Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vélar á vegum byggingarfélagsins Eyktar mylja þessa dagana grjót sem kemur frá framkvæmd- unum á Höfðatorgi, en þar á að rísa 16 hæða hót- el. Stærsti hlutinn af því grjóti sem til fellur verður nýttur af Kópavogsbæ í grjótgarð við höfnina. Afgangurinn er mulinn og keyrður til baka og notaður við framkvæmdirnar á Höfða- torgi. Kópavogsbær stefnir að því að hlaða upp kantana við strandlengjuna á Kársnesi, þannig að þar verði fallegur grjótgarður. Lagfæring á strandlengjunni gæti tekið eitt til tvö ár, sam- kvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grjót úr hótelgrunni nýtt í Kópavogi Grjótgarður verður hlaðinn upp við strandlengjuna á Kársnesi Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir meirihlutann í borginni harðlega fyrir þá töf sem orðið hafi á því að Reykjavíkurráði ungmenna verði heimilað að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt í skóla- og frístundaráð og í íþrótta- og tóm- stundaráð. Tilefnið er fundur borg- arstjórnar með Reykjavíkurráði ungmenna í gær en forsagan er sú að Kjartan flutti svipaða tillögu á sama vettvangi í apríl 2011. „Tillagan var þá samþykkt ein- róma en hún hefur ekki enn komist til framkvæmda þrátt fyrir að ég hafi stöðugt minnt á hana og rekið á eftir henni. Fyrst snerist tillagan um að ungmennin fengju áheyrnarfull- trúa hjá ÍTR en í framhaldi af til- flutningi verkefna þaðan til skóla- og frístundaráðs fluttum við sjálf- stæðismenn aðra tillögu um að ung- mennin fengju líka fulltrúa þar.“ Verði samþykkt fljótlega Spurð um málið sagði Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Sam- fylkingar og formaður skóla- og frí- stundaráðs, að fyrr á þessu ári hefði tillaga þessa efnis komið fram í ráðinu. Fulltrúar meirihlutans hefðu hitt ungmennin í Reykjavíkurráði. „Ég og varaformaður skóla- og frístundaráðs hittum ungmennin á fundi og hlýddum á þeirra sjónar- mið. Ég býst ekki við öðru en við samþykkjum þetta fljótlega. Það er ekki nóg að við í skóla- og frístunda- ráði séum jákvæð, þ.e.a.s. borgarráð þarf að heimila breytingu á sam- þykkt ráðsins til heimildar á fleiri áheyrnarfulltrúum,“ segir Oddný og bendir á að sumarfrí og aðrir þættir hafi tafið afgreiðslu málsins. Hún segir aðspurð það ekki rétt að tillagan hafi fyrst verið borin upp í ráðinu 2011. Hún hafi fyrst komið inn á borð skóla- og frístundaráðs fyrr á þessu ári. „Síðan þá hefur þetta verið í vinnslu. Ungmennin hafa sína skoðun á útfærslunni sem við viljum koma til móts við,“ segir Oddný Sturludóttir. baldura@mbl.is Ungmenni fá ekki áheyrn Kjartan Magnússon  Tafir hjá meiri- hluta í borginni Oddný Sturludóttir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Starfsgreinasambandið (SGS) og Samtök at- vinnulífsins náðu ekki samkomulagi um við- ræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga og kom málið því til kasta Ríkissáttasemjara, sem þurfti gefa út viðræðuáætlun fyrir samtökin. Var það gert í fyrradag. Starfsgreinasambandið fer með samnings- umboð fyrir 16 aðildarfélög um gerð aðal- kjarasamnings ,,Það náðist ekki samkomulag og [Ríkissáttasemjari] varð að úrskurða,“ seg- ir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS. Hann segir að deilurnar hafi aðallega snúist um að SGS vildi undanskilja ákveðna samn- inga en Samtök atvinnulífsins hafi ekki viljað fallast á það. Varð niðurstaðan sú að samn- ingar vegna fiskimjölsverksmiðja á Austur- landi og í Vestmannaeyjum eru undanskildir viðræðuáætlun, þar sem gerðir verði sérsamn- ingar. Eiga eftir að meta stöðuna Menn eigi þó eftir að meta hvað þetta felur í sér fyrir samningana því sum aðildarfélög SGS veittu sambandinu aðeins samningsumboð vegna hluta kjarasamninganna sem þau gera fyrir félagsmenn sína. „Samtök atvinnulífsins vildu ekki una því nema viðkomandi félög væru þá líka með aðalkjarasamninga undir í sínum viðræðuáætlunum.