Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Nánast ógerlegt er fyrir fullorðna
að komast að hjá geðlæknum hér á
landi að sögn Ellenar Calmon,
framkvæmdastjóra ADHD-
samtakanna. „Það eru margir geð-
læknar hættir að taka við nýjum
sjúklingum. Þá getur verið tæplega
árs bið í fyrsta viðtal hjá geðlækni
og síðan getur verið hálfs árs bið
til viðbótar í einhvers konar grein-
ingu. Staða geðlækninga á Íslandi
er verulega slæm,“ segir Ellen.
Fáir geðlæknar eru starfandi á
Íslandi og stéttin eldist mun hrað-
ar en hún endurnýjast.
Frá því í mars á þessu ári hefur
verið sérstakt ADHD-teymi starf-
andi á geðdeild Landspítalans. Það
er samsett af geðlæknum og sál-
fræðingum og á að létta á þeim
biðlista sem er til geðlæknis.
„Við höfum verið að reyna að
hafa áhrif á heilsugæsluna um að
vera meðvitaðri um ADHD. Það á
ákveðin skimun að geta farið fram
þar en það er ekki alltaf reyndin.
Ef heilsugæslulæknir skimar getur
hann sent sjúklinginn áfram til
teymisins á Landspítalanum. Þar
fer fram önnur skimun, sem er að-
eins dýpri, og þá annaðhvort skim-
ast sjúklingurinn frá, þ.e. greinist
ekki með ADHD, eða hann skimast
þannig að hann þurfi nánari
greiningu, þá klárar teymið
greininguna og sjúklingurinn
kemst í hendur geðlæknis.
Það er mikill léttir fyrir
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær 28 ára karlmann, Ingvar Dór
Birgisson, í þriggja og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
14 ára stúlku. Brotin framdi hann á
þáverandi heimili sínu í miðborg
Reykjavíkur á vormánuðum 2010.
Þá var honum gert að greiða stúlk-
unni 900 þúsund krónur í miska-
bætur.
Maðurinn komst í kynni við stúlk-
una í gegnum samfélagsvef og náði
að tæla hana heim til sín. Hann var
sakfelldur fyrir að hafa nýtt sér yf-
irburðastöðu sína gagnvart stúlk-
unni vegna aldurs-, þroska- og afls-
munar og haft við hana samræði.
Lét hann ekki af háttsemi sinni
þrátt fyrir að stúlkan bæði hann
ítrekað um að hætta og segði hon-
um að hann væri að meiða hana.
Áður en málið var þingfest kom
Ingvar Dór þeim boðum áleiðis til
dómsins að hann væri fluttur til
Cayman-eyja og væri ekki á leið til
landsins í náinni framtíð. Var því
gefin út handtökuskipun á hendur
honum auk þess sem áform voru
uppi um að fá hann framseldan.
Kom þó ekki til þess því Ingvar Dór
mætti fyrir dóminn í júní síðast-
liðnum. Var hann þá úrskurðaður í
farbann.
Í niðurstöðu dómsins segir að
Ingvar Dór eigi sér engar máls-
bætur, hann hafi brotið á mjög
ungri stúlku, á viðkvæmu þroska-
skeiði hennar, auk þess sem málið
hafi tafist vegna hans.
Tafði málið með
því að setjast að á
Cayman-eyjum
Karlmaður á þrítugsaldri dæmdur
fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
Klefi Maðurinn fer í fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku.
Ellen segir ADHD-samtökunum berast fjöldinn allur af fyr-
irspurnum frá fullorðnum einstaklingum sem eru að reyna
að komast að í greiningu hjá geðlækni en gengur erfiðlega.
„Sálfræðingar geta líka greint ADHD en þeir kosta aug-
að úr; tíminn kostar 10 til 15 þúsund krónur og grein-
ing á bilinu 80 til 120 þúsund krónur. Sálfræðingar
eru innan heilbrigðiskerfis annars staðar á Norð-
urlöndunum en ekki hér,“ segir Ellen.
Fá fjölda fyrirspurna
Ellen
Calmon
ADHD-GREINING
marga því það er svo erfitt að
komast að hjá geðlækni án tilvís-
unar.“
Ellen segir teymið hafa náð um
þrjátíu til fjörutíu greiningum það
sem af er ári en þurfi að vera að-
eins öflugra til að ná að ganga á
biðlistann.
Staðan skánar ekki í bráð
Kristinn Tómasson, formaður
Geðlæknafélagsins, segir að nánast
allir geðlæknar taki einvörðungu
við nýjum sjúklingum í gegnum til-
vísanir. „Með tilvísun er fjögurra
til tólf vikna bið. Án tilvísunar er
raunverulegur biðtími yfir þrír
mánuðir,“ segir Kristinn. „Það er
langur listi sem bíður þess að fá
þjónustu og til þess að forgangs-
raða í þeirri þjónustu hafa menn
valið það að taka sjúklinga fyrst og
fremst eftir tilvísun frá heim-
ilislækni eða öðrum heilbrigð-
isstarfsmanni.“
Geðlæknar eru ekki hættir að
taka við nýjum sjúklingum, að
sögn Kristins, en hjá elstu og um-
setnustu geðlæknunum getur biðin
verið löng og erfitt að komast að.
