Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 6

Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 927 fokheldar og lengra komnar íbúðir en bygging á 750 íbúðum til viðbótar er skemmra á veg komin, sam- kvæmt nýrri taln- ingu Samtaka iðnaðarins. Óveruleg breyt- ing er á heildar- fjölda íbúða á öll- um byggingar- stigum frá fyrri talningu SI sem gerð var í byrjun árs 2013. Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumaður byggingar- sviðs SI, segir að ástandið sé að skána en það hafi reyndar ekki þurft mikið til. „Því það var ekkert að ger- ast.“ Ýmis jákvæð teikn séu á lofti. Mannvirki sem hafi staðið auð og ókláruð frá hruni séu nú komin í notkun og talsvert sé um nýfram- kvæmdir í sumum sveitarfélögum. „Það er ýmislegt að gerast en það er ekki nóg til að uppfylla þörf fyrir húsnæði, hvað þá uppsafnaða þörf,“ segir Friðrik. Hann bendir á að hefja þurfi byggingu á 1.500-1.800 íbúðum á ári, til að hægt sé að mæta eðlilegri eft- irspurn. Framleiðslan þyrfti að tvöfaldast. Lóðarverð þarf að lækka Frá því byrjað er á íbúðarhúsi og þar til hægt er að flytja inn, líða yfir- leitt að minnsta kosti 18-24 mánuðir. Af þessari ástæðu eingöngu getur liðið töluverður tími þar til fram- boðið eykst til samræmis við eftir- spurnina. Fleira dregur úr framboði. Friðrik bendir á að lóðarverð sé enn of hátt og þurfi að lækka verulega. Nú sé fyrirhugað að byggja mikið miðsvæðis í Reykjavík en hann ótt- ast að lóðarverð þar verði of hátt sem valdi því m.a. að fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð eigi tæpast kost á þeim. Fyrir nokkru hafi komið fram í greiningarskýrslu banka að lóðar- verð hafi verið allt að 30% af sölu- verði eigna. Sveitarfélög hafi undan- farið litið svo á að söluverð lóða í nýjum hverfum eigi að standa undir kostnaði við byggingu skóla og leik- skóla. Þessu eru SI andvíg. Friðrik bendir á að kostnaðinn ætti með réttu að greiða í gegnum útsvarið. Kaupendur séu fjölbreyttur hópur og ekki eigi allir börn á skólaaldri. Þá hafi kostnaður við húsbygg- ingar aukist vegna aukins efnis- kostnaðar og viðbúið sé að hann auk- ist enn vegna stífari krafna í nýrri byggingareglugerð. Enn sé verið að byggja sam- kvæmt kröfum eldri reglugerðar en frá og með sumrinu 2014 verði vænt- anlega að mestu byggt eftir kröfum nýju reglugerðarinnar. Frá því reglugerðin tók gildi í febrúar 2012 hafi verið gerðar um hundrað breyt- ingar á henni en Friðrik segir að hún sé enn of ósveigjanleg. SI vilji að reglugerðinni verði enn breytt, m.a. þannig að hægt verði að byggja mis- munandi flokka af húsum, líkt og m.a. sé gert í Danmörku, en það myndi þýða að ekki þyrftu allar íbúðir í öllum húsum að vera gerðar á grundvelli „algildrar hönnunar“. Afsláttur við fyrstu kaup Að mati SI er þörfin á húsnæði mest hjá þeim sem eru að kaupa íbúð í fyrsta sinn. Friðrik segir að þessi hópur þurfi að geta valið um ýmsar gerðir húsnæðis, t.d. íbúðir í fjölbýlishúsi án bílakjallara en gera megi ráð fyrir að stæði í bílakjallara kosti a.m.k. þrjár milljónir. Víða séu hins vegar gerðar kröfur um bíla- kjallara í skipulagi sem hækki bygg- ingarkostnað verulega. Ekki sé á kostnaðinn bætandi fyr- ir þann hóp sem er að kaupa sína fyrstu íbúð. Friðrik bendir á að Íbúðalánasjóður láni nú 80% af kaupverði og með hækkandi íbúða- verði sé sífellt erfiðara að útvega af- ganginn. Kosti íbúð 24 