Morgunblaðið - 02.07.2013, Síða 11

Morgunblaðið - 02.07.2013, Síða 11
Gangið um Viðey í kvöld og fræðist um skipskaða Aldrei er of oft minnt á náttúruperluna Viðey, sem er í hjarta Reykjavíkur. Þar er hægt að upplifa þúsund ára sögu, njóta einstakrar náttúru og gæða sér á veitingum í hinni sögufrægu Viðeyjarstofu sem er elsta steinhús landsins. Í kvöld mun leiðsögumaður úr Sjóminjasafni Reyjavíkur leiða göngu um Viðey og vekja þannig til lífsins sögurnar um skipskaða nálægt Viðey. Táknmáls- túlkur verður með í för svo enn fleiri fái notið göngunnar. Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Margar sagnir eru til af skipsköðum á sundunum í Kollafirði en þeirra þekkt- astar eru Ingvarsslysið 7. apríl 1906 og strand tundurspillisins Skeena hinn 24. október 1944. Á þriðjudagskvöldum þegar göngur eru í Viðey eru aukaferðir með Viðeyj- arferjunni frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15 Leiðsögumaður úr Sjóminjasafni Reyjavíkur leiðir göngu Viðey Ævinlega skemmtileg eyja að heimsækja og gaman að ganga um. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 eins ógnvekjandi. Ég veit um marga sem þorðu þessu ekki í fyrstu sökum lofthræðslu en voru fljótir að skipta um skoðun. Það er líka gott að byrja að fljúga sem farþegi, með kennara með þér,“ segir hann. Sigraði á Íslandsmótinu „Það er hægt læra að fljúga hjá Fisfélagi Reykjavíkur. Þeir eru með árleg námskeið fyrir áhugasama. Það eru um það bil tuttugu manns að útskrifast núna. Það eru yfir hundrað skráðir í þetta félag en það eru kannski svona þrjátíu til fjörutíu sem eru virkir meðlimir. Þetta er ágætis samfélag. Þetta er mjög vin- sælt sport erlendis og ef maður er til dæmis í Ölpunum þá sér maður allt- af einhverja að svífa,“ segir Tomasz. Hann tók sjálfur nýlega þátt í keppni á Ítalíu og náði góðum ár- angri. „Ég var í þriðja sæti í mínum flokki. Þetta var fyrsta svifvængs- keppni sem ég hef tekið þátt í og hún var frábær. Veðrið var reyndar ekkert rosalega gott og maður þurfti að beita mikilli taktík til þess að komast í mark. Það er svolítið erfitt að útskýra hvernig keppnin fer fram, það er tímataka, fjarlægð flugsins og fleira sem ræður því í hvaða sæti þú lendir. Ég spáði lítið í tímann, ég lagði meiri áherslu á að lenda á réttum stað. Það tókst ágæt- lega. Annars er vængurinn sem ég nota ekkert svakalega góður keppn- isvængur, hann er meira bara öruggur og þægilegur í notkun,“ segir Tomasz. Kappinn tók einnig þátt í Íslandsmótinu sem haldið var fyrir skömmu og hreppti þar fyrsta sæti. „Fyrst var keppt á Sandfelli og svo var haldið til Búrfells. Það voru tæplega þrjátíu manns sem tóku þátt. Það var gaman að vinna þessa keppni, ég átti engan veginn von á því. Félagi minn, Szczepan, er einn af þeim bestu á Íslandi í þessu sporti en hann fórnaði þessum Íslands- meistaratitli til þess að bæta Ís- landsmetið í langflugi en hann lenti ekki á réttum tíma og sveif 52 kíló- metra í staðinn,“ segir Tomasz. Læra að lesa náttúruna „Ég var einu sinni á Esjunni og það skall á myrkur og talsverður vindur. Ég stefndi bara á næsta ljós sem var á einhverju bílastæði. Það getur verið mjög hættulegt að svífa í myrkri því maður sér til dæmis ekki rafmagnslínur