“ Að sögn hans ætti endanleg kröfugerð vegna viðræðna SGS og SA að liggja fyrir fljótlega eftir þing sambandsins, sem fram fer á Akureyri dagana 16.-18. október. Nú liggja viðræðuáætlanir fyrir hjá Ríkis- sáttasemjara vegna endurnýjunar allra kjara- samninga sem renna út í lok nóvember næst- komandi en þær eru nokkuð á áttunda tug talsins. Skv. lögum um stéttarfélög og vinnu- deilur ber avinnurekendum og stéttarfélögum að hafa tilbúnar viðræðuáætlanir um skipulag kjaraviðræðna í síðasta lagi 10 vikum áður en kjarasamningur rennur út. Náðu ekki saman um viðræðuáætlun  Ríkissáttasemjari þurfti að gefa út viðræðuáætlun fyrir SA og Starfsgreinasambandið  Á áttunda tug viðræðuáætlana eru tilbúnar vegna samninga sem renna út í lok nóvember Morgunblaðið/Golli Í haust Samningar renna út í nóvember. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ef ríkið hefði haldið eignarhlut sín- um í Arion banka og Íslandsbanka í stað þess að láta þá í hendur erlendra kröfuhafa hefði sá hagnaður sem þar hefur myndast farið langt með að vega á móti beinu tapi ríkisins af efnahagshruninu. Þetta er mat Ásgeirs Jónssonar, lektors í hagfræði við Háskóla Ís- lands, sem telur þessa ráðstöfun vera eina af fernum meginmistökum sem gerð hafi verið eftir hrunið. Safnað í nýja snjóhengju „Hagnaður nýju bankanna þriggja á síðustu árum er fyrst og fremst til- kominn vegna uppfærslu eigna í kjöl- far efnahagsbata og lægri vaxta,“ segir Ásgeir en samanlagður hagn- aður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans frá 1. janúar 2009 til 30. júní 2013 er um 250 milljarð- ar. Ásgeir bendir á að hagnaður sænska ríkisins af yfirtöku á „slæm- um“ eignum í bankakreppunni þar á 9. áratug síðustu aldar hafi að miklu leyti bætt sænska ríkinu upp tapið vegna bankakreppunnar. Þessi hagnaður á Íslandi hafi hins vegar fallið erlendum kröfuhöfum í skaut sem hljóti á einhverjum tíma- punkti að vilja flytja hann úr landi. Þannig hafi ábatinn af efnahagsbat- anum fyrir bankana orðið að nýrri snjóhengju. Önnur meginmistökin að mati Ásgeirs er sú ráðstöfun að af- henda erlendum kröfuhöfum í þrotabú gamla Landsbankans skuldabréf í erlendri mynt sem kalli á 300 milljarða gjaldeyrisgreiðslur á næstu árum sem enn hafi bætt í snjó- hengjuna. Raunar séu krónueignir erlendra aðila orðnar svo miklar að ekki sé með neinu móti hægt að sjá fyrir sér að þær verði greiddar úr landinu. Líkir Ásgeir þessu við kröfur á hendur Þjóðverjum eftir fyrri heims- styrjöld, þegar þeim var gert að greiða stríðsskaðabætur í erlendri mynt sem voru þeim ofviða. Ísland komið í ósjálfbæra stöðu Þriðju og fjórðu mistökin að mati Ásgeirs voru þau að láta neyðarlögin ekki gilda fyrir aðrar fjármálastofn- anir en bankana þrjá. Milljarðartugir hafi tapast í vonlausum tilraunum til þess að bjarga sparisjóðakerfinu en dýrast hafi þó verið að Íbúðalána- sjóður skuli ekki hafa verið gerður upp strax árið 2009 þegar vaxtastig var enn það hátt að hægt var að greiða upp útgáfur sjóðsins án veru- legs taps. Tap sjóðsins hafi verið gríðarlegt frá þeim tíma. „Síðustu ár hafa verið ár hinna breiðu baksýnisspegla og það er ávallt hægt að vera vitur eftir á. Allar þessar ákvarðanir áttu sér sínar ástæður og röksemdir, en samt sem áður hafa þær leitt íslenska efna- hagslífið í stöðu sem nálgast það að vera ósjálfbær þegar litið er fram. Það versta er þó að setning gjaldeyr- ishafta hefur heft athafnafrelsi bæði fyrirtækja og einstaklinga og þannig komið í veg fyrir fjárfestingar, út- flutning og nýja lífskjarasókn.“ »21 Dýrkeypt mistök eftir hrun hafi skapað þjóðarvá  Hagfræðingur telur hagkerfið nálgast ósjálfbæra stöðu vegna erlendra krafna Ásgeir Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.