Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Nýjustu skoðanakannanir benda til
þess að Erna Solberg, leiðtogi
Hægriflokksins, verði næsti forsætis-
ráðherra Noregs og myndi ríkissjórn
með Framfaraflokknum með stuðn-
ingi eins eða tveggja miðflokka eftir
þingkosningar á mánudaginn kemur.
Gangi það eftir verður þetta í fyrsta
skipti sem Framfaraflokkurinn
kemst til valda frá því hann var stofn-
aður fyrir fjórum áratugum.
Framfaraflokkurinn var næst-
stærsti flokkurinn í síðustu þing-
kosningum í Noregi fyrir fjórum ár-
um, fékk þá 22,9% atkvæða og 41
þingsæti. Hann hefur reyndar verið
næststærstur í þrennum kosningum,
á árunum 1997, 2005 og 2009, en aðrir
flokkar, sem hafa sakað hann um
öfgastefnu, hafa hingað til hafnað
stjórnarsamstarfi við hann.
Hægriflokkurinn léði máls á sam-
starfi við Framfaraflokkinn í síðustu
kosningum en miðflokkarnir Kristi-
legi þjóðarflokkurinn og Venstre
tóku það ekki í mál. Andstaðan við
flokkinn hefur hins vegar minnkað í
miðflokkunum. Eins og staðan er
núna er talið líklegast að Hægri-
flokkurinn og Framfaraflokkurinn
myndi minnihlutastjórn með stuðn-
ingi miðflokkanna tveggja. Þótt
flokkarnir fjórir deili um margt,
t.a.m. um málefni innflytjenda og
umhverfismál, eru þeir á einu máli
um að mestu máli skipti að binda
enda á átta ára valdatíma vinstri-
flokkanna.
Hefur mildað tóninn
Framfaraflokkurinn hefur lagt
áherslu á að lækka skatta, tryggja
frelsi einstaklingsins, draga úr skrif-
finnsku og koma á auknu markaðs-
frelsi. Hann er einnig hlynntur því að
olíusjóður Noregs verði notaður til að
fjárfesta í innviðum landsins.
Framfaraflokkurinn hefur verið
sakaður um að ala á hatri á útlend-
ingum, einkum múslímum, en
flokkurinn fordæmdi fjöldamorð
Anders Behring Breivik og hefur
mildað tóninn í yfirlýsingum sínum
um innflytjendamál. Hann er þó enn
hlynntur því að löggjöfin um innflytj-
endur verði hert.
Stefnir í að Fram-
faraflokkurinn
komist til valda
Talið að hægriflokkarnir myndi
minnihlutastjórn með hjálp miðflokka
AFP
Leiðtogi Siv Jensen hefur farið fyr-
ir Framfaraflokknum frá 2006.
Þriðji stærstur
» Nýjasta skoðanakönnun Ver-
dens Gang bendir til þess að
Framfaraflokkurinn verði þriðji
stærsti flokkur Noregs og þing-
sætum hans fækki úr 41 í 25.
» Verkamannaflokknum er
spáð 51 þingsæti og Hægri-
flokknum 49. Skv. nýjustu
könnuninni gætu Hægriflokk-
urinn og Framfaraflokkurinn
náð meirihluta með Kristilega
þjóðarflokknum sem er spáð
tólf þingsætum. Hugsanlegt er
þó að hægriflokkarnir þurfi
einnig stuðning miðflokksins
Venstre sem er spáð 10 sæt-
um.
Ásakanir um að Þjóðarörygg-
isstofnun Bandaríkjanna hefði
njósnað um forseta Brasilíu og
Mexíkó vörpuðu skugga á leið-
togafund G20-ríkjanna. Forset-
arnir kröfðust báðir skýringa á
fréttum um að stofnunin hefði
njósnað um þá og fylgst með
tölvusamskiptum þeirra. Forseti
Brasilíu, Dilma Rousseff, stöðv-
aði undirbúning fyrirhugaðrar
heimsóknar sinnar til Wash-
ington 23. október og forseti
Mexíkó, Enrique Pena Nieto,
krafðist rannsóknar á málinu.
Njósnað um
leiðtogana?
KURR Í FORSETUM
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogar G20-ríkjanna ræddu
ágreining sinn um hvort grípa ætti til
hernaðaraðgerða í Sýrlandi yfir
kvöldverði í boði Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta í Peterhof-höll ná-
lægt Pétursborg í gærkvöldi.
