Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Þegar valið stóð á milliþess að fara til Bretlandsog Íslands til að nemendurgætu æft sig í ensku voru
kennararnir við menntaskólann La
Salle í Mollerussa ekki lengi að
ákveða sig. Ísland er spennandi æv-
intýraland í augum margra Spán-
verja og hér á landi tala flestir góða
ensku. Þess vegna hefur mörgum
kennurum, þar á meðal Julio Miral-
les, þótt þessi leið skemmtileg og
óhefðbundin í enskukennslunni. Auk
þess fá íslensku nemendurnir tæki-
færi til að æfa sig í spænsku sem er
hluti af náminu.
Vika með íslenskri fjölskyldu
Alls komu tuttugu og fjórir
nemendur frá Mollerussa á Spáni.
Hver og einn dvelur á heimili nem-
anda í fimmta bekk Verslunarskól-
ans og síðar á önninni heimsækja
Íslendingarnir Spánverjana. Nem-
endurnir taka þátt í daglegu lífi fjöl-
skyldunnar, mæta í skólann, læra
heima og fara í ferðalög. Dagskráin
er því nokkuð þétt, þessa viku sem
þeir eru í heimsókn enda mega nem-
endurnir ekki slá slöku við í náminu
Þroskandi ævintýri
að koma til Íslands
Það er ekki laust við að það lifni dálítið yfir Verslunarskóla Íslands þegar kata-
lónsku nemendurnir koma í heimsókn. Þetta er fimmta árið í röð sem nemendur í
menningarfræðum við alþjóðasvið skólans taka á móti jafnöldrum sínum frá
Spáni. Því fylgir töluverð ábyrgð, skemmtun og oftar en ekki einhver ævintýri.
Bæði fyrir íslensku nemendurna og ekki síður þá spænsku.
Freisting Þeim þótti ísinn aðeins of freistandi til að horfa bara á hann.
Dans er sannarlega hreyfing sem nýtur
stöðugra vinsælda og spyr hvorki um
aldur fólks né stöðu. Dancecenter og
stjarnan Kameron Bink úr þáttunum So
You Think You Can Dance bjóða upp í
dans í dag kl. 17 á Grensásvegi 14. Þar
verður hitað upp fyrir komandi dans-
vetur. Fólk ætti þó að skrá sig á vefsíð-
unni áður en það mætir á staðinn.
Vefsíðan www.dancecenter.is
Dans Hreyfingin er góð fyrir hina ýmsu aldurshópa.
Dansað af lífi og sál í vetur
Tríó Kandís er skipað
þeim Særúnu Harð-
ardóttur sópran, Auði
Guðjohnsen messó-
sópran og Lilju Egg-
ertsdóttur söngkonu og
píanóleikara. Þær
munu halda hádeg-
istónleika í Háteigs-
kirkju klukkan 12.00 í
dag og standa í hálftíma. Tóleikarnir bera yfirskriftina: Í ljóma liðinna daga. Á
efnisskránni eru dægurlagaperlur á borð við Í rökkurró, Manstu gamla daga,
Við gengum tvö og Vegir liggja til allra átta. Það er um að gera að bregða út af
vananum í hádeginu og hlýða á tóna liðinna daga.
Endilega ...
... sjáið Kandís í hádeginu
Kandís Tríóið skipa þær Særún, Auður og Lilja
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Farðu ótroðnar slóðir.
Audi A6 Allroad quattro.
Það eru ótal leiðir á áfangastað. Með nýja Audi A6 Allroad quattro eru þær allar færar.
Audi A6 Allroad 3.0 TDI kostar frá kr. 11.840.000.