Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUM HÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900 Sagt var frá því á vef grænlenska dagblaðsins Ser- mitsiaq í gær að Aleqa Hammond, formaður land- stjórnarinnar á Grænlandi, hefði ekki fengið sæti við borðið þegar fjórir norrænir forsætisráð- herrar og forsetar Bandaríkjanna og Finnlands funduðu í Stokkhólmi í fyrradag. Var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra við fundarborðið. Haft var eftir Helle Thorning- Schmidt, forsætisráðherra Dan- merkur, að í þessu efni hefði verið stuðst við formvenju og hefðir. Kom sjónarmiðum á framfæri Henni þætti leitt ef Grænlend- ingar teldu að framhjá þeim hefði verið gengið. Tók hún jafnframt fram að hún hefði lagt áherslu á að sjónarmið Grænlendinga kæmust á framfæri á fundinum. Skammt er síðan Grænlendingar tóku ekki þátt í leiðtogafundi Norðurskautsráðsins í Kiruna í Sví- þjóð í maí sl. til að mótmæla því að fá ekki að sitja við hlið utanríkis- ráðherra Dana við fundarborðið. Hammond fer jafnframt með utanríkismál í grænlensku land- stjórninni og kom hún á framfæri mótmælum vegna fundarins í Kir- una. Hún segir aðspurð í samtali við Morgunblaðið að sjálfsmynd Græn- lendinga sé að breytast. Þeir upplifi sig ekki lengur sem land sem lúti stjórn Dana í einu og öllu, líkt og fyrri kynslóðir gerðu. Allt laut stjórn Dana „Þegar móðir mín var á svipuðu reki og ég var heimur okkar ólíkur. Móðir mín var alin upp í landi þar sem allt laut stjórn Dana. Það sást á hegðun hennar og kom fram í við- horfum hennar og lífsstíl. Allt var ákveðið í Danmörku. Ég ólst hins vegar upp á tímum þegar heima- stjórnin tók til starfa á Grænlandi. Sjálfsmynd mín og skilningur minn á Grænlandi byggist á því að við ákveðum allt sjálf og tökum ábyrgð á gerðum okkar. Mín sjálfs- mynd hefur lítið með Danmörku að gera. Hún snýst um mig sjálfa sem manneskju. Þetta tvennt er mjög mikilvægt að undirstrika.“ Hammond ekki boðið til fundar  Thorning-Schmidt vísar til venju Helle Thorning- Schmidt VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Grænlendingar ráða yfir miklum vannýttum auðlindum í hafinu og stefna á stóraukna nýtingu fiski- stofna á hafsvæði sínu. Er þeirri nýt- ingu ætlað að renna styrkari stoðum undir efnahag landsins og þannig stuðla að fullu sjálfstæði frá Dönum síðar á þessari öld. Þetta segir Aleqa Hammond, for- maður landstjórnar Grænlands, í samtali við Morgunblaðið en hún kom til Íslands í einkaerindum. Var hún á heimleið eftir að hafa setið árlegan fund með Helle Thorn- ing-Schmidt, forsætisráðherra Dan- merkur, og Kaj Leo Holm Johann- esen, lögmanni Færeyja, um stöðu mála innan danska konungsríkisins. „Við Grænlendingar hagnýtum að- eins lítið brot af fiskveiðiauðlindinni. Ríkisstjórn mín myndi vilja stækka fiskveiðisvæðin. Við höfum því sett tilraunaveiðar í forgang, þar með tal- ið austur af Grænlandi þar sem haf- svæði okkar og Íslendinga skarast. Við höfum séð mikla aukningu í mak- ríl- og síldargöngu í landhelgi okkar. Mikilvægi veiðanna mun aukast á næstu árum. Við ætlum að halda til- raunaveiðum áfram næstu eitt til tvö árin. Það veiðist fljótt upp í kvótann og niðurstöður tilraunaveiða benda til þess að það sé traustur grundvöll- ur fyrir því að við getum gefið út makríl- og síldarkvóta í framtíðinni.“ Undirstöðugreinar Hammond segir brýnt að Græn- lendingar standi sjálfir að baki rann- sóknum og tilraunaveiðum. Það sé liður í að öðlast aukið sjálfstæði. Litið sé á fiskveiðar, ferðaþjónustu og námavinnslu sem lykilgreinar fyrir hagvöxt á Grænlandi. Olíuboranir standi yfir við vesturströndina en enginn viti hvort næg olía finnist. – Karl Lyberth, sjávarútvegs- ráðherra í grænlensku landstjórn- inni, sagði mér fyrir hálfum mánuði að þið stefnduð að því að fá stöðu strandríkis við samningaborðið um skiptingu makríls og norsk-íslensku síldarinnar. Hver er staða málsins? „Á þessu stigi leggjum við áherslu á mikilvægi samræðna við ríkin sem eiga hagsmuna að gæta. Við fylgj- umst einnig vel með þróun mála hjá Íslendingum og Færeyingum. Við teljum mikilvægt að líta á svæðið sem