„Vandinn er sá að stéttin er að
eldast heilmikið. Þetta er hópur
manna á aldrinum 65 til 70 ára
sem hafa verið mjög öflugir en þeir
munu hætta á næstu árum og
margir farnir að minnka við sig því
það hefur orðið samdráttur í fjölda
viðtala. Nýir læknar koma ekki inn
og því fækkar í stéttinni. Í því felst
vandinn, það er engin endurnýjun.“
Kristinn sér ekki stöðuna skána
í fyrirsjáanlegri framtíð. „Kjörin
hér heima eru ekki samkeppnishæf
við nágrannalöndin og það er
ákveðinn þröskuldur. Þá hafa
heildarfjárveitingar til geðheil-
brigðismála ekki náð að mæta
þeirri þörf sem er skilgreind út frá
eðli og umfangi geðsjúkdóma í
samfélaginu.“
Morgunblaðið/Kristinn
Beðið Þeir sem bíða eftir að komast í greiningu á ADHD hjá geðlækni eru margir. Myndin er sviðsett.
„Staða geðlækninga
er verulega slæm“
Erfitt fyrir fullorðna að fá tíma hjá geðlækni án tilvísunar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég hef látið hefja vinnu við gerð
frumvarps sem felur í sér að skipu-
lagsvald yfir Reykjavíkurflugvelli,
eða því svæði sem hann nær yfir, sé
hjá Alþingi. Ég er þeirrar skoðunar
að það sama eigi að gilda um Reykja-
víkurflugvöll og gildir um Keflavík-
urflugvöll. Þar er skipulagsvaldið
hjá ríkinu,“ segir Höskuldur Þór-
hallsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins og formaður umhverfis- og
samgöngunefnd-
ar, um baráttu-
mál sem hann
vinnur nú að.
Spurður hvaða
stuðning hann
reikni með að
frumvarpið fái í
þinginu segir
Höskuldur að það
verði að koma í
ljós. „Ég ætla að
kynna þetta í þingflokknum og svo
hyggst ég leggja frumvarpið fram í
september. Vonandi fær það mál-
efnalega umfjöllun,“ segir Höskuld-
ur sem telur að líkindi séu með tillög-
unni og tillögu sem Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, þáverandi forseti
Alþingis, lagði fram um að skipu-
lagsmál á svonefndum Alþingisreit
skyldi vera á höndum Alþingis.
Landsbyggðin sé áhrifalaus
„Skipulagsmálin heyra undir
Reykjavíkurborg hvað varðar svæð-
ið sem Reykjavíkurflugvöllur er á.
Við erum með alla þessa umræðu um
flugvöllinn vegna þess að borgar-
yfirvöld eru að semja skipulag sem
nær yfir Reykjavíkurflugvöll og
landsmenn allir hafa ekkert um að
segja,“ segir Höskuldur.
Hann segir málið lúta að sjálfs-
ákvörðunarvaldi sveitarstjórna. Í
stjórnarskránni komi fram að
sveitarstjórnir fari með málefni inn-
an sinna landsvæða nema annað sé
tilgreint í lögum. Telur hann því að
borgin muni missa yfirráð yfir skipu-
lagi Reykjavíkurflugvallar ef frum-
varpið verður samþykkt.
Ríkið fái skipulagsvaldið
Þingmaður Framsóknarflokks leggur fram frumvarp um Reykjavíkurflugvöll
Skipulag flugvallarsvæðisins skuli færast frá Reykjavíkurborg yfir til ríkisins
Höskuldur Þór
Þórhallsson
Vegna rekstr-
arstöðvunar á
skólpdælustöð
við Skeljanes í
gær ráðlagði
Heilbrigðiseft-
irlit Reykjavík-
ur sjósunds-
fólki að synda
ekki í nágrenni
dælustöðv-
arinnar og í
Nauthólsvík og
Fossvogi í gær
og í dag.
Ástæðan er
sögð möguleg saurgerlamengun í
sjó yfir viðmiðunarmörkum með-
an á viðgerð stendur og fyrst á
eftir.
Varað við mögulegri
saurgerlamengun
Sjór Varað við meng-
un við Nauthólsvík.
Viðskiptatækifæri
Áhugasamir aðilar hafi samband við Guðna Halldórsson
sími 414 1200, gudni@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Adventure
Car Rental
Til sölu er vinsæl bílaleiga í fullum rekstri með 25 vel búna
jeppa í útleigu. Góð nýting og miklar bókanir framundan.
Fullbúið verkstæði, varahlutir, tvö lén, tvær heimasíður
og fullkomið bókunarkerfi fylgir með í kaupunum.
H
a
u
ku
r
0
9
.1
3