Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 11

Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 11
Seljalandsfoss Hópurinn ferðaðist víða um landið og var tíminn nýttur til hins ýtrasta. þó að þeir séu fjarri heimahögum. Þeir fá bara frí í einn dag og svo auðvitað yfir helgina. Að sögn Hildu Torres Ortiz, spænskukennara við Verslunarskólann, eru nemendurnir fljótir að aðlagast þó svo að flestir séu feimnir í upphafi heimsókn- arinnar. Í sumum tilvikum kviknar áhugi spænsku nemendanna á ís- lenskri tungu og kunna flestir að bjóða góðan dag og þakka almenni- lega fyrir sig áður en þeir fara aftur heim. Að sögn Hildu myndast oft góð tengsl á milli íslensku og spænsku nemendanna og flestir Spánverj- anna vilja ólmir komast til Íslands aftur. Jökulsárlón töfrum líkast Félagarnir David Farre, Migu- el Amaros og José Maria Cairo voru sammála um að það sem bar hæst í ferðinni til Íslands hafi verið að skoða Jökulsárlón. „Við sáum Jök- ulsárlón í sjónvarpinu og okkur þótti það mjög sérstakt og enn sér- stakara var að koma þangað sjálfur. Í okkar augum er alveg ótrúlegt að sjá hafið öðrum megin brúar og lón hinum megin, fullt af ísjökum. Við vorum uppnumin og fórum að hlaupa út um allt. Sum okkar gerð- ust svo djörf að príla upp á ísinn en það má kannski ekki,“ sagði Miguel Amaros sposkur á svip. Stórfurðulegur matur David Farre sagðist hafa smakkað margt furðulegt hér sem Íslendingar leggja sér til munns. „Sumt af því var nú bara mjög gott en ég er samt á því að maturinn við Miðjarðarhafið sé besti matur í heimi. Ætli úrvalið þar sé ekki að- eins betra. Við smökkuðum samt allt sem okkur var boðið: hákarl, hval, lunda og harðfisk. Mér fannst það ekki gott,“ sagði David Farre ögn skömmustulegur á svip. Íslendingar þöglir en vingjarnlegir Menningarmunurinn á Íslend- ingum og Spánverjum hlýtur að teljast nokkur en þeim félögum þótti mesti munurinn á fólkinu fel- ast í því hversu fálátir Íslendingar eru. Alla vega í samanburði við Spánverja. „Munurinn á þjóðunum tveimur er mjög mikill. Íslendingar segja fátt en þeir eru samt eins vin- gjarnlegir og við. Þeir eru ekki nærri því eins kaldir og aðrar þjóðir í þessum hluta Evrópu,“ sagði José Maria Cairo, sem segist ætla að koma aftur til Íslands um leið og færi gefst. Undir það taka félagar hans sem snúa nú aftur til Spánar, reynslunni ríkari. Litrík Nemendur við Gullfoss sem skartaði sínu fegursta á góðum degi. Hópurinn Verslunarskólinn lifnar við þegar Spánverjarnir koma. Íslendingar eru að mati félaganna ekki eins kaldir og aðrar norrænar þjóðir. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Í gær var opnuð háskaleg ævintýrasýning á Borgarbókasafninu við Tryggvagötu. Þar gefur að líta myndir úr myndasögunni The Wandering Ghost eftir þýska listakonu sem kallar sig Moki. Moki er frá Berlín og hefur komið víða við, bæði sem listmálari, teiknimyndasagnahöfundur og gjörninga- listamaður. Sýningin á myndum bók- arinnar The Wandering Ghost eða Sveim- ur, eins og titillinn hefur verið þýddur leiðir áhorfendur inn í draumkenndan heim listakonunnar. Hún er þekkt fyrir að sækja innblástur til myndskreytinga úr bókum finnska rithöfundarins Tove Jans- son, sem þekktust er fyrir sögurnar um verurnar í Múmíndalnum en innblástur sækir hún einnig til teiknimynda japanska kvikmyndagerðamannsins Hayao Miya- zaki. Sýning Moki stendur fram eftir hausti og er sýningartími sá sami og af- greiðslutími safnsins. Háskaleg ævintýrasýning á Borgarbókasafni Myndasagan Forsíða bókarinnar The Wandering Ghost eftir Moki. Eins og japanskur Múmíndalur Wandering ghost Innblásturinn sótti Moki meðal annars til Múmíndalsins. Ég ákvað að nýta vaktafrís-dagana mína ekki í þaðsem ég myndi undir eðli-legum kringumstæðum gera, sitja heima hjá mér og spila tölvuleiki á nærbuxunum, heldur tók ég að mér það verkefni að lóðsa held- ur óhefðbundna ferðamenn um suð- vesturhorn landsins. Ferðamenn þessir voru komnir hingað til lands til að kynna sér „hina hliðina“ á Íslandi. Þau vildu ekki bara fara Gullna hringinn og í Bláa lónið, heldur vildu þau vita hvað venjulegir Íslendingar gera. Samt vildu þau sjá smá af túr- ista-Íslandi. Við vorum ekki fyrr búin að beygja inn á Þingvallaafleggj- arann þegar þau hrópuðu: „Stopp- aðu! Við þurfum að taka myndir!“ „En, þetta er bara Mosfellsdal- urinn,“ hugsaði ég og fannst ég hvort tveggja vera kominn allt of langt frá gamla Vesturbænum og var algjörlega ómeðvitaður um að ósnortin náttúra væri nokkuð sem þú finnur ekki víða í þessum heimi. Eins og við var að búast missti þetta ágæta fólk hálf- partinn andlitið þegar það sá Strokk frussast upp í loftið og Hvítána koma öskrandi niður Gullfoss – sjálfur hef ég alltaf borið ótta- blandna virðingu fyrir stórum vatns- föllum. Daginn eftir teymdi ég þetta föruneyti um það sem þau lýstu sem stiga eftirvæntingarinnar. Þau bjuggust ekki við miklu þegar við gengum gráu þrepin í Kjörgarði niður til Kormáks og Skjaldar, en skildu hvorki upp né niður í því hvað svona demantur væri að gera jafnvel falinn fyrir almenn- ingi. Eftir að við kvöddum Kormák, sem skálaði við okkur í Bríó, lá leið okkar að öðrum álíka óspennandi þrepum Kex-Hostels. Aumingja fólk- ið gat ekki skilið hvernig svona lítið og fámennt land getur haft upp á svona mikið að bjóða, ekki bara nátt- úrufegurðina. Hún er eins og önnur fegurð – við fæðumst með hana og gerum lítið til að verðskulda. Það sem merkilegra er er það sem við gerum sjálf – sál lands og þjóðar sést miklu betur í drifkrafti okkar eyjaþjóðar og hugvitssemi og út- jónarsemi fólksins heldur en í vatni sem er ýmist kyrrstætt, á leið upp í loft eða niður af bjarg- brún. Það er kannski ekki svo vitlaust að vera stundum túristi í eigin landi – ekki í hefð- bundnum skilningi, heldur túristast um götur Reykjavíkur og hennar verslanir og bari. Annars verður þetta jafnsjálfsagt og Almannagjá, Gullfoss og Geysir. »Það er kannski ekki al-vitlaust að vera stund- um túristi í eigin landi HeimurGunnars Dofra Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Skagfirskur sveitabiti H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A Mýksti brauðosturinn á markaðnum nú á tilboði! Fáanlegur 26% og 17%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.