heild, sem vestnorrænt svæði,“ segir Hammond og skírskotar til yfirstandandi deilna Færeyinga við Evrópusambandið vegna síldar- og makrílveiða annars vegar og hótana ESB um refsiaðgerðir á hendur Ís- landi vegna makrílveiða hins vegar. „Það skiptir máli að grannþjóðir okkar viti hvert við stefnum. Græn- lendinga bíða mikil tækifæri til auk- inna veiða austur af landinu. Þar er nú lítið veitt í ágóðaskyni. Grænlend- ingar eiga eftir að kortleggja og rannsaka fjölda fisktegunda sem kann að reynast arðbært að veiða,“ segir Hammond og nefnir að þörf sé á auknu fé til rannsókna og til- raunaveiða í grænlenskri lögsögu. Sæki aukið fé til ESB Þar horfi Grænlendingar til ESB, enda sé samband Grænlands og Evr- ópusambandsins gott, í ljósi þess að landið var áður eitt aðildarríkja Evr- ópusambandsins. „Við þurfum að gefa tilraunaveið- unum þann tíma sem þær þurfa. Við þurfum einnig að vera þolinmóð við úthlutun kvóta, þá ekki einvörðungu vegna Grænlands heldur einnig vegna nágrannaríkja okkar sem eru að veiða þessa stofna. Það er mikil- vægt að ríkisstjórnir Grænlands og Íslands ræði saman um þau áhrif sem það kann að hafa á íslenskan sjávarútveg ef Grænlendingar ætla að gefa út makríl- og síldarkvóta,“ segir Hammond og á við útgáfu kvóta til langframa, gefist til- raunaveiðar á makríl og síld vel. Spurð út í refsiaðgerðir ESB gegn Færeyingum vegna stóraukins síldarkvóta segir Hammond að hún beri virðingu fyrir getu Færeyinga til að bregðast hratt við breytingum sem séu að verða í lífríki hafsins. „Það er mjög mikilvægt að ESB gefi þessum breytingum í hafinu gaum og þeirri þýðingu sem þær hafa fyrir samstarfsríki sambands- ins. Ég tel jafnframt að ESB ætti að vera opnara gagnvart þeim breyt- ingum sem vestnorrænu ríkin eru að upplifa vegna hlýnunar og breytinga á hafstraumum,“ segir hún. Spurð hvaða stefnu Grænlend- ingar hafa mótað varðandi áhuga er- lendra ríkja á nýtingu auðlinda í landinu nefnir Hammond ný lög þar sem segi að öll auðæfi í jörðu á Græn- landi tilheyri fólkinu í landinu. Fari að innlendri löggjöf Sendiráð hvaðanæva úr heiminum hafi sýnt Grænlandi áhuga og að mikið álag sé á grænlenska stjórn- kerfinu vegna þessa. Viðbúið sé að fyrirhuguð náma- vinnsla muni hafa mikil áhrif á menn- ingu og líf svo fámennrar þjóðar. Fyrirhuguð nýting auðlinda sé enda lykilmál í stjórnmálaumræðu. „Síðustu kosningar snerust mikið um hvernig á að nota tekjur af auð- lindum á Grænlandi,“ segir Ham- mond og nefnir hvernig stjórn henn- ar vinni að nýjum lagaramma utan um auðlindanýtingu í landinu. Verður þar m.a. kveðið á um að er- lendir aðilar verði að fara að inn- lendri vinnulöggjöf og að innlent vinnuafl skuli nýtt í verkefni til jafns við aðflutt vinnuafl. Þá geti aðflutt vinnuafl aðeins dvalið í landinu með- an á framkvæmdum stendur. „Það má því til dæmis ekki flytja inn þúsundir kínverskra verkamanna aðeins af því að þeir eru ódýr starfs- kraftur. Það er minn vilji að við höld- um hér í heiðri sömu gildi og við ger- um sem þjóð. Við þurfum að gæta okkur á því að verða ekki minnihluti í okkar eigin landi. Ef við gætum okk- ar ekki verða námafyrirtækin aðeins að einni margra leiða til að komast inn í landið. Við þurfum að gefa okkur nægan tíma en ekki miða við þann tíma- ramma sem fyrirtækin vilja setja okkur. Við þurfum að stjórna hrað- anum. Við erum smáþjóð, mjög fá- menn þjóð, og námavinnsla er ný fyr- ir okkur. Við ætlum okkur að hafa hag af þessari þróun. Ég er mjög bjartsýn og tel að við munum úthluta tveim leyfum til námavinnslu á kjör- tímabilinu.“ Spurð hvenær hún telji að Græn- land fái efnahagslegt sjálfstæði frá Dönum kveðst Hammond, sem er 47 ára, vonast til að hún eigi eftir að upplifa það áður en hún deyr. Verði liður í sjálfstæðisbaráttunni Morgunblaðið/RAX Forystukona á Grænlandi Aleqa Hammond hefur hlýja nærveru en ber með sér að vera kona ákveðin.  Formaður grænlensku landstjórnarinnar boðar mikla uppbyggingu í sjávarútvegi landsins  Með því skapist auknar tekjur sem færi Grænlendinga nær efnahagslegu sjálfstæði síðar á öldinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.