Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
Aðra vikuna í röð er Súpermann-
myndin Man of Steel mest sótta
kvikmyndin í íslenskum kvik-
myndahúsum, en rúmlega 20 þús-
und manns hafa séð hana til þessa.
Það slagar hátt upp í aðsóknina á
Hangover 3, en á þeim fimm vikum
sem myndin hefur verið í sýningu
hafa tæplega 22 þúsund manns séð
hana.
Þrjár nýjar myndir rata inn á
listann að þessu sinni; spennumynd-
in White House Down, gaman-
myndin The Big Wedding og
spennutryllirinn The Purge.
Bíóaðsókn helgarinnar
Bíólistinn 28.- 30. júní 2013
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Man Of Steel
White House Down
The Big Wedding
Pain And Gain
Internship, The
Epic
Now You See Me
The Purge
The Iceman
Hangover 3
1
Ný
Ný
2
4
6
3
Ný
5
7
2
Ný
Ný
3
3
5
4
Ný
2
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Súpermann ennþá vin-
sælastur hjá landanum
Súpermann Henry Cavill fer með
hlutverk ofurmennisins.
Ívar Schram á sér nokkra söguí íslensku hiphopi, var meðalliðsmanna í Original Melodysem sendi frá sér fyrstu skíf-
una fyrir sjö árum. Þá notaði hann
listamannsnafnið Imagery en hefur
nú tekið upp nafnið I.M.M.O. Taktar
á plötunni eru
flestir úr smiðju
Helga Péturs
Lárussonar sem
notar listamanns-
nafnið Fonetik
Simbol og var
líka áður í Orig-
inal Melody, en Logi Pedro Stef-
ánsson, Pedro Pilatus, vinnur eitt
lag með Ívari og gerir það af-
skaplega vel.
Barcelona hefst með frásögn Ív-
ars af grimmilegri og tilefnislausri
árás sem hann varð fyrir á ferðalagi
í Barcelona en vindur svo áfram í
pælingar hans um lífið og tilveruna í
bland við hæfilegan skammt af dissi
um aðra rappara og lofgjörð um eig-
ið ágæti.
Það er lítið um lifandi hljóðfæra-
leik á skífunni, en sópransaxófón
bregður fyrir í „You & I“ og smekk-
lega notaður (les: lítið) og einnig er
gítarspil vel útfært. Önnur hljóð eru
úr sarpinum og víða afskaplega vel
af hendi leyst. Þannig er lagið
„Pocket Full of Dimes“ einkar
skemmtilegt, „On & On“ líka vel
heppnað lag þar sem Valborg Ólafs-
dóttir syngur frábærlega eins og
hennar er von og vísa.
Flæðið hjá Ívari er gott og sam-
vinna hans og Helga Péturs ber
ríkulegan ávöxt. Í upphafslagi plöt-
unnar og titillagi ber efnið andann
ofurliði en annars eru rímurnar hjá
Ívari mjög góðar, til að mynda er
„Original melody“ afskaplega gott
lag og líka „Plenty“, listamannssaga
rapparans, en fullsnubbótt þó. Gest-
ir gera svo sitt til að skapa fjöl-
breytni á plötunni og hefðu að
ósekju mátt vera fleiri.
Þetta er fyrirtaks hiphopskífa,
fjölbreyttir taktar og skemmtilegar
rímur. Inntak hennar er líka við-
kunnanlegt, það er enginn eldur og
brennisteinn, en fullt af gaman-
sömum pælingum.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölbreytt „Þetta er fyrirtaks hiphopskífa, fjölbreyttir taktar og skemmtilegar
rímur,“ segir m.a. í umsögn um plötu Ívars Schram sem nefnist Barcelona.
Hiphop
I.M.M.O. – Barcelona bbbbn
Sólóplata Ívars Schram, sem notar
listamannsnafnið I.M.M.O. Taktar eftir
Fonetik Symbol, en Pedro Pilatus stýrði
upptökum á einu lagi.
