Morgunblaðið - 06.09.2013, Page 52

Morgunblaðið - 06.09.2013, Page 52
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 249. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Ósamstæðir skór vegna sýkingar 2. Ég hef ekki farið í neinar ... 3. Atli Þór selur penthouse-íbúðina 4. Sviðin jörð svikara »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndafyrirtækið RVK Studios hefur stofnað dótturfélag sem nefn- ist HTMC ehf. í tengslum við kvik- mynd kanadíska leikarans Ryans Goslings, How to Catch a Monster, þá fyrstu sem hann leikstýrir. RVK Stud- ios er að hluta í eigu leikstjórans Baltasars Kormáks. Frá þessu segir á vef News of Iceland. Valdís Ósk- arsdóttir klippir myndina og hefur Gosling dvalið hér á landi frá því um miðjan júlí, með hléum, og unnið í myndinni. Auk klippingar fer mestur hluti eftirvinnslu myndarinnar fram hér á landi, hjá fyrirtækinu Frame- stone sem Baltasar og Daði Einars- son eiga, þ.e. þann hluta þess sem er hér á landi. How to Catch a Monster verður frumsýnd um mitt næsta ár, ef marka má kvikmyndavefinn Internet Movie Database. HTMC stofnað vegna myndar Goslings  Myndlistarmað- urinn Ragnar Kjartansson mun fremja gjörning á YouTube fyrir Tate-listasafnið 24. október nk. Þrír slíkir gjörn- ingar verða fluttir í september, októ- ber og nóvember og eru hluti nýrrar dagskrár safnsins, BMW Tate Live. Gjörningarnir eru eingöngu ætlaðir til sýningar í beinni útsendingu á net- inu, að því er fram kemur á vef Tate. Listamaðurinn Nicoline van Hars- kamp ríður á vaðið 19. september nk. Frekari upplýsingar má finna á vef Tate, www.tate.org.uk. Fremur gjörning á netinu fyrir Tate Á laugardag Vaxandi suðlæg átt, 13-20 m/s og fer að rigna vest- anlands síðdegis. Bjartviðri fyrir austan. Hiti 8 til 17 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað og úrkomulítið en áfram bjart að mestu suðaustan- og austanlands. Hiti 5 til 14 stig að deginum, hlýjast fyrir austan. VEÐUR Körfuboltamaðurinn Logi Gunnarsson er kominn með leikheimild hjá uppeldisfélagi sínu, Njarðvík. Hann er þó ekkert endilega að fara að spila með félaginu þó að hann sé með leikheimild þar núna. Loga langar aftur út en það er erfiðara en nokkru sinni fyrr að komast á mála hjá liði erlendis þar sem Bandaríkjamönnum hefur fjölgað mjög hjá evrópskum liðum. »2 Erfiðara en nokkru sinni fyrr Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs- markvörður í handknattleik, fór á kostum með sínu nýja liði, Berg- ischer, þegar það vann Evr- ópumeistaralið Ham- burg í þýsku 1. deildinni í fyrra- kvöld. Björgvin kann mjög vel við sig hjá ný- liðunum og segir stór- kostlegt að spila í stemningu eins og var á þessum fyrsta heimaleik liðs- ins á tíma- bilinu. »4 Björgvin Páll ánægður hjá nýliðunum Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, segir að tímabilið í ár hafi verið tóm vonbrigði fyrir Ís- landsmeistarana frá því í fyrra. Nú ætli leikmenn liðsins hins vegar að bæta sér upp þau vonbrigði með því að standa sig vel í Meist- aradeildinni. Þar dróst Þór/KA í gær gegn rússneska liðinu Zorkij Krasnogorsk í 32 liða úrslitum. »3 Ætla að bæta upp vonbrigði sumarsins ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Þetta var nú englahverfi, það var svo gott fólk þarna, og alls engin djöflaeyja,“ segir Jón Birgir Pét- ursson, Þróttari og blaðamaður, um gamla braggahverfið á Gríms- staðaholtinu í Vesturbænum þar sem Þróttur Reykjavík hafði að- setur fyrstu árin. Þeir Jón Birgir, Sölvi Óskarsson, Helgi Þorvalds- son og Gunnar Baldursson ætla að stýra göngu á sunnudaginn þar sem gengið verður um æskustöðv- ar knattspyrnufélagsins Þróttar og talað um uppruna þess. Félagið stofnað yfir lomberspili „Félagið var upphaflega stofnað til þess að lægja öldur í hverfinu, það var ófriðlegt milli drengja á Grímsstaðaholti og í Skerjafirði og háðar orustur,“ segir Jón Birgir. Það leiddi til þess að Eyjólfur Jónsson sundkappi og Halldór Sigurðsson stofnuðu félagið. „Þeir sátu og voru að spila lomber, og inn á milli ræddu þeir að það vantaði félag fyrir strákana,“ segir Jón Birgir. „Eftir það hættu menn að berjast innbyrðis og fóru bara að berjast saman inni á vellinum þannig að Þróttur var friðar- samtök upphaflega,“ segir Jón Birgir. Þrótturum hefur ekki gengið sem skyldi í karlaboltanum í sum- ar. Jón Birgir segir stöðuna af- leita. „Við vonum þó að við förum með sigur í veganesti,“ segir Jón Birgir en Þróttur leikur við KF á Valbjarnarvelli daginn áður og gæti sigur skipt sköpum fyrir fé- lagið í fallbaráttunni. Jón Birgir segir aðdragandann að því að ákveðið hafi verið að fara í göngu nú þann að reglulega sé haft uppi á frumkvöðlum fé- lagsins, fólki sem hafi verið í Þrótti frá stofnun. „Þeir eru ótrú- lega margir enn lifandi, töluvert á annað hundraðið.“ Jón Birgir seg- ir að þeir ætli langflestir að mæta í gönguna, sumir jafnvel í hjóla- stól. Gangan hefst kl. 13 á Ægisíðu þar sem Þróttarabragginn stóð áð- ur, en þar starfaði félagið í rúman áratug eftir stofnun 1949. Er fyr- irhugað að gangan taki um klukkutíma og er ekki gert ráð fyrir að fólk þurfi að vera göngu- garpar. Að göngu lokinni verður svo farið upp í Þróttaraheimili í Laugardalnum þar sem boðið verður upp á kaffi. Það má því segja að hægt verði á sunnudag- inn að fylgja hinni stórmerku sögu Þróttar frá upphafi til dagsins í dag. Ganga um söguslóðir Þróttar  Knattspyrnu- félagið stofnað til að halda friðinn Morgunblaðið/Kristinn Þróttarar Þeir Jón Birgir Pétursson og Gunnar Baldursson eru meðal þeirra sem stýra sögugöngu Þróttara en hún verður farin núna á sunnudaginn, 8. september. Gengið verður um Vesturbæinn þar sem félagið sleit barnsskónum. Sú flökkusaga hefur heyrst að upp- haf Þróttar megi rekja til þess að skotfastur KR-ingur hafi dúndrað boltanum af Melavelli yfir Suðurgöt- una og ekki þorað að sækja boltann í braggahverfið. Jón Birgir hlær við þegar sagan er borin undir hann og segir að hugsanlega sé eitthvað til í henni. „Milli KR og Þróttar var alltaf elskulegt ástand og mikill friður en hitt er annað mál að á þessum árum var mikill skortur á fótboltum, það fór enginn út í búð til að kaupa fótbolta í þá daga.“ Fótboltaskorturinn náði svo langt að oft áttu félögin sjálf ekki nema örfáa bolta og varð- veittu þá vel. Jón Birgir segir að menn hafi helst þurft að þekkja sjómenn sem keyptu bolta fyrir þá. „Ég var til dæmis mjög vinsæll í hverfinu því að ég átti fótbolta.“ Félögin vantaði alltaf fótbolta FLÖKKUSÖGUR UM UPPHAF ÞRÓTTAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.