Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Nýtt skip hefur bæst við flota skipa-
félagsins Ness hf. en gengið var frá
kaupum á skipinu í lok júl-
ímánaðar. Skipið hefur fengið nafn-
ið Sunna en um er að ræða syst-
urskip Hauks, sem félagið hefur
notað í tíu ár.
Sunna var smíðuð, rétt eins og
Haukur, í Sava Shipyard skipa-
smíðastöðinni í Serbíu og er 74,5
metra löng, 12,7 metra breið og
með þrjú þúsund tonna burðargetu.
Sunna var afhent Nesi hf. í borginni
Varna í Búlgaríu en þar fór það í
sex vikna þurrkví hjá
skipaviðgerðarstöðinni Terek.
Skipið er sérstaklega smíðað fyr-
ir flutning á lausum förmum, svo
sem fiskimjöli, möl og sandi, salti,
fóðurvörum, áburði og hvers konar
byggingarvörum. Í stað hefðbund-
inna skipskrana er skipið útbúið
með Komatsu 450 gröfu en með
gröfunni getur skipið lestað og los-
að lausa farma án aðstoðar frá
landi.
Skipið lestaði sinn fyrsta farm
hjá nýjum eigendum, fullfermi af
korni, í Varna um miðjan sept-
embermánuð til losunar í Oristario
í Sardiníu. Að því loknu hélt það til
Spánar en þar lestaði skipið full-
fermi af götusalti fyrir Reykjavík-
urborg. Er Sunna síðan væntanleg
til Reykjavíkur 16. október næst-
komandi.
39 ára gamalt skipafélag
Nes hf. var stofnað árið 1974 og
festi kaup á fyrsta skipi sínu sama
ár. Í dag gerir það út, auk Sunnu,
þrjú skip, Hauk, Lóm og Svan. Öll
skipin flytja lausavörur, en helst
mætti nefna fiskimjöl, fóður, grjót,
timbur, stál og kalkþörunga.
BYKO, Íslenska kalkþörunga-
félagið og Eden Export eru stærstu
viðskiptavinir félagsins, en auk
verkefna á Íslandi hefur félagið alla
tíð siglt milli erlendra hafna með
lausavöru.
Ljósmynd/Nes hf.
Skipið Sunna Nýjasta skip skipafélagsins Ness hf., Sunna, var í slipp í borginni Varna í Búlgaríu í um sex vikur.
Nýtt skip í flota Ness hf.
Sunna til Reykjavíkur í næstu viku með fullar lestar af salti
Matvara sem
verðlagseftirlit
ASÍ kannaði
verð á hinn 30.
september hef-
ur hækkað í
verði frá sam-
bærilegri könn-
un sem gerð var í byrjun október
2012 hjá flestum verslunum. Nettó
hefur þó oftar lækkað verð en hækk-
að. Áberandi er að ávextir og græn-
meti hafa hækkað miklu meira en
aðrir vöruflokkar eða um allt að
66%, skv. upplýsingum ASÍ.
Sem dæmi um aðrar vörur sem
hafa hækkað í verði er KEA skyr-
drykkur sem hefur hækkað um 1-
15%, hangiálegg frá Búrfelli hefur
hækkað um 5-16%, Swiss miss m/
sykurpúðum um 5-25% og rófur um
13-45%. Nettó hefur lækkað verð
oftast. Verslunin Nettó hefur oftar
lækkað verð en hækkað, 25 vöruteg-
undir af 49 hafa lækkað, verð stend-
ur í stað á fjórum en hefur hækkað á
20.
Lax lækkaði í verði
Sem dæmi um lækkanir hefur
vara eins og lax lækkað um 10% á
milli ára, Gerber-eplasafi um 16% og
Merrild-kaffi um 4%.
Nóatún er sú verslun sem er oft-
ast með sama verð og í fyrra, eða í 14
tilvikum af 59, Fjarðarkaup í 13 til-
vikum af 55, 10-11 í 12 tilvikum af 41
og Samkaup-Strax í 10 tilvikum af
25. Iceland hefur oftast allra hækk-
að verð á vörum síðan í fyrra, í kjöl-
farið fylgja Bónus, Krónan og Sam-
kaup-Úrval.
Þær verðbreytingar sem ASÍ birti
í gær miða við breytingar á verði
verslana milli verðkannana verð-
lagseftirlits ASÍ hinn 1.10. 2012 og
30.9. 2013. Verðbreytingar voru
skoðaðar í eftirtöldum verslunum;
Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland,
Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Sam-
kaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax,
Kaskó, 10-11, Kjarvali og Nóatúni.
Mest verð-
hækkun á
áxöxtum og
grænmeti
Ný skósending frá
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141 •
í yfir 50 fallegum litum
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
VINSÆLA
ARWETTA CLASSIC
GARNIÐ
Skráning hafin
á hekl- og
prjónanámskeið
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
H
a
u
ku
r
5
.1
3
Finnur Árnason
rekstrarhagfræðingur
finnur@kontakt.is
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Tveir Subway staðir á Benidorm. Velta 100 mkr. og góður hagnaður.•
Miklir möguleikar fyrir duglega aðila að opna fleiri staði á svæðinu.
Danskt iðnfyrirtæki, með sölukerfi um alla Evrópu, sem auðvelt er að•
flytja til Íslands. Ársvelta 600 mkr. Góðar hagnaður. Mjög hagstætt
verð.
Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,•
en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta
síðustu árin um 300 mkr. og góð framlegð.
Fiskvinnsla í útflutningi á ferskum fiski. Mjög snyrtileg vinnsla í eigin•
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Stöðug velta 230 mkr og EBITDA 16%.
Öflugt ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni óskar eftir meðfjárfesti til•
að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu.
Vel tækjum búið verktakafyrirtæki og vélaleiga sem starfar í•
byggingageiranum.
Spennandi hótelverkefni að Arnarholti á Kjalarnesi. Möguleiki á allt að•
100 herbergjum í nýju hóteli. Hagstæður leigusamningur.
Adventure Car Rental. Vinsæl bílaleiga í fullum rekstri með 25 velbúna•
jeppa í útleigu. Fullbúið verkstæði, tvo lén, tvær heimasíður og fullkomið
bókunarkerfi.
Stórt þvottahús og efnalaug með móttökustaði víðsvegar um•
höfuðborgarsvæðið.
Pisa Guesthouse & Restaurant í Lækjargötu með 14 herbergjum og•
ítölskum veitingastað í eigin húsnæði. Hagstæð áhvílandi lán.
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga