Morgunblaðið - 06.09.2013, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 06.09.2013, Qupperneq 48
» MyndlistarsýninginWorks on Paper var opn- uð í galleríinu i8 við Tryggva- götu í gær. 30 listamenn, ís- lenskir sem erlendir, eiga verk á sýningunni en út- gangspunktur hennar er pappír, annars vegar tekist á við miðilinn sem efnivið og hinsvegar hugmyndafræði. Works on Paper var opnuð í i8 í gær Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir og Elsa Vestmann Stefánsdóttir. Örn Jóhannsson og Kristín Þorsteinsdóttir. Hrafnkell Sigurðsson og Auður Jörundsdóttir. Verk á sýningunni. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sölvi Signhildar-Úlfsson og Ástríður Magnúsdóttir. 48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Áárunum 1965 og 1966voru framin fjöldamorð íIndónesíu þegar komm-únistum var steypt af stóli af hægrisinnuðu hern- aðarbandalagi. Dauðasveitir spruttu upp hér og þar með það eitt að markmiði að útrýma kommúnisma. Menn deila enn um það í dag hversu margir voru aflíf- aðir en í The Act of Killing er því haldið fram að tala látinna hafi verið á bilinu ein til þrjár milljónir manna. Þeir sem stóðu fyrir morð- unum hafa enn ekki verið látnir gjalda fyrir þau, enda lifir arfleifð þeirra enn þann dag í dag góðu lífi þar í landi þó svo það sé á allra vitorði hversu hræðileg morðin voru. Leikstjóri myndarinnar, Joshua Oppenheimer, hélt til Indónesíu þar sem hann hitti fyrir glæpa- mennina Anwar Congo og Adi Zulkadry. Þeir fóru fyrir dauða- sveitum á sínum tíma og talið er að Congo hafi meðal annars myrt rúmlega þúsund manns upp á eig- in spýtur með ýmsum aftöku- aðferðum. Oppenheimer tjáði þeim að hann vildi kvikmynda aftökur þeirra og bað þá að setja þær á svið og tóku félagarnir vel í það. Það sem vakti þó fyrir Oppen- heimer var að búa til heimild- armynd um þessa fyrrverandi meðlimi dauðasveitanna setja voðaverk sín á svið. Þess má til gamans geta að einn framleiðenda myndarinnar er þýski leikstjórinn Werner Herzog. Kvikmyndin er virkilega flott og mörg atriði hennar myndu sóma sér vel í myndbandsverkum þar sem fagurfræðin er helsti drif- krafturinn. Það er einmitt einkar athyglisverð andstæða við þann viðbjóð sem Congo og Zulkadry lýsa fyrir áhorfendum að hafi átt sér stað. Andar asískra hroll- vekjuköltmynda svífa einnig yfir vötnum og þá helst í atriðum þar sem Congo setur á svið eigin mar- traðir sem hafa plagað hann frá því að aftökunum lauk. Listrænt eðli kvimyndarinnar gerir það þó að verkum að stundum virðist framvinda hennar svolítið sam- hengislaus og áhorfandinn þarf að hafa sig allan við að skilja hvað er í gangi, sem þarf svo sem ekki endilega að vera neikvætt ef farið er út í það. Oppenheimer nær engu að síður að byggja upp ákveðinn strúktúr og þær persónur sem áhorfandinn kynnist í byrjun myndarinnar, þá helst Congo, mæta nokkurs konar innri mótspyrnu sem þær þurfa síðan að glíma við eins og góðu handriti sæmir. Congo áttar sig til að mynda smám saman á því hversu viðbjóðslegur verknaður morðin voru og fer að velta fyrir sér hvort hann hafi í raun og veru syndgað. Oppenheimer gerir vel í því að skeyta því saman við hvern- ig morðingjarnir hafa glímt við samvisku sína í gegnum tíðina og í raun ótrúlegt hversu góðu lífi margir þeirra virðast lifa. Það er einnig áhugavert hvernig kvik- myndin sýnir fram á að hið góða og hið illa býr innra með öllum. Áhorfendum er til að mynda sýnt hvernig aðalpersóna myndarinnar, og jafnframt vondi karlinn ef svo má að orði komast, getur verið góður við afabörn sín og virðist hafa samvisku. Kvikmyndin er mjög átakanleg og má þar nefna viðbjóðslegar lýs- ingar félaga dauðasveitanna á því hvernig þeir aflífuðu kommúnista og Kínverja með því að troða við- arskafti upp í endaþarm þeirra og hvernig þeir hafi dottið í lukku- pottinn þegar þeir nauðguðu börn- um andstæðinga sinna. Oppen- heimer nær á lunkinn hátt að sýna hvernig spillingin viðgekkst á ýmsum stöðum á tímum dauða- sveitanna og hvernig sú myglu- skán lifir enn utan á indónesísku samfélagi í dag. Einhverjir hafa haldið því fram að Oppenheimer hafi gerst sekur um ósiðlegt athæfi með því að ganga á bak orða sinna og búa til heimildamynd í stað hefðbund- innar kvikmyndar með morð- ingjana sem aðalleikara eins og hann sagðist ætla að gera. Sjaldan skal réttlæta illt með illu en ef sú lygi varpar ljósi á þau viðbjóðs- legu morð sem þarna áttu sér stað, og bregður jafnvel fæti fyrir þau öfl sem stóðu fyrir morðunum og hafa enn í dag víðtæk völd í landinu, finnst mér tvískinnungur Oppenheimers nú fyrirgefanlegur. Góðir rannsóknarblaðamenn hafa gert slíkt hið sama. The Act of Killing er virkilega áhugaverð kvikmynd, ekki síst fyrir þær sakir hversu lítið Vest- urlandabúar virðast vita um við- bjóðinn sem þarna átti sér stað. Bíó Paradís fær að sama skapi hrós fyrir að velja myndina til sýningar og fari það í hurðalaust helvíti að einungis fjórir skyldu mæta á frumsýningu hennar hér á landi. Áhugaverð „The Act of Killing er virkilega áhugaverð kvikmynd, ekki síst fyrir þær sakir hversu lítið Vesturlandabúar virðast vita um viðbjóðinn sem þarna átti sér stað,“ segir m.a. í gagnrýni um kvikmyndina. Sadistar túlka eigin sora Bíó Paradís The Act of Killing bbbbm Leikstjórn: Joshua Oppenheimer. Nor- egur, Danmörk og Bretland, 2012. 122 mín. DAVÍÐ MÁR STEFÁNSSON KVIKMYNDIR TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun MEIRA ÚRVAL MEIRI GÆÐI ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 Boðið verður upp á listamanna- spjall um sýningu Spessa, Nafnlaus hestur, í Ljósmyndasafni Reykja- víkur í kl. 12.10 í dag. Spessi mun, ásamt Einari Kárasyni rithöfundi og Jóni Proppé listheimspekingi, ræða um tilurð sýningarinnar og mun þríeykið skoða vegamenn- inguna út frá Djöflaeyjunni, áhrif- um skrifa Jack Kerouac og upp- lifun sinni á amerískri menningu, eins og segir í tilkynningu. Safnið er til húsa í Grófarhúsi við Tryggvagötu, á 6. hæð. Vegamenning Ein af ljósmyndum Spessa á sýningunni Nafnlaus hestur. Spjallað um sýningu Spessa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.