Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Ég las fyrir stuttu ágæta grein eftir Ólaf Baldursson, fram- kvæmdastjóra lækn- inga LSH, í Mogg- anum. Í dag birtist svo frétt á mbl.is. með fyr- irsögninni „Neyð- arplan vegna lækna- skorts“. Þar er ástandinu lýst á spít- alanum eins og það horfir við viðmælandanum. Ég velti því fyrir mér hvort greinar sem þess- ar nái til vitundar meirihluta þjóð- arinnar og ráðamanna hennar? Sama á við um þetta tilskrif. Svo virðist sem þessi málaflokkur – heilbrigð- ismál – sé býsna langt frá hugsun þeirra sem ekki hafa þurft á aðstoð heilbrigðiskerfisins að halda. Margir – og þá sérstaklega þeir sem ekki hafa sjálfir eða fjölskyldur þeirra ennþá þurft á þjónustu kerfisins að halda – virðast líta svo á að það sé sjálfgefið að heilbrigðiskerfið „sé gott“. Ég efast um að þetta mat sé rétt. Á sama tíma og því er haldið fram að „kerf- ið sé gott“ sjáum við margar fréttir þar sem einstaklingar leggja mikið á sig utan kerfis til að vekja athygli á bágri stöðu margra sjúklingahópa. Nú síð- ast höfum við orðið vitni að mikilli baráttu og hjarta- gæsku Sigurðar Hallvarðssonar. Er þetta ástand á heilbrigðiskerfinu eitthvað sem við erum sátt við? Ólaf- ur bendir á að grunnurinn fyrir góð- um tölfræðilegum samanburði í dag var lagður fyrir 30 árum. Á því „lif- um“ við í dag. Hvað viljum við leggja afkomendum, börnum og barnabörn- um, til? Sjálfur naut ég þess að starfa fyrir samtök lækna í sjö ár. Á þeim tíma þurfti ég á heilbrigðiskerfinu að halda. Það reyndist mér vel. Síðan ég hætti að starfa fyrir samtökin hafa nánir fjölskyldumeðlimir þurft á kerfinu að halda. Samanburður er ekki nýjum tímum í vil. Starfsfólkið er jafnyndislegt og áður en allur að- búnaður er verri. Hin sjö góðu ár eru augljóslega að baki, næstu sjö ár geta fært okkur aftur til tíma sem við kærum okkur ekki um. Er einhver sem hefur áhyggjur af því? Varn- aðarorð Ólafs eru löngu tímabær – og vonandi að þau séu ekki skrifuð út í tómarúmið … Er íslenska heilbrigðis- kerfinu viðbjargandi? Eftir Gunnar Ármannsson »Hin sjö góðu ár eru augljóslega að baki, næstu sjö ár geta fært okkur aftur til tíma sem við kærum okkur ekki um. Gunnar Ármannsson Höfundur er framkvæmdastjóri Primacare. Ég hef verið að hugleiða málefni flugvallarins í Vatns- mýrinni mikið und- anfarin ár. Eins og ég hef nefnt áður á þessum vettvangi hefur staðsetning hans verið mér þyrn- ir í augum af marg- víslegum ástæðum, sem bæði ég og aðrir hafa rakið í skrifum okkar í dagblöð. Ég hef hugleitt gamla hugmynd Hrafns Gunnlaugssonar leikstjóra um að koma flugvellinum fyrir á Lönguskerjum, steinsnar frá nú- verandi staðsetningu. Mér hugn- ast sú hugmynd allvel þar sem aðrar staðsetningar eru að lík- indum ekki fyrir hendi. Þó mun næstbesta staðsetningin vera á Álftanesinu ef flugvöllurinn verður fluttur á annað borð. Þar er geysi- stórt landflæmi autt og ónotað, sem mun vera miklu meira en nægilega stórt undir alþjóða- flugvöll. Mér heyrðist á sínum tíma, þeg- ar þar til menntaðir flugspekingar viðruðu þá hugmynd opinberlega, að flestir þeir sem tjáðu sig töldu þeirri góðu hugmynd það helst til foráttu, að nálægðin við Bessa- staði væri of mikil. Í fljótu bragði virðist nú ekki vera stór munur á ónæði því sem Bessastaðabóndinn hefur af núverandi flugvelli og því ónæði sem kynni að verða af stað- setningu flugvallarins á Álftanes- inu, enda geri ég því skóna að að- flugsstefna brautanna yrði nokkurn veginn sú sama og er á núverandi flugbrautum. Augljóst má vera að yrði flugvöllurinn fluttur út á Löngu- sker, eins og ég nefndi í upphafi máls míns, yrði að byggja upp nokkurt land með jarðvegi. Það mætti auðveldlega gera með því að heimila jarð- vinnuverktökum á næstu árum að losa hentugan uppgröft af höfuðborgarsvæðinu á flugvallarstæðið fyr- irhugaða á Löngu- skerjum í stað þess að aka honum alla leið upp í námurnar í Bolöld- um, margfalda þá vegalengd sem er út á Löngusker. Það yrði í senn þjóðhagslega hagkvæmt í stór- sparnaði á sliti vörubílanna sem og á eldsneytiskostnaði auk þess sem fyllingin yrði ódýrust á þenn- an veg. Því ekki að undirbúa jarð- veginn með því að heimila þegar í stað losun jarðvegs á Lönguskerj- um þó svo að endanleg ákvörðun bíði seinni tíma? Það væri þá í öllu falli hægt að byggja þar íbúð- arbyggðina sem margir eru svo áfjáðir í að byggja á núverandi flugvallarstæði – eða þá að setja þar niður nýja Landspítalann. Ekki amalegt útsýni úr því sjúkra- húsi á Lönguskerjum! Reykjavíkur- flugvöllur Eftir Jóhann Boga Guðmundsson Jóhann Bogi Guðmundsson » Þó mun næstbesta staðsetningin vera á Álftanesinu ef flug- völlurinn verður fluttur á annað borð. Höfundur er vélvirkja- og húsasmíðameistari. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morg- unblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA KEMUR HEILSUNNI Í LAG Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.