Morgunblaðið - 02.07.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
VINSÆLA
ARWETTA CLASSIC
GARNIÐ
í yfir 50 fallegum litum
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
Opnunartími í sumar:
Mánud - föstud 12-18. Lokað á laugardögum í sumar
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA
Egypski herinn gaf Mohamed
Morsi, forseta Egyptalands, í gær
tvo sólarhringa til að bregðast við
kröfum almennings. Ella myndi her-
inn grípa í taum-
ana, leggja fram
eigin áætlun og
tilkynna aðgerðir
til að framfylgja
henni. Milljónir
manna mótmæltu
í Egyptalandi á
sunnudag þegar
ár var liðið frá
því að Morsi
komst til valda í kosningum.
Mótmælendur á Tharir-torgi í
Kaíró fögnuðu yfirlýsingunni, en
viðbrögð stuðningsmanna Músl-
ímska bræðralagsins, flokks Morsis,
voru öllu fálegri. Í yfirlýsingu frá
flokknum sagði að verið væri að fara
yfir yfirlýsingu hersins.
Skýr krafa til forsetans
Fréttastofan AFP hafði eftir
Hassan Nafea, prófessor í stjórn-
málafræði við Kaíró-háskóla, að úr-
slitakostirnir væru skýr krafa til
forsetans um að stíga til hliðar og
boða til kosninga.
Grasrótarsamtökin Tamarod, sem
stóðu á bak við mótmælin á sunnu-
dag, fögnuðu yfirlýsingu hersins og
sögðu að hann hefði tekið sér stöðu
með fólkinu. Hamdeen Sabbahi,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
hvatti herinn til að skerast í leikinn
ef Morsi neitaði að fara frá, en sagði
að best væri ef hann færi sjálfvilj-
ugur.
Andstæðingar Morsis saka hann
um að svíkja byltinguna með því að
safna völdum á hendur íslamista og
valda hruni í efnahagslífinu. Stuðn-
ingsmenn hans segja að hann hafi
erft mörg vandamál frá spilltum
valdhöfum og ætti að fá tækifæri út
kjörtímabilið, sem lýkur 2016.
Egypski herinn
setur úrslitakosti
Mohamed Morsi
Ólga í Egyptalandi
» Tamarod, sem merkir upp-
reisn á arabísku, kveðst hafa
safnað 22 milljónum undir-
skrifta undir kröfu um kosn-
ingar.
» Egypski herinn var við völd
eftir að Hosni Mubarak var
steypt af stóli forseta 2011.
» Í lok júní bar Mohamed
Morsi sigur úr býtum í forseta-
kosningum, sem þóttu fara vel
fram.
Edward Snowden, sem lak gögnum
um tölvunjósnir Bandaríkjamanna
og hefur verið innlyksa á Sjeremetj-
evo-flugvelli í Moskvu undanfarna
daga, hefur sótt um hæli í Rússlandi.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
sagði á blaðamannafundi í gær að
Snowden væri velkomið að dvelja í
landinu svo framarlega sem hann
hætti að leka upplýsingum, sem
„skaða okkar bandarísku banda-
menn, hversu undarlega sem það
kann að hljóma af mínum vörum“.
Heimtar að njósnum linni
Upplýsingar frá Snowden um
njósnir Bandaríkjamanna um sendi-
skrifstofur Evrópusambandsins
hafa valdið uppnámi. „Við getum
ekki unað svona framkomu milli vina
og bandamanna,“ sagði François
Hollande, forseti Frakklands, við
blaðamenn í Frakklandi í gær. „Við
förum fram á að þessu verði hætt nú
þegar.“ Hann sagði að krefja þyrfti
Bandaríkjamenn um skýringar og
bætti við að ekki gæti verið um nein-
ar samningaviðræður eða samskipti
að ræða á neinu sviði fyrr en fengist
hefði trygging fyrir því að njósn-
unum yrði hætt. Hollande vísaði þar
augljóslega til fyrirhugaðra við-
ræðna við Bandaríkin, sem senn
eiga að hefjast um fríverslunar-
samning.
Merkel mætir tortryggni
Sigmar Gabriel, leiðtogi þýskra
sósíaldemókrata, notaði uppljóstr-
anirnar til að gagnrýna Angelu Mer-
kel kanslara. Kvað hann margt
benda til þess að Merkel hefði vitað
af umfangsmiklu eftirliti Banda-
ríkjamanna og Breta.
„Viðbrögð kanslarans vekja grun-
semdir um að hún hafi vitað af
njósnunum … að minnsta kosti í
grundvallaratriðum,“ sagði hann í
grein í dagblaðinu Frankfurter
Allgemeine Zeitung.
Merkel hvatti til þess þegar Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti kom í
opinbera heimsókn fyrir mánaðamót
að fundið yrði jafnvægi á milli þess
að gæta öryggis og friðhelgi einka-
lífsins. Í gær sagði talsmaður henn-
ar að hún myndi fara fram á nánari
samræður við Obama um þær full-
yrðingar um njósnir sem síðan hafi
komið fram, þar á meðal hleranir hjá
ESB, með þeim orðum að það yrði
að „koma á trausti á ný“, enda væri
„kalda stríðinu lokið“.
Kosningahiti er kominn í pólitík-
ina í Þýskalandi þar sem verður
gengið til atkvæða 22. september.
AFP
Hæli Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í gær að Rússar hefðu aldrei framselt nokkurn mann og væri Edward
Snowden velkomið að dvelja í landinu ef hann hætti að leka upplýsingum um njósnir Bandaríkjamanna.
Pútín tekur vel í ósk
Snowdens um hæli
Njósnir Bandaríkjamanna um ESB valda uppnámi