milljónir þurfi fólk að eiga 4,8 milljónir í sjóði. Erlendis þekkist að þeir sem kaupa sína fyrstu íbúð njóti skatta- afsláttar. Eðlilegt sé að skoða mögu- leika á því hér á landi einnig. Umsvif við hótel Þegar litið er á aðra geira bygg- ingariðnaðarins ber fyrirhugaðar framkvæmdir við hótelbyggingar hæst en vænta má mikilla umsvifa í tengslum við þær víða um land á næstu árum. Að sögn Friðrik eru opinberar framkvæmdir hins vegar með minnsta móti og engin stærri út- boðsverk í gangi. Þannig hafi Húsi íslenskra fræða verið slegið á frest, jafnvel þótt tilboð hafi verið opnuð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Upp Fjölbýlishús rís af grunni á Hampiðjureitnum í austurbæ Reykjavíkur. Á leið upp úr djúpinu  Íbúðum í byggingu hefur lítið fjölgað frá síðustu talningu Samtaka iðnaðarins  Jákvæð teikn á lofti í byggingageiranum en enn of lítið byggt af íbúðarhúsum Friðrik Á. Ólafsson Á fyrri hluta ársins var fjárhæð nýrra verðtryggðra íbúðalána 17,7 milljarðar borið saman við 12,9 millj- arða í óverð- tryggðum lánum. Var hlutur verð- tryggðra lána því 58%. Þetta kemur fram í Fjár- málastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands, en þar segir að starfs- menn lánastofn- ana telji að flestir „sem hafa hug á, greiðslugetu og svigrúm til að breyta verðtryggðum lánum í óverð- tryggð séu búnir að því og þar með miðist eftirspurn eftir nýjum óverð- tryggðum lánum frekar við íbúðar- kaup eða nýbyggingu í stað endur- fjármögnunar“. Þá kemur fram í ritinu að hrein eign heimila án lífeyrissparnaðar hafi á árinu 2012 aukist úr 106% af landsframleiðslu í 115% og er aukn- ingin sögð nær að öllu leyti tilkomin vegna hærra fasteignaverðs. Eignastaða heimila styrkist „Þar sem húsnæðisverð hefur haldið áfram að hækka það sem af er ári og skuldir nánast staðið í stað að nafnvirði á sama tíma hefur hrein eign heimila hækkað enn frekar og í lok júní er áætlað að hún hafi verið 119% af landsframleiðslu. Ef litið er aftur til ársloka 2010 hefur hrein eign heimila hækkað um 19% í samanburði við landsfram- leiðslu, sem verður að teljast umtals- verð breyting og er staðan nú betri en árin fyrir bóluárin 2005-2007. Til að mynda var hrein staða að meðal- tali 102% af landsframleiðslu á ár- unum 2001-2004,“ segir þar m.a. Einnig kemur þar fram að dregið hafi úr skuldavanda einstaklinga. Þannig hafi 31,3% einstaklinga skuldað 95% eða meira af eignum sínum í árslok 2012, 32,8% 2011 og 35,3% 2010. Tilheyra flestir tveim tekjuhæstu hópunum. Loks hefur hlutfall heimila í vanskilum haldið áfram að lækka en í lok ágúst 2013 voru um 12% af heildarútlánum þriggja stærstu viðskiptabankanna og ÍLS til heimila vanskilum, borið saman við 16% vanskilahlutafall í lok júní 2012. baldura@mbl.is Verð- tryggt vinsælla  Eignastaða heimila fer batnandi Þingholtin úr lofti. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir greinilegt að byggingaiðnaðurinn sé að taka við sér. Lítið atvinnuleysi sé í geiranum. „En ég hef ekki orðið var við að iðnaðarmenn séu að koma heim frá Noregi ennþá,“ bætir hann við. Verði af stórframkvæmdum sem eru á teikniborð- unum, einkum hótelbyggingum í Reykjavík, sé ljóst að fá þurfi iðnaðarmenn að utan, enda eigi þessar fram- kvæmdir að taka skamman tíma. Enginn fjöldi iðn- aðarmanna sé hér á lausu. Iðnaðarmenn sem fóru til starfa ytra virðist bíða eftir því að