ÁRNI MATTHÍASSON
TÓNLIST
Fjölbreyttir taktar og
skemmtilegar rímur
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta verkefni kallaði á okkur, því
við vitum að þetta konsept virkar,“
segir bassaleikarinn Snæbjörn
Ragnarsson, betur þekktur sem
Bibbi í Skálmöld. Eins og fram hef-
ur komið mun þungmálmasveitin
leika á tónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands undir stjórn
Bernharðs Wilkinsonar 29. nóv-
ember nk. Í samtali við Morg-
unblaðið upplýsir Bibbi að a.m.k.
tveir kórar muni taka þátt í flutn-
ingnum, þ.e. Karlakór Reykjavíkur
og kammerkórinn Hymnodia. „Okk-
ur langar til að hafa barnakór líka
og erum að skoða hvort það gangi
upp. Það verða a.m.k. ævintýralega
margir á kórpöllunum, því það virð-
ast allir vilja vera með,“ segir Bibbi
og tekur fram að hlutverk kórsins
sé meira á annarri plötu sveit-
arinnar, Börnum loka, en að það
muni sennilega breytast þegar búið
verði að útsetja tónlistina fyrir tón-
leikana. „Við fengum Harald V.
Sveinbjörnsson tónskáld til að út-
setja tónlistina, en hann þekkir vel
bæði rokkið og klassíkina og tengir
þannig saman þessa tvo heima enda
talar hann bæði tungumálin ef svo
má segja,“ segir Bibbi og tekur
fram að sum laganna bjóði upp á að
vera alfarið sungin af kórunum og
einnig megi búast við því að kór-
arnir muni syngja ýmsar þær radd-
anir sem hljómsveitarmeðlimir
syngja alla jafna á tónleikum sínum
og plötunum. „En Halli hefur auð-
vitað algjörlega frjálsar hendur í út-
setningum sínum og því verður
spennandi að heyra afraksturinn.“
Aðspurður hvort það hafi komið
honum á óvart þegar forsvarsmenn
Sinfóníuhljómsveitar Íslands leituðu
eftir samstarfi svarar Bibbi því ját-
andi. „Ég held sem betur fer að
hrokinn í báðar áttir sé á undan-
haldi,“ segir Bibbi og vísar þar til
tónlistarfólks í annars vegar þunga-
rokki og hins vegar klassík. „Ég er
lítið upptekinn af skilgreiningum á
tónlist, því ég hef þá trú að það sem
er gott er bara gott og virkar.“
Skálmöld hefur einu sinni áður
leikið í Eldborgarsal Hörpu, en það
var fyrr á þessu ári þegar sveitin
kom fram í hljómsveitakeppninni
Wacken Metal Battle. Aðspurður
segir Bibbi þá Skálmaldarmenn
hlakka mikið til að leika í salnum
aftur. „Enda er þetta geðveikur sal-
ur sem býður upp á mikla mögu-
leika.“
Aðspurður um efnisskrána segir
Bibbi ljóst að þeir muni leika 80-
90% laganna af útgefnum plötum
sveitarinnar, þ.e. Baldri og Börnum
Loka. „Á tónleikum okkar hingað til
höfum við spilað plöturnar í heild
sinni og lagt mikið upp úr sögunum,
en á tónleikunum með Sinfóníunni
munum við leggja sögurnar til hlið-
ar og einblína á tónlistina enda ann-
að ekki hægt þegar maður er með
svona flottan mannskap,“ segir
Bibbi og tekur fram að um verði að
ræða fjölskylduvæna tónleika. Að-
spurður segir Bibbi miðasöluna
hafa farið vel af stað og því ljóst að
mikill áhugi sé fyrir þessum tón-
leikum.
Morgunblaðið/Eggert
Kraftar Skálmaldarmennirnir Þráinn Árni Baldvinsson, Baldur Ragnarsson, Jón Geir Jóhannsson, Snæbjörn Ragn-
arsson, Gunnar Ben. og Björgvin Sigurðsson hlakka til að takast á við hljómburðinn í Hörpu aftur.
„Konsept sem virkar“
Karlakór Reykjavíkur og kammerkórinn Hymnodia
syngja á tónleikum Skálmaldar með Sinfóníuhljómsveitinni