Morgunblaðið - 06.09.2013, Page 20

Morgunblaðið - 06.09.2013, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND Tískudagar í Bata um helgina Vertu vinur á afsl. af dömu og herra skóm20% 36.990.- 21.990.-32.990.- 21.990.- 29.592.- 17.592.-26.392.- 17.592.- 12.990.- Sumarið er komið í Álafoss ÁLAFOSS Álafossvegur 23, Mosfellsbær Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00 Laugard. 09:00 - 16:00 www.alafoss.is fjórðungs hlut í hvoru leyfi eins og samningur Íslands og Noregs frá árinu 1981 heimilar þeim, að því er fram hefur komið í fjölmiðlum. Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri verkfræðistofunnar Mannvits, sagði að honum þætti líkt og það hefði runnið á landann gullgrafaraæði í kringum olíuleitina. „Það eru sterkar vísbendingar um að það sé olía á Drekasvæðinu. Það á eftir að sann- reyna það. Við skulum hafa varann á og ganga hægt um gleðinnar dyr,“ sagði hann. Olíuleit minnir um margt á nýtingu jarðvarma, að hans sögn. Tilkostnað- urinn sem og ávinningur er mestur í upphafi á meðan leitað er, og minnkar eftir því sem lengra dregur í vinnslu- ferlinu. Þegar nýta á jarðvarma er búið að leggja fram 30% af heildar- fjárfestingunni áður en vitað er hvort svæðið sé nýtanlegt. Sækir um olíuleit- arleyfi í næstu viku  Eykon leggur fram þrjár umsóknir um olíuleit í næstu viku Morgunblaðið/Kristinn Olíufundur Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Eykon, og Morten Lindbæck, sérfræðingur hjá fjármálafyrirtækinu Fondsfinans í Noregi, héldu erindi um olíuleit í Hörpu á fundi í gær. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Íslenska olíuleitarfyrirtækið Eykon hefur opnað skrifstofu í Noregi og mun leggja fram þrjár umsóknir um leitarleyfi í næstu viku. Sótt er um tvö svæði í Norðursjó og eitt í Noregs- hafi. Fyrirtækið hefur þegar fengið tvö leyfi á Drekasvæðinu, reyndar er hið seinna ekki formlega í höfn. Þetta sagði Gunnlaugur Jónsson, forstjóri fyrirtækisins, á fundi sem VÍB, eignastýringarþjónusta Íslands- banka, stóð fyrir í gær í Hörpu, undir yfirskriftinni: Er íslenskt olíuævin- týri í uppsiglingu? Blásið var til fundarins vega þess að tvö íslensk félög hafa fengið leyfi til að leita að olíu á Drekasvæðinu. Orkustofnun veitti félögunum Faroe Petroleum Norge og Íslensku kol- vetni annars vegar og Valiant Petro- leum og Kolvetni hins vegar sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á svæðinu. Auk þess hafa norsk stjórnvöld ákveðið að norska ríkisolíufélagið Petoro verði þátttakandi í báðum leyfunum, að Noregur tekur þátt » Orkustofnun hefur veitt ís- lenskum félögum sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetn- is (olíu og gass) á Drekasvæð- inu. » Norska ríkisolíufélagið Pe- toro verður þátttakandi í báð- um leyfunum, að fjórðungshlut í hvoru leyfi, samkvæmt samn- ingi frá 1981.                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +//.12 ++3.+4 ,+.54/ +4./55 +/.,,+ +,/.11 +.,-/2 +/,.1/ +34.2, +,+.+5 +/4.,, ++3.35 ,+.02+ +4./4+ +/.,10 +,4.+5 +.,+,+ +/5.5, +2-.-1 ,-,.50-3 +,+.0, +/4.2/ ++3./1 ,+.3,0 +4.404 +/.5,1 +,4.04 +.,+32 +/5./2 +2-.3, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Engar breytingar verða gerðar á stýrivöxtum Evrópska seðlabankans næsta mánuðinn, sem er í samræmi við það sem spáð hafði verið. Peninga- stefnunefnd bankans komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum í gærmorgun. Stýrivextir Evrópska seðlabankans eru 0,50%. Bankinn spáir því að verðbólga mælist 1,5% á evrusvæðinu í ár og að verðbólgan verið komin niður í 1,3% ár- ið 2014. Ekki voru heldur gerðar breytingar á öðrum vöxtum bankans á fundi nefnd- arinnar í gær. Er vaxtaákvörðunin í sam- ræmi við væntingar sérfræðinga á fjár- málamarkaði. Hagvöxtur mældist 0,3% á evru- svæðinu á öðrum ársfjórðungi. Stýrivextir á evrusvæð- inu verða áfram 0,5% ● Reginn hf. hefur gert tilboð í 100% hlutafjár í Eik fasteignafélag hf. Kauptilboðið miðast við að greitt verði fyrir allt hlutafé í félaginu með nýju hlutafé í Regin hf., að nafnverði 603 m.kr., samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær. Gangi viðskiptin eftir og allt hlutafé í Eik verði keypt mun það þýða að nýir eignarhlutir í Reginn hf. sem gefnir verða út vegna kaupanna munu nema u.þ.b. 32% af heildarhlutafé félagsins. Hver hlutur í Eik er í tilboðinu metinn á 5,05 krónur á hlut. Það er 21% yfir gengi bréfa Eikar í 750 milljóna króna hlutafjáraukningu félagsins í ágúst. Þar var gengið 4,15 krónur á hlut. Miðað við tilboðsverðið greiðir Reginn um 8,1 milljarð króna fyrir allt hlutafé í Eik. Framangreind tilboðsfjárhæð er byggð á uppgjörsupplýsingum sem hafa verið birtar á árinu 2013, þ.e. ársreikningi 2012 og uppgjöri fyrsta og annars ársfjórðungs þessa árs. Tilboðið sem gildir til 20. september nk. er með fyrirvara um að tilboðs- gjafi fái aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum félagsins til að unnt verði að fram- kvæma lögfræði-, fjárhags-, tækni- og skattalega áreiðanleikakönnun á félaginu. Tilboðið er gert með fyrirvara um samþykki hluthafa Regins. Ef af viðskiptunum verður er áætlað að þeim verði lokið fyrir áramót. Reginn gerir tilboð í 100% hlutafjár í Eik Smáralind er eign Regins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.