Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 24
ÍSAFJÖRÐURDAGA
HRINGFERÐ
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Vínarbrauðin volg þar fást og
margvíslegt annað góðgæti. Mjúkir
snúðarnir, hjúpaðir dökku súkku-
laði, eru löngu orðnir landsfrægir.
Stökkar kringlur með kúmenkeim,
napóleonskökur sem eru dálæti
forsetans og brauð af öllum mögu-
legum tegundum. Í Gamla bak-
aríinu á Ísafirði hefur verið bakað
frá árinu 1871 og gamlar upp-
skriftir eru í heiðri hafðar.
Það er gaman að koma í
Gamla bakaríið. Ekki bara vegna
góðgætisins sem þar er bakað,
heldur líka vegna þess að þar er
einstaklega notalegt andrúmsloft.
Óvenjulegt veggskraut vekur at-
hygli. „Þetta er veggur aldraðra
Ísfirðinga,“ segir Árni Aðalbjarn-
arson, bakarameistari í Gamla
bakaríinu, og bendir á einn vegg-
inn í bakaríinu sem er prýddur
ljósmyndum af rosknu fólki. „Ég
vildi heiðra þetta góða fólk.“
Uppskriftir úr afatíð
Áður gengu þarna um bak-
arísgólf afi og faðir Árna. Að sögn
Árna var bakaríið stofnað árið
1871 af Þorsteini Þorsteinssyni.
Það var í eigu nokkurra bakara
uns afi Árna, Tryggvi Jóakimsson,
keypti bakaríið árið 1920. Hann
var ekki bakaramenntaður og réð
því bakara til starfa. Faðir Árna,
sem lærði bakaraiðn í Kaupmanna-
höfn, tók við rekstrinum eftir lát
föður síns árið 1956. Við lát hans
árið 1970 tók móðir Árna, Ruth
Tryggvason, við rekstrinum ásamt
börnum sínum. Hún lést árið 2011
og nú er Árni við stjórnvölinn. Í
Gamla bakaríinu vinna tólf, þar af
eru fimm bakarar.
„Hér hafa margar uppskriftir
verið notaðar síðan í tíð afa míns,“
segir Árni. „Til dæmis rúgsigti-
brauðið og napóleonskökurnar.Við
erum auðvitað mjög montin yfir
því að forsetinn okkar segist
hvergi hafa fengið jafngóðar
napóleonskökur og á Ísafirði. Svo
eru það kringlurnar okkar og
snúðarnir og jólakökurnar þykja
einstakar.“
Stóð uppi á sultufötu
Árni segir kringlurnar hafa
haldið velli í öldusjó tískustrauma í
neysluvenjum. „Þær eru alveg sér
Sigtibrauð,
napóleonskök-
ur og snúðar
Í Gamla bakaríinu á Ísafirði er bak-
að eftir þrautreyndum uppskriftum
„Ég tók leikhúsið með mér hingað
til Ísafjarðar. Og þá fyrst byrjaði
fjörið fyrir alvöru,“ segir Elfar
Logi Hannesson, leikari hjá Kóme-
díuleikhúsinu á Ísafirði. Leikhúsið
stofnaði hann í Reykjavík, en líf
færðist í starfsemina þegar Elfar
fluttist til Ísafjarðar árið 2000. Síð-
an þá hefur leikhúsið sett upp yfir
30 sýningar og flestar sækja þær
efniviðinn í vestfirskan sagnaarf.
Meðal annars hafa verið sett upp
leikrit um Samúel í Selárdal, Sig-
valda Kaldalóns og æskuár Jóns
Sigurðssonar.
Í vetur verða sett upp tvö verk,
annars vegar Fjalla Eyvindur og
hins vegar sýning byggð á Höllu,
ljóðabók Steins Steinars. Í síð-
arnefndu sýningunni nýtur leik-
húsið fulltingis finnsks ballettdans-
ara, en að öllu jöfnu starfa Elfar og
eiginkona hans, Marsibil Kristjáns-
dóttir, að sýningunum.
„Við erum leikhús á hjólum, sýn-
ingarnar okkar eru ferðavænar og
leikmyndirnar eru einfaldar. Við
getum því sýnt hvar sem er og för-
um í skóla, félagsheimili og á menn-
ingarhátíðir. Sú af okkar sýningum
sem hefur farið víðast er Gísli Súrs-
son, en við höfum farið með hana í
allflesta skóla á landinu og erlend-
is.“
Listfengir Ísfirðingar
„Það er full vinna á veturna að
sækja alla þá listviðburði sem eru í
boði á Ísafirði,“ segir Elfar Logi.
„Hér er öflug leiklistarstarfsemi og
mikið um að vera í myndlistar- og
tónlistarlífi. Heimamenn eru af-
skaplega skapandi og listfengir og
svo koma hingað listamenn alls
staðar að af landinu. Þetta gerist
ekki betra.“ annalilja@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kómedíuleikarinn Elfar Logi í gervi Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri.
Mikið fjör í Kómedíuleikhúsinu
og listalífið er í blússandi blóma
Fiskbúð Sjávarfangs
Sindragötu 11 – Ísafirði
Fiskbúð Sjávarfangs óskar
Morgunblaðinu til hamingju
með 100 ára afmælið
Og ísfirðingum með að hafa
aðgang að frábærri fiskbúð
Frábær heyrnartól
HAFNARSTRÆTI 12 · ÍSAFIRÐI · SÍMI 456 4751
STÓRKOSTLEG NÝ
SJÓNVÖRP
45.900
L I S TAVERÐ : TILBOÐSVERÐ:
36.900
FM útvarp með 40 stöðva minni · Spilar: CD, MP3, WMA, iPod,
iPad (gegnum usb) · USB, RCA, Heyrnartól, Video out (f. iPod)
· 2 x 15W hátalarar · Spilar og hleður iPod
Hljómtækjastæða
X-CM31
6400 LÍNAN
UExxF6475SB:
40" = 199.900
46" = 249.900
55" = 379.900
65" = 699.900