Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Ég myndi giska á að ég væri 90 ára af útlitinu að dæma, en varað heyra það að ég yrði núna fimmtugur,“ segir SverrirStormsker, tónlistarmaður og afmælisbarn dagsins, sem
hefur varla ennþá áttað sig á því hversu gamall hann er. „Ég er ekki
með neitt sérstakt planað í tilefni þess hvað ég er orðinn hrikalega
gamall. Ætli ég fari ekki bara á einhverjar útfararstofur að máta
líkkistur og skoða legsteina. Og svo er náttúrlega meiningin að
detta dauður niður eins og lög gera ráð fyrir. Svo getur vel verið að
ég gifti mig, en það er nú kannski eitt og hið sama,“ segir Sverrir.
Sverrir er landsþekktur tónlistarmaður en hann fór í tónlistina af
praktískum ástæðum: „Ég nennti ekki að verða bankastjóri eða
hryðjuverkamaður, þó að það séu vissulega heillandi og vel launuð
störf. Mér fannst skáldskaparlistin meira spennandi og því starfi
fylgir aðeins meira næði.“ Á næsta ári verða liðin 30 ár frá því að
Sverrir fór út í tónlistina. „Þá kemur út svona fjögurra diska safn-
pakki með 80 lögum með úrvali af því besta.“ Sverrir er að spá í að
kalla gripinn „The Very Very Skást of Greatest Shits“. Fyrir utan
tónlistina hefur Sverrir ýmis áhugamál, þar á meðal snóker og pool.
„Ég var mikið í snóker á mínum yngri árum en færðist yfir í poolið
af augljósum ástæðum þegar bannað var að drekka í snóker árið
1996.“ Fyrir utan ballskákina hefur Sverrir gaman af bóklestri og
því að skjóta fíla í Afríku. „Það er alltaf gríðarlega hressandi að
plaffa niður fíla, kannski ekki fyrir fílana, en fyrir mig náttúrlega.
Mjög líflegt og skemmtilegt sport. Ég fíla að drita niður fíla. Ég
meina, hver gerir það ekki?“ sgs@mbl.is
Sverrir Stormsker er 50 ára í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fimmtugur á fílaveiðum Eitt af áhugamálum Sverris Stormskers er
að skjóta fíla í Afríku, sem mun vera hressandi fyrir alla nema fílana.
Hvorki bankastjóri né
hryðjuverkamaður
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Högni og Elín Héð-
insbörn og El-
ísabeth Ösp Ein-
arsdóttir héldu
tombólu fyrir utan
bókasafnið í Sól-
heimum. Þau söfn-
uðu 3.681 kr. sem
þau gáfu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Reykjavík Ásgeir Ragnar fæddist 25.
mars kl. 1.05. Hann vó 3.994 g og var
53 cm langur. Foreldrar hans eru Ás-
gerður Höskuldsdóttir og Sigurjón
Ragnar Rögnvaldsson.
Nýir borgarar
Akranes Guðrún Salka fæddist 24.
desember. Hún vó 3.100 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Rakel
Sigurðardóttir og Hróðmar Hall-
dórsson.
F
riðrik Adolfsson fædd-
ist á Eyrarvegi 2a á
Akureyri 6.9. 1953 og
ólst upp á Eyrinni.
Hann var auk þess
nokkur sumur í sveit á Gilhaga í
Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði.
Þegar hann hætti að fara í sveit á
sumrin vann hann í Dúkaverk-
smiðjunni hjá föður sínum.
Friðrik gekk í Oddeyrarskólann
og Gagnfræðaskólann á Akureyri
og lauk þaðan gagnfræðaprófi árið
1970. Hann hefur auk þess setið
nokkur námskeið á vegum HÍ og
annarra menntastofnana.
Að námi loknu hóf Friðrik störf
hjá Sjóvá á Akureyri. Hann flutti
síðan fljótlega til Reykjavíkur og
vann þar við Alþýðubankann.
Friðrik flutti til Ísafjarðar og
starfaði þar hjá Flugleiðum, 1974-
80. Þá flutti hann aftur til Akureyr-
ar og varð sölu- og markaðsstjóri
Friðrik Adolfsson, framkvæmdastjóri Norlandair – 60 ára
Í kjöltum fjölskyldunnar Friðrik og Kolbrún, ásamt börnunum, Hildi, Rúnari, Hörpu og Arnari.
Grænland að verða
land tækifæranna
Framkvæmdastjórinn Friðrik við eina af fjórum flugvélum Norlandair.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
MIKIL SALA
M.BENZ E 200 CGI Coupe
Blue Efficiency
Árgerð 2011, ekinn 19 Þ.KM,
bensín, topplúga, leður,
sjálfskiptur. Lækkað verð
8.290.000. Rnr.400049
HYUNDAI GETZ GLS DIESEL
06/2007, ekinn 125 Þ.km,
5 gíra. Verð 990.000.
Raðnr.250781
FORD F350
HARLEY DAVIDSON 4X4 40“
09/2005, ekinn 110 Þ.km,
dísel, sjálfsk. Nýuppt. hedd!
Nýskoðaður! Verð 3.890.000.
Raðnr.290121