Deilan um Sýrland var ekki form-
lega á dagskrá leiðtogafundarins en
togstreitan vegna hennar var svo
mikil að um tíma var útlit fyrir að hún
myndi raska dagskránni. Pútín til-
kynnti á síðustu stundu að leiðtogarn-
ir gætu rætt Sýrlandsmálið yfir
kvöldverðinum, að sögn fréttaveit-
unnar AFP. Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, reyndi að sannfæra
leiðtogana um að nauðsynlegt væri að
grípa til hernaðaraðgerða gegn Sýr-
landsstjórn vegna mannskæðrar eit-
urgassárásar í Damaskus í ágúst.
Samantha Power, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sagði að Rússar héldu öryggis-
ráði SÞ „í gíslingu“ í Sýrlandsdeilunni
og hefðu brugðist alþjóðlegum skyld-
um sínum. Öryggisráðið hefði einnig
brugðist sýrlensku þjóðinni vegna
gallaðs kerfis sem gerði Rússum
kleift að halda ráðinu í gíslingu með
því að beita neitunarvaldi sínu. „Í stað
þess hefur kerfið verndað forréttindi
Rússa – verndara einræðisstjórnar
sem hefur blygðunarlaust gert mestu
efnavopnaárás í heiminum í aldar-
fjórðung.“
Fundu merki um sarín
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að rannsókn breskra
vísindamanna á sýnum úr jarðvegi og
fötum frá árásarstaðnum hefði leitt í
ljós að efnavopnum hefði verið beitt.
AFP hafði eftir breskum embættis-
manni að niðurstaða rannsóknarinn-
ar væri að sarín-gasi hefði verið beitt.
AFP
Togstreita á leiðtogafundi Vladímír Pútín og Barack Obama heilsast fyrir leiðtogafundinn í Pétursborg í gær.
Segir Rússa halda ör-
yggisráðinu í gíslingu
Leiðtogar G20-ríkja deildu um Sýrland yfir kvöldverði
Suðurkóreska raftækjafyrirtækið
Samsung hefur kynnt snjallúr sem
hefur marga af helstu kostum snjall-
síma. Úrið er með litaskjá, getur
tekið við skilaboðum, hægt er að
nota það sem síma og hlaða í það
smáforritum.
Snjallúrið var kynnt á IFA-
raftækjasýningunni í Berlín sem
hófst í fyrradag. Snjallúrinu er ekki
ætlað að koma í stað snjallsíma held-
ur er það hugsað sem aukabúnaður
við Galaxy-síma Samsung sem eru
mest seldu snjallsímar í heimi um
þessar mundir. Fréttavefur BBC
hefur eftir sérfræðingum að það geti
þýtt að úrið eigi ekki eftir að slá í
gegn með sama hætti og Galaxy-
símarnir.
Samsung hefur skýrt frá því að
sala á vörum frá fyrirtækinu hafi
minnkað og því bíða fjárfestar eftir
því hvort fyrirtækinu tekst að setja
á markað vöru sem auki söluna að
nýju.
Sala á snjallúrinu hefst 25. sept-
ember. Fregnir herma að aðal-
keppinautur Samsung, Apple, hafi í
bígerð að setja snjallúr á markað
undir vörumerkinu iWatch.
Snjallúr sett á markað
Heimildir: Samsung/fréttir fjölmiðla
Lætur notandann vita af hringingum, sms-skilaboðum
og tölvupóstum
Gerir notandanum kleift að
hringja án þess að taka
farsímann úr vasanum
Með innbyggðan hátalara og hljóðnema
sem eru tengdir við Galaxy-snjallsíma
með bluetooth
Samsung kynnti snjallúrið á raftækjasýningu í Berlín
Ending
rafhleðslu:
um sólar-
hringur
Væntanlegt verð: um 300$ (36.000 kr.)
Hægt er að lesa inn textaskilaboð
Hægt er að nota ýmis smáforrit, m.a.
fyrir tónlist og skrefmæli
Verður sett á markað 25. september
4 GB
minni
4 cm
skjár
Myndavél:
1,9 milljóna
punkta upplausn
Samsung bindur vonir
við að snjallúr slái í gegn