Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 8
Mun verja hagsmuni sína fyrir dómi
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Jökull Bergmann, sem rekur þyrluskíða-
fyrirtækið Arctic Heliskiing í Skíðadal á
Tröllaskaga, segir að þeir samningar sem
hann hefur gert um einkarétt á þyrlu-
skíðaferðum á svæðinu muni sannarlega
standast fyrir dómi, enda hafi landeig-
endur fullan rétt til að semja um afnot af
landi sínu. Hann muni verja rétt sinn láti
önnur þyrluskíðafyrirtæki reyna á gildi
samninganna.
Í Morgunblaðinu í gær sagði Orri
Vigfússon, sem býður upp á þyrluskíða-
ferðir frá Deplum í Fljótum, að lögfræð-
ingar teldu að samningarnir sem Jökull
hefði gert stæðust ekki, flugumferð væri
ekki háð einkaeignarrétti.
Ekki áhrif á aðra
Jökull bendir á að reglur um al-
mannarétt tryggi rétt almennings til
frjálsrar farar um landið. Almannarétt-
urinn gildi hins vegar ekki um fyrirtæki
sem ætli að selja starfsemi á einkalöndum.
Hann hafi gert samning við sveitarfélög og
landeigendur um að fá að nýta land þeirra
til þyrluskíðaferða í atvinnuskyni. Land-
eigendur hafi fullan rétt til að gera slíka
samninga, rétt eins og þeir hafi rétt á að
gera samninga um beitarréttindi eða ann-
að. Samningarnir sem hann hafi gert hafi
engin áhrif á rétt annarra til að fara gang-
andi, á skíðum, vélsleðum eða öðrum far-
artækjum um löndin, heldur taki samning-
arnir eingöngu til þyrluskíðaferða í
atvinnuskyni. Á þeim hafi hann samið um
einkarétt.
Geti leigt land sitt fyrir þyrluskíðaferðir Skerðir ekki almannarétt
Jökull
Bergmann
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Borgaryfirvöld sendu í gær frásér sundurliðun um kostnað
við breytingar á Hofsvallagötu þar
sem þau töldu að í fréttaflutningi
liðinna daga hefði fólk fengið
skakka mynd af kostnaði við fugla-
hús.
Að vísu hafðiekkert
verið missagt í
fréttum um
kostnaðinn, en
borgaryfirvöld
töldu nauðsyn-
legt að senda
frá sér bréf og
nákvæmari sundurliðun til að út-
skýra að fuglahúsin og flöggin
hefðu ekki verið jafndýr og hægt
hefði verið að ætla af fyrri upplýs-
ingum, sem voru ekki jafnsundur-
liðaðar.
Í bréfi borgaryfirvalda gleymistþó að draga fram hver kostn-
aðurinn var við yfirborðsmerk-
ingar, en eins og vegfarendur hafa
tekið eftir voru hjólabrautirnar
merktar allrækilega, svo ekki sé
meira sagt.
En hvern gat órað fyrir kostn-aðinum við þetta skelfilega
„skraut“. Í sundurliðuðum gögn-
unum eru þrír liðir sem hver um sig
lýsir kostnaði við 458 stk. af hjóla-
merkingum en af mismunandi
stærðum.
Samtals gera þetta 1.374 stk. afhjólamerkingum og kostnaður-
inn við þær er samtals 7.144.800 kr.
Borgaryfirvöld leggja nú miklaáherslu á að breytingarnar á
Hofsvallagötu eigi aðeins að vera
tímabundnar. En var virkilega
nauðsynlegt að sóa rúmum sjö
milljónum króna í tímabundnar
málaðar hjólamerkingar á þessum
stutta götukafla?
7 m.kr. að mála hjól
á Hofsvallagötu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 léttskýjað
Bolungarvík 10 heiðskírt
Akureyri 10 heiðskírt
Nuuk 7 skúrir
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 15 skýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 28 heiðskírt
Brussel 31 heiðskírt
Dublin 15 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 27 heiðskírt
París 32 heiðskírt
Amsterdam 30 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 22 léttskýjað
Vín 23 léttskýjað
Moskva 8 skúrir
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 15 skýjað
New York 23 skýjað
Chicago 21 skýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:26 20:27
ÍSAFJÖRÐUR 6:26 20:37
SIGLUFJÖRÐUR 6:08 20:21
DJÚPIVOGUR 5:54 19:58
Sunna Gunnars
Marteinsdóttir
hefur verið ráðin
annar aðstoð-
armaður Gunn-
ars Braga
Sveinssonar ut-
anríkisráðherra.
Sunna er 29
ára og hefur BA-
gráðu í almanna-
tengslum frá University of West-
minster, auk þess sem hún stundaði
nám í hagnýtri menningarmiðlun í
Háskóla Íslands. Þá starfaði hún
sem skrifstofustjóri þingflokks
Framsóknarflokksins frá 2010 og
var aðstoðarmaður kosningastjóra
flokksins 2009. Sambýlismaður
Sunnu er Sigurbjörn Magnús Gunn-
laugsson.
Önnur til aðstoðar
utanríkisráðherra
Sunna Gunnars
Marteinsdóttir
27 starfsmönnum Intersport hefur
verið sagt upp störfum vegna lok-
unar í Lindum í Kópavogi. Í stað
Intersport verður verslunin Sports
Direct opnuð á sama stað. Eftir lok-
unina verður eina Intersport-
verslunin á höfuðborgarsvæðinu á
Bíldshöfða. Að sögn Brynju Hall-
dórsdóttur, framkvæmdastjóra
Norvik, eiganda Intersport, verður
kappkostað að reyna að finna
starfsmönnunum 27 starf innan
keðjunnar. vidar@mbl.is
Sögðu 27 starfs-
mönnum upp