Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 25
Morgunblaðið/Kristinn
Brauð og kökur Í Gamla bakaríinu eru hefðirnar í hávegum hafðar.
á báti hvað það varðar, en við bök-
um líka mikið af ýmsum sér-
brauðum eins og t.d. orkubrauð-
um, sem eru mjög vinsæl. Vínar-
brauðin eiga líka marga
aðdáendur.
Ef ég á að nefna eitthvað eitt
sem mér finnst
skemmtilegast að
baka, þá eru það
terturnar. Ann-
ars hefur mér
aldrei fundist
þetta leið-
inlegt, mér
finnst alltaf
jafngaman að
mæta í vinnuna.
Ég væri varla bú-
inn að vera í þessu í
tæpa hálfa öld ef mér leiddist.
Ég er auðvitað alinn upp við þetta,
ég byrjaði að hjálpa til í bakaríinu
þegar ég var svo lítill að ég þurfti
að standa uppi á sultufötu til að ná
upp á borð.“
Hvert er leyndarmálið á bak
við velgengni í bakarísrekstri?
„Þetta er hörkuvinna, eins og allt
annað, og það þarf að vera með
hugann við þetta meira eða minna
öllum stundum. Við höfum haldið í
það gamla og fólki líkar það vel.
Við leggjum líka mikla áherslu á
handverkið, við erum t.d. eitt fárra
bakaría sem gera eigin kleinu-
hringi frá grunni. Það eru margir
að hita þetta upp.“
Árni gefur lítið fyrir vinsæla
matarkúra, þar sem fólki er ráðið
frá því að borða brauð. „Það er svo
mikil orka í kolvetnunum og nauð-
synlegt að borða brauð. Sjálfur
borða ég a.m.k. 8-10 brauðsneiðar
á dag. Enda væri annað slæmt til
afspurnar.“
Fékk viðurnefni árið 1884
„Það er smá saga á bak við
nafnið á bakaríinu. Þetta var
fyrsta bakaríið hér á Ísafirði og
hét þá bara Bakaríið. Norðmenn
opnuðu bakarí hér árið 1884, það
var kallað norska bakaríið og þá
var farið að kalla þetta gamla bak-
aríið.“
Árni segir algengt að fólk sem
leið eigi um Ísafjörð noti tækifærið
til að birgja sig upp af ýmsum
kræsingum sem ekki fást annars
staðar, bæði brottfluttir Ísfirð-
ingar og aðrir. „Svo er líka tölu-
vert um að fólk hringi hingað, láti
setja í poka fyrir sig og senda með
flugi til Reykjavíkur.“
Hvað finnst bakaranum best í
Gamla bakaríinu?
Kringlan er best. Og það er
allra best að kljúfa hana í tvennt,
smyrja með jarðarberjasultu og
setja ost ofan á. Þá er ég glaður.“
Morgunblaðið/Kristinn
Árni bakari „Ég
væri varla búinn
að vera í þessu í
tæpa hálfa öld ef
mér leiddist.“
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Næsti viðkomustaður 100
daga hringferðar Morgunblaðs-
ins er Bolungarvík.
Á morgun
Fægður og flöskugrænn fornbíll með áletruninni „Gamla bakaríið.
Gamalt en síungt“ stendur fyrir framan Gamla bakaríið og vekur at-
hygli þeirra sem framhjá fara. Hann er í eigu Árna og Rósu konu hans,
en þau rákust á bílinn á ferðalagi um England fyrir nokkrum árum og
festu í framhaldinu kaup á honum. „Þetta er enskur T-Ford, árgerð 1924
og í toppstandi. Við keyrum hann alltaf heim á kvöldin,“ segir Árni.
Ungur miðað við bakaríið
BÍLL GAMLA BAKARÍSINS