Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 4

Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Gæsaveiðitímabilið hófst 20. ágúst sl. og stendur nú sem hæst. Ágætlega hefur gengið að veiða gæsina, að sögn Elvars Árna Lund, formanns Skotveiðifélags Íslands, en sumstaðar, þá aðallega á miðju Norðurlandi, var hún seinni en venjulega á hefðbundna hauststaði. „Það bendir til þess að varpið hafi verið svolítið seinna á ferðinni vegna snjóþyngsla fram eftir vori víða á heiðum. Annars staðar, þar sem var minna af snjó, hafa menn séð mikið af gæs, það hefur til dæmis verið mjög góð veiði á Austurlandi,“ segir Elvar. Andaveiðitímabilið hófst 1. september. „Það virðist vera mikið af stokkönd og rauðhöfðaönd, sem eru helstu veiðitegundirnar, þannig að vet- urinn lofar góðu. En það er ekki fyrr en gæsin er farin að menn fara að gera sig út í öndina.“ Fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár er ekki komið í ljós en verið að skoða það innan umhverfisráðu- neytisins. „Við áttum fund í ráðuneytinu í gær [mið- vikudag] og við væntum ákvörðunar innan tveggja vikna um það hvernig rjúpnaveiðum verður háttað í vetur. Við vonum að það verði bætt við dögum því að talningar í vor gáfu til kynna að stofninn standi sterk- ari að vígi en var búið að spá fyrir tveimur árum. Auk þess viljum við meina að þótt veiðidögum verði fjölg- að, úr þessum níu dögum, hafi það ekki áhrif á af- komu stofnsins,“ segir Elvar. ingveldur@mbl.is Gæsaveiðar hafa gengið ágætlega Gæsa- og andaveiðitímabilið stendur yfir en fyrirkomulag rjúpnaveiða er ekki komið í ljós Morgunblaðið/Ingó Á veiðum Fjórir félagar á gæsaveiðum í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi í vikunni. Veiðitímabilið hófst 20. ágúst og stendur nú sem hæst. María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Lagðar voru línur fyrir komandi haustþing á undirbún- ingsfundi þingflokks Sjálfstæðisflokksins sem fram fór í Grímsnesi í vikunni. „Það var margt rætt sem skiptir okkur máli sem þjóð og vonandi verður afraksturinn sýnilegur þegar nýtt þing kemur saman hinn 1. október. Það er hefð fyrir því að halda undirbúningsfund sem þennan á hverju hausti. Í ár kynntu ráðherrar það sem er á döfinni í hverju og einu ráðuneyti og það sem þeir hyggjast leggja áherslu á. Eðli málsins samkvæmt greini ég ekki frá því heldur sjá þeir um það sjálfir þegar að því kemur, en það er margt spennandi í farvatninu,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins. Frumvörp sem valda ekki pólitískum deilum Aðspurð um áherslumál þingflokksins á komandi haustþingi, sem mun vara í sex daga, segir Ragnheiður að lögð verði áhersla á það sem hægt er að vinna með á þessum stutta tíma. „Það liggur fyrir svokallað hagstofu- frumvarp sem forsætisráðherra lagði fram á sumarþingi og unnið er að í allsherjarnefnd og menntamálanefnd. Þá hef ég heyrt að væntanleg séu tvö frumvörp sem fela í sér tæknilegar breytingar sem þarf að gera en eru að öðru leyti ekki þess eðlis að þau valdi pólitískum deilum. For- sætisráðherra mun flytja skýrslu um stöðu mála og efna- hagshorfur auk þess sem hinir hefðbundnu þættir þings verða á sínum stað eins og óundirbúnar fyrirspurnir og störf þingsins,“ segir Ragnheiður. Sjálfstæðismenn lögðu línurnar fyrir haustþingið Morgunblaðið/Styrmir Kári Þingflokkur Þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu lín- urnar fyrir komandi haustþing á undirbúningsfundi.  