ástandið hér verði stöðugra. Ekki komið heim frá Noregi GÆTI ÞURFT AÐ FÁ IÐNAÐARMENN TIL LANDSINS Þorbjörn Guðmundsson Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Tilboð barst í eina fjölbýlishúsalóð í Skarðshlíð, óbyggðu hverfi í Hafnarfirði, áður en umsóknarfrest- ur um þær rann út. Þegar lóðir í 1. áfanga Skarðshlíðar voru auglýstar var tekið fram að umsóknarfrestur væri til 27. september en þeim skil- málum hefur reyndar verið breytt og áfram er tekið við umsóknum, samkvæmt upplýsingum frá Hafn- arfjarðarbæ. Flest eða allt er til reiðu til að hægt sé að hefja framkvæmdir í Skarðshlíð. Lagt hefur verið fyrir heitu og köldu vatni í hverfið og raf- magnsleiðslur eru komnar á sinn stað. Búið er að malbika götur og leggja göngustíga. Það eina sem vantar eru húsin og íbúarnir. Þann- ig hefur staðan verið frá árinu 2008. Í hverfinu er gert ráð fyrir 16 fjölbýlishúsum, 129 einbýlishúsum og 123 rað- og parhúsum, samtals 460 íbúðum. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir að töluvert hafi verið spurt um lóðir og allir hafi fengið þær upplýs- ingar að áfram yrði tekið við um- sóknum, hvað sem umsóknarfrest- inum liði. Lóðin eina sem boðið var í er við Bergsskarð 5 og er neðst í hverfinu, uppi við hverfi sem nefnist Vellir 6. Verðið er um 43 milljónir. Ekki heitustu lummurnar Lóðirnar í hverfinu voru settar að veði þegar bærinn samdi um 13 milljarða lán hjá Depfa-bankanum. Samkvæmt lánaskilmálum munu 90% af kaupverði lóða renna til að greiða af láninu. Bærinn fær því um 4,3 milljónir vegna sölunnar á lóð- inni við Bergsskarð 5. Steinunn segir að húsið falli vel að Völlum 6 og því sé hægt að úthluta þeirri lóð, burtséð frá því hversu margar aðrar lóðir seljist í hverfinu. Hafnarfjarðarbær auglýsti lóðir í Skarðshlíð töluvert nú í haust. Steinunn segir að bærinn hefði vilj- að sjá fleiri umsóknir. „En við gerð- um okkur grein fyrir því að við vær- um ekki endilega með heitar lummur og að þetta tæki tíma,“ sagði hún. Sölu á lóðum í hverfinu mætti líkja við langhlaup. „Fólk er ennþá að spyrjast fyrir og það er búin að vera töluverð traffík upp í hverfið til að skoða. Og við vonumst til að þetta skili okkur einhverju í kjölfar- ið. Þetta er rosaflott hverfi og það er allt tilbúið,“ segir hún. Boðið í eina lóð í Skarðshlíð  Löngu búið að leggja götur og lagnir  90% af kaupverði fer í greiðslu á láni Morgunblaðið/Sigurgeir S. Framtíðarland Götur, stígar og ljósastaurar bíða enn eftir íbúum. Ungur karlmaður var í fyrradag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til þriggja ára fangelsisvistar vegna kynferðisbrots gegn börnum. Einnig var manninum gert að greiða um 2,3 milljónir í miskabætur. Var hann sakfelldur fyrir tvo ákæruliði. Í öðru tilvikinu hafði hann sam- ræði við 13 ára barn í júní árið 2010. Í seinni liðnum var honum gefin að sök nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa í nóvember ár- ið 2012 neytt 13 ára barn til þess að hafa við sig munnmök. Maðurinnn nýtti sér yfirburðastöðu sína gagn- vart stúlkunni sökum aldurs- og þroskamunar og vakti þannig hjá henni ótta og bjargarleysi. Maður- inn var þá 18 ára. Hann játaði sök hvað varðar fyrri liðinn en neitaði sök í þeim síðari. Hann á langan af- brotaferil þrátt fyrir ungan aldur. Tvö brot gegn 13 ára börnum  Í fangelsi í þrjú ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.