og þess háttar. Það er heldur ekki gott að fljúga í mikilli rigningu. Vængurinn getur þá fyllst af vatni og orðið óstöðugur fyrir vik- ið,“ segir Tomasz. Hann segir að iðkendur verði að vera á varðbergi gagnvart náttúruöflunum og tekur þar hafgoluna við Búrfell sem dæmi. „Við sjáum stundum fugla í há- loftunum sem eru að nota sama upp- streymi og við. Við notum fugla líka til að sjá hvar uppstreymið er. Mað- ur er alltaf úti í náttúrunni og maður lærir að lesa hana. Það er í raun grundvöllurinn áður en byrjað er að fljúga, að læra að lesa náttúruna. Þetta er svona bónus við þessa íþrótt, maður fer að taka meira eftir og lesa í veður og vinda,“ segir Tom- asz að lokum. Ljósmyndir/Tomasz Chrapek Ísjaki Tomasz er áhugaljósmyndari og er iðinn við að taka ljósmyndir af umhverfinu á meðan hann svífur. Svif Tomasz er nokkuð reyndur.Loftfimleikar Svifvængsfólkið svífur mikið í kringum höfuðborgina. Menningarhátíðin Brú til borgar verð- ur haldin á Úlfljótsvatni dagana 6.-7. júlí. Hollvinasamtök Grímsness hafa staðið að hátíðinni undanfarin ár en þetta er í fyrsta skipti sem hún er haldin á Úlfljótsvatni. Þegar staðsetn- ing hátíðarinnar var ljós var haft sam- band við Skógræktarfélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta til sam- starfs um dagskrá sem helguð yrði sögu jarðarinnar og kynningu á starf- inu þar í nútíð og framtíð. Skógræktarfélagið er að taka upp samstarf við erlenda munkareglu og af því tilefni mun kaþólski biskupinn messa. Svo skemmtilega vill til að Úlf- ljótsvatnskirkja er hundrað ára um þessar mundir og því mun biskup Ís- lands einnig messa. Það er sjaldgæft, ef ekki einsdæmi hér á landi, að tveir biskupar messi á sömu hátíðinni. Á laugardeginum, eftir messu kaþ- ólska biskupsins, verða flutt fróðleg erindi. Jóhann Óli Hilmarsson talar um fuglalífið, Jóhannes Sturlaugsson um urriðann og Bjarni F. Einarsson um fornminjar á svæðinu og boðið verður upp á gönguferð um nágrennið. Á sunnudeginum klukkan 12 hefst dagskráin með messu þar sem frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup pre- dikar. Að messu lokinni er boðið upp á létta hressingu í Strýtunni, athafna- svæði skátanna og þar heldur dag- skráin áfram Skátastarf hefur verið á Úlfljóts- vatni í um sjötíu ár og Björgvin Magn- ússon fyrrverandi skólastjóri sem starfaði þar um árabil, rifjar upp minningabrot ásamt dóttur sinni, Eddu Björgvinsdóttur leikkonu. Elva Brá Jensdóttir íslenskufræðingur seg- ir frá ýmsum endurminningum afa síns sem ólst upp á Úlfljótsvatni á fyrri hluta síðustu aldar. Tónlistin verður á sínum stað með vísan í skáld- in sem ólust upp við Sogið. Dag- skránni á sunndag lýkur síðan með rútuferð um efri hluta Grafningsins þar sem ekið verður frá Úlfljótsvatni að Nesjavöllum og til baka. Frekari upplýsingar um dagskrána má nálg- ast á hollvinir.blog.is. Úlfljótsvatnshátíð um næstu helgi Hátíð Fræðsluerindi um fuglalíf og fornleifagröft, tónlistaratriði, minningar- brot ábúenda og fyrrverandi starfsmanna verða m.a. á dagskránni um helgina. Tveir biskupar messa Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp Skannaðu kóðann til að nálgast dag- skrá hátíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.