Margt spennandi í farvatn- inu, segir þingflokksformaður Nicorette Fruit- mint, lyfjatyggi- gúmmí, er illfá- anlegt í apótekum og verslunum. Bára Einarsdóttir, markaðsstjóri hjá Vistor, sem flytur inn vöruna, segir skortinn á þessu vinsæla tyggigúmmíi stafa af vandræðum við framleiðslu þess. „Lyf eru viðkvæm framleiðsla og vanda þarf til allra þátta hennar. Eitthvað í framleiðslunni veldur erfiðleikum og því er framleiðand- inn ekki tilbúinn að senda vöruna frá sér,“ segir Bára en að hennar sögn er þessi bragðtegund sú vin- sælasta og því eflaust margir fyrr- verandi reykingamenn, sem treysta á tyggjóið, ósáttir. Óþarfi er að örvænta enda nægar birgðir af öðru Nicorette-tyggjói til í landinu að sögn Báru „Það er alls enginn skortur á Nicorette-tyggjói og nóg til af bæði freshmint- og whitemint-tyggigúmmíinu.“ Reykingamenn sem hyggjast hætta reykingum geta leitað ann- arra ráða en að tyggja Nicorette, t.d. má nota plástur eða nefúða kjósi menn ekki aðrar bragðteg- undir en Nicorette Fruitmint. Skortur á Nicorette Fruitmint  Vandamál í fram- leiðslu tyggjósins Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Um 270 sjúklingar bíða þess nú að komast í hjartaþræðingu á Land- spítalanum. Er það óvenjulega mikill fjöldi. „Biðlistinn í hjartaþræðingu er langur núna og lengri en hann hefur verið eða við teljum æskilegt að hann sé. Vonandi mun hann styttast á næstu mánuðum og við erum að vinna að því,“ segir Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, yfirlæknir hjarta- þræðinga á Landspítalanum. Biðlistinn hef- ur safnast upp á síðastliðnu ári af ýmsum orsökum að sögn Ingi- bjargar. Sumrinu sé ekki eingöngu um að kenna, þá hægist á starf- seminni en listinn hafi verið að safn- ast upp á lengri tíma en það. „Það eru ýmsar orsakir, til dæmis mannafli og tækjabúnaður að ein- hverju leyti. Í vetur stendur til að fá nýja þræðingastofu og þá verðum við komin með aðra öfluga þræð- ingastofu sem í framtíðinni mun von- andi hjálpa til. Auðvitað þarf líka að vera mannafli og þekking fyrir hendi.“ Forgangsraðað á lista Spurð hvort sjúklingum sé að fjölga segir Ingibjörg þjóðina vera að eldast og með vaxandi aldri fjölgi í þeim sjúklingahópi sem kann að þurfa kransæðaþræðingu. „En það hefur ekki orðið nein stór aukning upp á síðkastið sem skýrir þennan biðlista.“ Um sjö hjartaþræðingaraðgerðir eru framkvæmdar á spítalanum á dag að meðaltali, eða um 2.000 á ári. Ákveðin forgangsröðun er á list- anum en þeir sem eru með óstöð- ugan sjúkdóm ganga fyrir og þurfa ekki að bíða lengi, eins er með þá sem liggja inni. Ingibjörg segist að- spurð ekki vita til þess að að fólk sé að hrökkva upp af á meðan það bíð- ur. „Ef fólk verður bráðveikt kemst það inn á sjúkrahús og í bráðaþræð- ingu.“ Ingibjörg er bjartsýn á að þau nái að vinna á biðlistanum en ef aðrir þættir komi upp sé ekki hægt að lofa neinu. Aðspurð hvort ástandið á Landspítalanum undanfarið gæti spilað þar inn í svarar Ingibjörg: „Þetta er í sjálfu sér mjög sérhæft starf sem fer fram á þræðingastof- unni og sérhæfður hópur lækna sem sinnir því. Það hefur ekki haft mikið að segja enn sem komið er en hins vegar ef þessi sérhæfði hópur þræð- ingalækna þarf í auknum mæli að fara að sinna öðrum mjög dreifðum verkefnum þá gæti það vel gerst, já.“ Margir bíða eftir hjartaþræðingu  Biðlisti í hjartaþræðingu á Landspítalanum lengri en æskilegt er að sögn yfirlæknis  Hátt í þrjú hundruð sjúklingar bíða  Safnast upp á síðastliðnu ári  Reyna að stytta biðlistann næstu mánuði Ingibjörg J. Guðmundsdóttir Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is hrærivélar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Drive-HM-140 1600W - 14 cm hræripinni - 2 hraðar 19.990,- Lescha steypurhrærivél SBM P150 150 lítra (hægt að taka í sundur - þýsk gæði) 59.900,- Lescha steypuhrærivél SM 145S 140 lítra (þýsk gæði) 71.900,- Steypu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.