Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Núverandi staðsetning Reykjavík-
urflugvallar er alger forsenda fyrir
því að hægt sé að halda úti innan-
landsflugi á Íslandi. Ef á að færa
flugið langt frá þjónustunni, t.d. til
Keflavíkur, þá er enginn rekstr-
arlegur grund-
völlur fyrir frek-
ara flugi vegna
þess að farþeg-
um myndi fækka
það mikið,“ segir
Hörður Guð-
mundsson, eig-
andi og fram-
kvæmdastjóri
flugfélagsins
Ernis, spurður
um afstöðu til
framtíðar Reykjavíkurflugvallar.
Hörður tekur í sama streng og
Árni Gunnarsson, forstjóri Flug-
félags Íslands, í Morgunblaðinu í
gær, og gagnrýnir áætlanir í að-
alskipulagi Reykjavíkur um að
leggja niður norður/suður-flug-
brautina 2016. „Það yrði rothögg
fyrir innanlandsflugið,“ segir Hörð-
ur.
Hafa tvöfaldað gjöld á flugið á
Reykjavíkurflugvelli
Hörður gagnrýnir gjaldtöku af
fluginu á Reykjavíkurflugvelli sem
eru einkum lendingar- og farþega-
gjöld, sem ISAVIA hafi hækkað.
Lendingar- og farþegagjöld eigi að
vera þau sömu á hvern farþega
óháð flugvelli en ISAVIA hafi rúm-
lega tvöfaldað öll gjöld á flugið á
Reykjavíkurflugvelli. ,,Farþega-
skattur frá Reykjavík er 1.200
krónur en annars staðar á landinu
er hann 498 krónur á hvern far-
þega,“ segir Hörður.
Óvissan um framtíðarstaðsetn-
ingu innanlandsflugsins á höfuð-
borgarsvæðinu hefur bein og alvar-
leg áhrif á rekstur flugfélagsins að
sögn Harðar. „Starfsfólk okkar er
óöruggt um framtíð sína og við er-
um óöruggir með reksturinn því við
vitum ekki hvort flugvöllurinn verð-
ur hér áfram eða ekki,“ segir hann.
Bendir hann á að margt starfs-
fólk sem starfað hafi hjá félaginu
og verið þjálfað upp á umliðnum ár-
um sé óöruggt vegna þessarar
óvissu.
Gífurlega kostnaðarsamt sé að
þjálfa upp hæft starfsfólk í flugi þar
sem gerðar eru miklar hæfniskröf-
ur í öllum störfum. Starfsfólk flug-
félagsins sé með alþjóðlega mennt-
un, sem er vottuð af EASA,
Flugöryggisstofnun Evrópu, og
getur því gengið í störf erlendis ef
það vill hasla sér þar völl. Það hafi
því bein áhrif á fyrirtækið ef starfs-
fólkið er orðið óöruggt um framtíð
flugsins hér og sé kannski farið að
hugsa sér til hreyfings.
Ernir er með áætlunarflug til
Húsavíkur, Vestmannaeyja, Horna-
fjarðar, Bíldudals og Gjögurs. Á
þessum stöðum eru menn einnig í
óvissu um framtíðina ef Reykjavík-
urflugvelli verður lokað, að sögn
Harðar.
Flug með ferðamenn er sívaxandi
hluti af þjónustu flugfélagsins Ern-
is og skiptir staðsetning Reykjavík-
urflugvallar sköpum í því sambandi
að sögn Harðar. „Ferðaþjónustan
er okkur ákaflega mikilvæg hér í
Reykjavík. Við fáum hundruð eða
þúsundir farþega beint úr farþega-
skipunum, sem myndi algerlega
falla niður ef innanlandsflugið yrði
t.d. flutt til Keflavíkur,“ segir hann.
Dagsferðir með ferðamenn og út-
sýnisflug eru mikilvægur og vax-
andi hluti af starfsemi félagsins,
sem er einnig í nánu samstarfi við
ferðaþjónustuaðila á áfangastöðum
félagsins úti á landi. Hörður telur
að dagsferðir með ferðamenn
myndu að stórum hluta falla niður
ef flugvöllurinn yrði færður úr
Vatnsmýrinni.
