörðu  Hreinsun gekk vel 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Róbert Arnfinnsson leikari lést í fyrrinótt, á nítugasta aldursári. Hann fæddist í Leipzig í Þýskalandi 16. ágúst 1923 og var skírður Jón Róbert Arnfinnsson. Síðasta hálfa árið var hann til heimilis á dval- arheimilinu Grund en fyrir þann tíma á heim- ili sínu í Kópavogi. Ró- bert var landsþekktur leikari og lék í fjölda leikrita, sjónvarpsþátta og kvikmynda á yfir sextíu ára leikferli. Róbert lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Reykjavík, Ingimarsskólanum, árið 1942. Þá út- skrifaðist hann sem leikari frá Leik- skóla Lárusar Pálssonar árið 1945 auk þess sem hann nam við leiklist- arskóla Konunglega leikhússins og í einkatímum í Kaupmannahöfn 1946. Áður en hann lagði leiklistina fyrir sig stundaði Róbert verslunarstörf og fleira í Reykjavík, en auk þess hafði hann aukastarf af hljóðfæraleik allt til ársins 1960. Frá árinu 1944 lagði Róbert stund á leiklistina, á árunum 1944-1949 hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Fjalakett- inum og Bláu stjörnunni en frá 1949 hjá Þjóðleikhúsinu. Róbert lék um 230 leiksviðs- hlutverk í og utan Þjóðleikhússins, m.a. í Kaupmanninum í Feneyjum, Fjalla-Eyvindi, Íslandsklukkunni, Amadeusi, Tópas, Fást, Nashyrning- unum, Sólarferð, Túskildingsóper- unni, Fiðlaranum á þak- inu, Mávinum og Heimkomunni. Þá lék hann yfir 600 hlutverk í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum, m.a. í Brekkukotsannál, Paradísarheimt, 79 af stöðinni og Fíaskó. Á leikferli sínum hlaut Róbert ýmis verð- laun, meðal annars Silf- urlampa Félags ís- lenskra leikdómara fyrir titilhlutverk í Góða dátanum Svejk árið 1956, fyrir Púntila í Púntila bóndi og Matti vinnumaður og fyrir Tevje mjólkurpóst í Fiðl- aranum á þakinu árið 1969. Árið 2007 hlaut Róbert svo heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands á Grímu- verðlaununum. Þá var Róbert sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1970, gullmerki Félags íslenskra leik- ara árið 1971 og fékk viðurkenningu ríkissjóðs Íslands árið 2000 fyrir leik- listarstarf í Þjóðleikhúsinu í 50 ár. Ennfremur var Róbert kennari við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árin 1958 til 1960 og Leiklistarskóla Ís- lands árið 1990. Þá vann hann ýmis störf ásamt konu sinni tengd garð- yrkju og náttúruvernd, svo sem gjör- nýtingu jurtaleifa til eigin moldar- gerðar og garðrækt sem þau hlutu viðurkenningu fyrir. Róbert lætur eftir sig eiginkonu, þrjár dætur, barnabörn og barna- barnabörn. Andlát Róbert Arnfinnsson Fylgi við Framsóknarflokkinn mælist 20% samkvæmt nýjum Þjóð- arpúlsi Gallup. Þetta er einu pró- sentustigi minna fylgi en í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkur bætir lítillega við sig og mælist með 27% fylgi. Framsókn fékk 24% fylgi í kosningunum og Sjálfstæðisflokk- urinn fékk 27%. Fylgi Samfylkingar mælist nú 15% og VG 13%, í báðum tilfellum hafa flokkarnir bætt við sig tveim- ur prósentustigum. Björt framtíð mælist með 10% fylgi og Píratar með 7%. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar. Hann hefur farið úr 62% í 58%. Fylgi Framsóknar fer úr 24% í 20% mið- að við Þjóðarpúlsinn „Það var haldinn fundur hjá okkur síðastliðinn fimmtudag þar sem samþykkt var að undirrita viljayfir- lýsinguna,“ segir Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavík- ur. Hann undirritaði fyrir hönd fé- lagsins viljayfirlýsingu um gerð samnings við Sjúkratryggingar Ís- lands, en samningar hafa verið laus- ir allt frá mars 2011. Hann segir að skiptar skoðanir hafi verið meðal lækna um það hvort hagsmunum þeirra sé betur borgið innan samn- inga eða utan, en að slíkt sé eðlilegt. „Það er hins veg- ar gert ráð fyrir samningum í lög- um. Því má segja að samningur sé hið eðlilega ástand.“ Best fyrir sjúklinga „Það liggur fyrir að samningsleysi er ekki gott fyrir sjúklingana, en með samningi gætum við greitt leiðina fyrir því að fólk geti notfært sér heilbrigðis- þjónustuna betur óháð efnahag,“ segir Steinn, en í viljayfirlýsingunni kemur fram að hlutdeild sjúklinga í kostnaði við heilbrigðisþjónustu hefur aukist á meðan engir samn- ingar voru í gildi. Munu gera ákveðnar kröfur Steinn segir ljóst að í nýjum samningum verði að hækka verð á einingum sem læknar fái greitt eft- ir. „Einingaverðið hefur ekki hækk- að í 4-5 ár, og við gáfum eftir tölu- verða samningsbundna hækkun árið 2009 vegna efnahags- ástandsins. Það verður auðvitað að hækka bara í samræmi við skyn- samleg viðmið.“ Einnig segir Steinn að eðlilegt sé að ákveðnar nýjungar verði settar í samninginn eins og til dæmis varð- andi tækjabúnað. „Það er ljóst að tækjabúnaður hefur hækkað mikið í verði undanfarin ár og mörg af þeim tækjum sem við notum eru komin til ára sinna. Þetta verður að endur- nýja með tímanum.“ bmo@mbl.is Samningur eðlilegt ástand  Gert ráð fyrir samningum í lögum  Skiptar skoðanir á viðræðum við Sjúkra- tryggingar Íslands meðal sérgreinalækna  Vilja eðlilega hækkun á einingaverði Steinn Jónsson Í skýrslunni kemur fram að Heilbrigðiseftirlitið stöðvaði áfyllingu á þyrl- una á svæðinu daginn sem slysið varð og að greinilegt hafi verið að Reykjavík Helicopters hafi ekki verið kunnugt um reglur sem giltu innan vatnsverndarsvæðisins. Þyrla fyrirtækisins er skráð í Danmörku og að sögn Þor- kels Ágústssonar, rannsóknarstjóra hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, er rannsóknin á tildrögum þess að krókur þyrlunnar opnaðist á forræði þarlendra rannsóknaryfir- valda. Þorkell segist hafa verið í sambandi við flug- málastjórnina í Danmörku en enn ekki fengið svör um stöðu mála. Guðmundur segir að með tilliti til slyssins vilji Heilbrigðis- eftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis að önnur flutn- ingsleið sé notuð en þyrluflug við flutning á olíu um svæðið. Þekktu ekki reglurnar RANNSÓKNIN Á FORRÆÐI YFIRVALDA Í DANMÖRKU 600 lítrar af olíu láku á bílastæði. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Wisa innbyggðir WC kassar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum 10 ár á Íslandi – veldu gæði XS kassi 23.990 Argos Hnappur hvítur 3.190 Excellent kassi Front & Top 83cm 25.990 Ýmsar gerðir fáanlegar af hnöppum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.