Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 8

Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Í fyrirspurnum á Alþingi í gærkom fram að þingmenn stjórn- arandstöðunnar hafa miklar áhyggjur af því að fjárfestingar- stefnunni svokölluðu, sem vinstri- stjórnin kynnti skömmu fyrir kosn- ingar, skuli ekki hafa verið framfylgt af núverandi ríkisstjórn. Þingmenn spurðu ráðherrana hvort þeir hefðu ekki miklar áhyggjur af öllum störfunum sem myndu tapast vegna þessa.    Sigurður Ingi Jó-hannsson, sjáv- arútvegs- og land- búnaðarráðherra, svaraði þessu ágæt- lega og benti á að í fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnús- dóttur, þingmanns VG, kæmi fram af- staða til atvinnu- uppbyggingar sem væri ólík skoðun hans.    Sigurður Ingibenti á að með fjárfestingar- stefnu vinstristjórnarinnar hefði verið gert ráð fyrir mikilli viðbótar- skattlagningu sem hefði eyðilagt störf og að með því að falla frá henni hefðu störf verið varin.    Þá væri hann ósammála LiljuRafneyju, sem teldi að störfum fjölgaði með því að ríkið byggi þau til. Hann teldi að störfin yrðu til með því að fyrirtækin í landinu hefðu möguleika á að fjárfesta og byggja sig upp. Til dæmis væru gríðarleg tækifæri í greinum tengdum sjávarútvegi ef fyrirtæki þar hefðu fjárfestingargetu. Þess- um störfum myndu til viðbótar fylgja afleidd störf.    Vandi atvinnusköpunar hér álandi á liðnum árum hefur ein- mitt verið sá að vinstristjórnin skildi aldrei þessi einföldu sannindi. Sigurður Ingi Jóhannsson Skapar skatt- lagning störf? STAKSTEINAR Lilja Rafney Magnúsdóttir Veður víða um heim 8.10., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 2 rigning Nuuk -1 snjókoma Þórshöfn 8 súld Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 12 þoka Lúxemborg 15 skýjað Brussel 17 skýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 12 skýjað London 20 skýjað París 18 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 13 skýjað Vín 17 léttskýjað Moskva 11 skýjað Algarve 27 léttskýjað Madríd 26 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 13 skýjað Montreal 12 léttskýjað New York 17 heiðskírt Chicago 18 heiðskírt Orlando 27 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:02 18:30 ÍSAFJÖRÐUR 8:11 18:30 SIGLUFJÖRÐUR 7:54 18:13 DJÚPIVOGUR 7:32 17:58 Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Málþing með notendum Faxaflóahafna Miðvikudaginn 9. október, kl. 16:00 í HÖRPU Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starfsemina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings miðvikudaginn 9. október kl. 16:00 í Hörpu (salur: Ríma). Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir: • Ávarp: Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Faxaflóahafna sf. • Gísli Gíslason, hafnarstjóri: - Rekstur og framkvæmdir á vegum Faxaflóahafna sf. árið 2014. • Bergþóra Bergsdóttir: - Skýrsla um atvinnulíf og þróun í Gömlu höfninni. • Helga Thors: - Harpan og tengslin við þjónustu á hafnasvæðunum. • Regína Ásvaldsdóttir: - Akraneshöfn - ferðaþjónusta og samgangur milli hafnasvæða. • Guðjón Friðriksson: - Stutt æviágrip hafna Faxaflóahafna sf. • Umræður og fyrirspurnir. Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini. Gísli Gíslason, hafnarstjóri. Ferðamönn- um fjölgað þrefalt á tólf árum  Fjölgunin nemur 19,2% milli ára Um 73 þúsund er- lendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í september í ár eða 8.500 fleiri ferðamenn en í september í fyrra, samkvæmt taln- ingum Ferðamálastofu. Fjölgunin nemur 13,2% milli ára. Fjöldi ferða- manna hefur þrefaldast á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferða- málastofa hefur haldið úti talningum. Ferðamannafjöldinn hefur farið úr 24.533 árið 2002 í 73.189 árið 2013. Fjölgað hefur að jafnaði um 10,9% milli ára en miklar sveiflur hafa verið í fjölda milli ára. Frá áramótum hefur 639.951 erlendur ferðamaður farið frá landinu, um 103 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Fjölgunin nem- ur 19,2% milli ára. Um 40% fleiri Bretar hafa heimsótt landið en í fyrra, fjórðungi fleiri N- Ameríkanar, fjórðungi fleiri ferða- menn frá löndum sem flokkast undir annað og um 15% fleiri Mið- og S- Evrópubúar. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað mun minna eða um 2,9%, segir í frétt frá Ferðamálastofu. Flestir frá Bandaríkjunum Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í september frá Banda- ríkjunum (15,8), Bretlandi (11,0%), Þýskalandi (10,5%) og Noregi (9,2%). Þar á eftir komu Danir (6,7%), Svíar (5,3%), Frakkar (5,3%) og Kanada- menn (4,0%). Samtals voru þessar átta þjóðir um tveir þriðju (67,8%) ferðamanna í september. Af einstaka þjóðum fjölgaði Bret- um, Bandaríkjamönnum og Þjóð- verjum mest milli ára í september. Þannig komu 1.774 fleiri Bretar í september í ár en í fyrra, 1.727 fleiri Bandaríkjamenn og 1.251 fleiri Þjóð- verjar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.