Innanlandsflugið skilar ríkinu
verulegum tekjum. „Við erum
reyndar með ríkisstyrkt flug en
þrátt fyrir það skilum við til rík-
isins tvöfaldri þeirri upphæð í
sköttum. Skatttekjur ríkisins af
hverjum einasta farþega sem Ernir
flutti á síðasta ári voru rúmar 7.700
kr.“
„Yrði rothögg fyrir innanlandsflug“
Framkvæmdastjóri Ernis segir ekki rekstrargrundvöll fyrir flugi ef flugvöllurinn fer úr Vatnsmýri
Gagnrýnir aukna gjaldtöku Farþegaskattur frá Reykjavík 1.200 kr. en 498 kr. frá öðrum flugvöllum
Morgunblaðið/Ernir
Hörður
Guðmundsson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Verið er að vinna heimildarmynd
um Parkinsonsjúkdóminn í tilefni
af 30 ára afmæli Parkinsonsamtak-
anna á Íslandi. Hrafnhildur Björk
Sigurðardóttir, formaður samtak-
anna, segir að gerð myndarinnar
sé langt komin en búið er að gera
samkomulag um að hún verði sýnd
í ríkissjónvarpinu. „Markmiðið með
myndinni er að upplýsa almenning
um eðli sjúkdómsins, því okkur
finnst skorta töluvert á að fólk geri
sér grein fyrir hvers eðlis sjúk-
dómurinn er,“ segir Hrafnhildur
Björk. Hrafnhildur segir að bresku
Parkinsonsamtökin hafi sýnt
myndinni og afmælisárinu áhuga
og hugsanlega verði því settur
enskur texti á myndina að sýningu
lokinni.
Mikið um að vera á næstunni
Hrafnhildur Björk segir að þrí-
tugsafmælis samtakanna verði
minnst með ýmsum hætti. „Við
gefum út mjög veglegt afmælisrit
og verðum með mjög áhugaverða
ráðstefnu 5. október næstkom-
andi.“ Ráðstefnan verður haldin á
Hilton-hótelinu. Meðal fyrirlesara
verða Kári Stefánsson, stofnandi
deCode, Hjálmar Bjartmars heila-
skurðlæknir, Sigurlaug Svein-
björnsdóttir taugasérfræðingur og
fleiri. „Erindin verða mjög áhuga-
verð og við vonum að sem flestir
komi til að hlýða á þau,“ segir
Hrafnhildur. Um 550 manns eru í
Parkinsonsamtökunum, bæði þeir
sem eru greindir með sjúkdóminn
og aðstandendur. Áætlað er að
rúmlega 600 Íslendingar séu nú
greindir með Parkinson. Hrafnhild-
ur Björk segir að sjúkdómurinn sé
einkum greindur hjá þeim sem
eldri eru þó að hann þekkist einnig
hjá yngra fólki. Hún vill hvetja alla
sem greinst hafa með sjúkdóminn
og aðstandendur þeirra til þess að
ganga í samtökin. Margt sé í boði
og mikið starf fari fram hjá félag-
inu. Samtökin standa til dæmis
fyrir fræðslufundum fyrsta laug-
ardag hvers mánaðar auk þess sem
jafningjastuðningsfundir eru tvisv-
ar í mánuði. Þá sé félagslífi einnig
sinnt. „Það er margt í gangi, línu-
dans hvað þá annað,“ segir Hrafn-
hildur að lokum.
Heimildarmynd
um Parkinson
30 ára afmæli Parkinsonsamtakanna
Ljósmynd/Guðbjörn Jónsson
Félagslíf Á vegum Parkinsonsamtakanna er t.d. hægt að fara í línudans.
Reykjavík
Skútuvogur 1
Sími 562 4011
Akureyri
Draupnisgata 2
Sími 460 0800
Gorenje frystiskápur
Áður 179.900 kr.
Hausttilboð 129.900 kr.
Gorenje frystiskápur F6151AW • Nýtanlegt rými frystihólfs 206 lítrar • Frystigeta 18kg/dag
Hljóðstyrkur 40 dB • Orkunýtni A+ • Breidd 60 cm, hæð 145 cm, dýpt 64 cm • 6 skúffur • 5 ára ábyrgð
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
13
23
6
6
Þú sparar
50.000 kr.
Nálægð flugvallarins við sjúkrahús
hefur borið hátt í umræðunni um
framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Hörður var sjúkraflugmaður á
Vestfjörðum í rúman aldarfjórðung
og segir þetta vera stórmál.
Ernir annast nánast allt sjúkra-
flug frá Reykjavík til annarra
landa. „Flogið er með sjúklinga
sem þurfa að vera komnir á skurð-
arborð á erlendu sjúkrahúsi eftir
kannski fjóra til fimm tíma,“ segir
hann. Þegar flogið er með sjúk-
linga til Gautaborgar er flugvélinni
bent á að lenda á Save-flugvell-
inum sem er í miðborg Gautaborg-
ar, að sögn Harðar. „Þegar við
fljúgum til Kaupmannahafnar með
sjúklinga erum við beðnir að lenda
í Roskilde, sem er næst sjúkrahús-
inu, svo minnstar tafir verði og ef
við förum til Stokkhólms lendum
við í Bromma, sem er í miðbæ
Stokkhólms. Þetta er krafa sjúkra-
húsanna sem taka á móti sjúkling-
unum. Nálægðin við sjúkrahús
skiptir miklu meira máli en margir
vilja vera láta.“
Lenda sem næst sjúkrahúsi
FLÝGUR MARGAR SJÚKRAFLUGSFERÐIR TIL ANNARRA LANDA
Lending „Ferðaþjónustan er okkur ákaflega mikilvæg hér í Reykjavík,“
segir Hörður Guðmundsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins Ernis.