Morgunblaðið - 06.09.2013, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Tæplega 200 harmónikur, 190 talsins svo rétt sé með
farið, standa bísperrtar á lofti gamla pakkhússins í
Neðstakaupstað á Ísafirði. Sumar gljáfægðar og lit-
skærar, aðrar eru máðar af notkun. Þetta er harm-
onikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar, elsti gripurinn er
frá árinu 1830 og í safninu er margar harmonikur
sem áður voru í eigu þekktra íslenskra harmoniku-
leikara.
„Ásgeir færði okkur safnið að gjöf árið 2008, en
hann hafði safnað harmonikum í áratugi. Þá taldi
safnið um 140 harmonikur, en síðan þá hefur bæst
nokkuð í safnið,“ segir Björn Baldursson safnvörður
í Byggðasafni Vestfjarða sem hefur umsjón með
safninu. „Flestar eru íslenskar, en sumar hafa verið
pantaðar að utan. Margar eru gríðarlega fágætar,“
segir Björn.
Húsið sem nikkurnar hýsir, Turnhúsið, er ekki
síður merkilegt en það er eitt gömlu húsanna í
Neðstakaupstað. Þau eru frá tíma dönsku einok-
unarverslunarinnar og eru elsta varðveitta húsa-
þyrping landsins. Þar er Byggðasafn Vestfjarða til
húsa og einnig hefur þar verið rekinn veitinga-
staður. Elsta húsið á svæðinu er Kramhúsið sem var
byggt árið 1757 og eins og nafnið gefur til kynna var
þar rekin verslun. Um 10.000-11.000 manns sækja
Neðstakaupstað heim árlega og koma margir þeirra
af erlendum skemmtiferðaskipum.
Turnhúsið á sér langa sögu
„Þetta hús, Turnhúsið, var áður pakkhús og var
byggt 1784 af dönsku einokunarkaupmönnunum.
Hér var lengi geymsla, en húsið var lítið notað seinni
hluta 20. aldarinnar,“ segir Björn. Hann segir að
þegar ákveðið var að gera húsið upp um 1970 hafi
það verið fullt af drasli. „Allt burðarvirkið er upp-
runalegt, en gólfið hefur verið endurgert. Hér kom
eldur upp í tvígang á síðustu öld, en sem betur fer
urðu skemmdirnar ekki mjög miklar.“
Harmonikurnar þarf að meðhöndla og varð-
veita með gát. Þær eru viðkvæmar, belgurinn er úr
pappa og rétt rakastig og hitastig skiptir miklu máli,
að sögn Björns.
Er hægt að spila á þær allar? „Kannski ekki al-
veg allar, en flestar.“
Meira en 200 ára gamalt hús í Neðstakaupstað geymir gersemar
Morgunblaðið/Kristinn
Harmonikur Af öllum stærðum og gerðum standa þær í röðum í lofti Turnhússins í Neðstakaupstað á Ísafirði.
Hundrað og níutíu harm-
onikur á pakkhúslofti
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Það leggst heldur betur vel í mig
að flytja á heimaslóðirnar. Ég hafði
reyndar alltaf hugsað mér það, en
svo fékk ég tækifærið með þessu
starfi,“ segir Edda María Hagalín
sem nýlega var ráðin fjármálastjóri
Ísafjarðarbæjar.
Edda María er fædd og uppalin
á Ísafirði og þar er fjölskylda henn-
ar búsett að mestu. Hún er gift
Alexíusi Jónassyni, sem ættaður er
úr Æðey í Ísafjarðardjúpi, og eiga
þau tvær dætur, fimm ára og átta
mánaða.
Edda María lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Ísafirði og
fór síðan til náms í viðskiptafræði í
Háskólanum í Reykjavík. Að námi
loknu starfaði hún hjá Deloitte.
Spurð um nýja starfið segist
hún hlakka til að fást við það. „Þetta
felur í sér umsjón með fjármálum
sveitarfélagsins, áætlanagerð, um-
sjón með bókhaldinu og skýrslugerð.
Barnvænt samfélag
Við höfðum talað um að flytja á
Ísafjörð áður en eldri dóttir okkar
byrjaði í grunnskóla. Þetta er svo
æðislegt samfélag til að vera með
börn. Þarna eru góðir skólar og úr
svo mörgu að velja fyrir börnin, góð-
ur tónlistarskóli og fjölbreyttar
íþróttir. Svo þurfa foreldrar ekki að
verja löngum tíma í að keyra börnin
í tómstundir eins og víða annars
staðar.“
Nýi fjármálastjórinn hlakkar
til að flytja á heimaslóðirnar
Tilhlökkun Edda María Hagalín er nýr fjármálastjóri Ísafjarðar og hlakkar
til að flytja í bæinn en þar ólst hún upp. Hún segir samfélagið vera barnvænt.
ÍSAFJÖRÐURDAGA
HRINGFERÐ
Fitulítil og
próteinrík . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Særaf ehf. • Silfurgata 5, 400 Ísafirði • Sími 450 6000
Verslun: Tölvur, aukahlutir, símar o.m.fl.
Tölvuþjónusta: Ráðgjöf,
kerfisþjónusta og tölvuviðgerðir
Bátaþjónusta: Uppsetning og
viðgerðir á siglingatækjum.
Margra ára reynsla