Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 1 3  234. tölublað  101. árgangur  NÁTTÚRAN ER UPPSPRETTA FEGURÐAR HELGI BJÖRNS SYNGUR HAUK NORÐURLJÓSIN SJÁST OG FUGLA- SÖNGUR HEYRIST HEIMSKLASSI 38 BAKKAFJÖRÐUR 18ÞÓRUNN BÁRA 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Mikil þörf er á öldrunargeðdeild fyrir eldra fólk með geðræna sjúk- dóma en öldrunargeðlæknarnir fóru af landi brott í hruninu. Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarlækn- inga á Landspítalanum, segir geð- heilbrigði aldraðra vera eitt síðasta stóra málið í öldrunarþjónustunni sem enn eigi eftir að ganga frá. Á árunum fyrir hrun var mótuð stefna á vegum heilbrigðisráðuneyt- isins um göngu- og legudeild fyrir eldra fólk með geðræna sjúkdóma. Göngudeildin var tekin í gagnið en legudeildin fyrirfórst í hruninu. Þá fluttu þeir tveir öldrunargeðlæknar, sem voru starfandi á Íslandi, af landi brott, að sögn Pálma. Segir hann þörfina fyrir slíka deild síst minni nú en fyrir hrun. „Þetta fer ekki hátt, þetta er mjög veikt fólk, því líður illa and- lega og er stundum hreinlega nær dauða en lífi en það er ekki verið að taka á málum á sérhæfðasta og besta máta.“ Hann segir mikilvægt að taka upp þráðinn aftur. „Það kreppir enn víða að en þetta er mjög raunveru- legt og á meðan gömlu fólki fjölgar þá bara versnar ástandið. Ef fólk fær ekki viðeigandi þjónustu endar það inni á stofnun og það er virki- lega dýrt og langmesta skerðingin á lífsgæðum sem hægt er að hugsa sér,“ segir hann. »4 Vantar geðdeild aldraðra  Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum segir þörf fyrir öldrunargeð- deild fyrir eldra fólk með geðræna sjúkdóma  Brýnt sé að taka upp þráðinn aftur Morgunblaðið/Guðmundur Aldraðir Þörf á öldrunargeðdeild. Vetur konungur lét sjá sig í höfuðborginni í gær, mörgum að óvörum. Stillt og fallegt veður var á höfuðborgarsvæðinu og lá snjóbreiðan yfir en um tíma var þrettán sentímetra jafnfallinn snjór á jörð- inni. Þessi ungi drengur nýtti sér tækifærið og bragðaði á snjónum en hann fær líkast til ekki ann- að tækifæri til þess í bráð. Í dag eru horfur á þurrviðri og hlýnandi veðri en búist er við rigningu á morgun vestantil á landinu. Eitthvað var um umferðaróhöpp í gær, enda víða hált og ófært, en sem dæmi rann strætisvagn til við Holtasel og olli töluverðum töfum á umferð. Þá varð útafakstur á Álftanesvegi, bílvelta í Áslandi og þriggja bíla árekstur á Nýbýlavegi. Morgunblaðið/Golli Vetur konungur minnti á sig Rúnar Pálmason Baldur Arnarson Ástandið í byggingariðnaði er að batna og ýmis jákvæð teikn eru á lofti. Mikið munar um byggingu nýrra hótela og gistiheimila í Reykjavík en þótt ýmislegt sé að gerast er enn of lítið byggt af íbúðum á höfuðborgar- svæðinu, að mati Friðriks Á. Ólafs- sonar, forstöðu- manns byggingar- sviðs Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt nýrri talningu SI eru nú 927 fokheld- ar og lengra komn- ar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Bygging á 750 íbúðum til viðbótar er skemmra á veg komin. Þetta er óveruleg breyting frá upp- hafi árs. Til þess að halda í við eðlilega eftir- spurn þyrftu tvöfalt fleiri íbúðir að vera í byggingu, segir Friðrik. Huga þurfi að leið- um til að auðvelda fólki að eignast sína fyrstu íbúð, s.s. með skattaafslætti. Myndi skapa mikla þörf Framkvæmdir við hótel á Hljómalindar- reitnum og við Höfðatorg eru hafnar og stefnt er að því að opna stórt hótel við Hörpu árið 2016. Ef allar framkvæmdir sem eru á teikniborðinu verða að veruleika yrði þörf fyrir stóran hluta þeirra íslensku iðnaðarmanna sem fluttu utan í kjölfar hrunsins 2008. Fram kemur í ritinu Fjármálastöðugleiki að um 60% íbúðalána sem veitt voru á fyrri hluta ársins voru verðtryggð. Þá segir þar að eignastaða heimila hafi batnað mikið. Uppfylla ekki þörfina  Mikið munar um framkvæmdir við hótel Laust » Tilboð barst í eina lóð í Skarðshlíð, óbyggt hverfi í Hafnarfirði. Þar er gert ráð fyrir 460 íbúðum. MÁ leið upp úr djúpinu »6 Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is „Þetta slapp fyrir horn en ástand- ið hefði geta orðið mjög erfitt ef við hefðum fengið inn alvarlega slasaða sjúklinga á þessum nokkrum klukkutímum á meðan bæði tækin voru biluð,“ segir Ólafur Baldurs- son, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. Í gær kom sú alvarlega staða upp að bæði tölvusneiðmyndatæki spítal- ans voru biluð í nokkurn tíma. Tækið í Fossvogi hefur verið bilað undan- farna sex daga en að sögn Ólafs standa vonir til að það komist í lag í dag. Síðustu daga hafa sjúklingar verið sendir til myndatöku á Hring- braut en í gær bilaði tækið þar einn- ig, og komst ekki í lag fyrr en um kvöldmatarleytið. Þriðja mynd- greiningartækið, ísótópatækið, bil- aði líka í gær. Tveir fluttir í Orkuhúsið „Framkvæmdastjórnin brá strax við og setti upp viðeigandi áætlun til að bæta öryggi sjúklinga eins og mögulegt var við þessar aðstæður,“ segir Ólafur, en kallað var til skyndi- fundar um vandann. Hann segir að tveir sjúklingar hafi verið fluttir í Orkuhúsið þar sem þeir fóru í myndatöku. „Það er auðvitað alltaf erfitt þegar svona ástand skapast en sem betur fer er það sjaldgæft.“ Alvarlegt en „slapp fyrir horn“  Kallað til skyndi- fundar á Landspítala Morgunblaðið/Ómar Spítali Þrjú tæki voru biluð í gær.  Hundruð ferðamanna sátu fastir á Fjarðarheiði í gærkvöldi, en á tólfta tímanum unnu björgunar- sveitir frá Egilsstöðum og Seyðis- firði að því að selflytja fólkið til Seyðisfjarðar. Ferðafólkið kom með Norrænu til Seyðisfjarðar og var í dagsferð á Héraði á fjórum rútum, alls hátt í 300 manns. Mikil hálka var á Fjarð- arheiði og komust bílarnir því ekki niður brekkuna til Seyðisfjarðar á bakaleiðinni, segir í frétt frá Lands- björgu. Allir tiltækir bílar frá björgunar- sveitunum og tvær minni rútur frá Seyðisfirði voru notuð við flutn- ingana. Hluti fólksins var verulega skelkaður og því voru félagar úr Rauða krossi Íslands boðaðir í Nor- rænu til að veita fólkinu áfallahjálp. Hundruð ferðamanna fastir á Fjarðarheiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.