Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 10
Malín Brand
malin@mbl.is
L
júfir óperutónar leika
um vinnustofu Þór-
unnar Báru og hún er í
óðaönn að merkja mál-
verkin sín fyrir sýn-
inguna. Hún hlustar oftast á tónlist,
breska ríkisútvarpið eða hljóðbækur
þegar hún málar og það er líka eins
gott því annars hefði hún ekki hug-
mynd um hvað tímanum liði. „Ég
tapa tímaskyninu. Þegar ég er komin
inn í málverkið, þegar ég er búin að
gera óreiðuna og er byrjuð að sortera
aftur þá er eins og ég gleymi mér og
það er besti tíminn því að þá gleymir
maður alveg sjálfum sér. Eins og að
vera með ungabarn. Þetta er svipuð
tilfinning.Hún er mjög þægileg og
maður verður ekki sjálfhverfur,“ seg-
ir listakonan Þórunn Birna.
Tungumál, heilbrigðisstéttin
og myndlistin
Vinnustofa Þórunnar Báru og
heimili eru í Vesturbæ Reykjavíkur.
Hún gekk í Menntaskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan stúdentsprófi af
málabraut. Árið 1970 hóf hún nám í
frönsku og sænsku og er með BA-
gráðu í báðum tungumálum. Upp-
haflega ætlaði hún sér þó að verða
bóndi og hafði hug á að fara í bænda-
skólann á Hvanneyri. Það má segja
að hún hafi farið langa leið að mynd-
listinni því skömmu eftir útskriftina
úr háskólanum fór hún í sjúkralið-
anám og lauk því árið 1980. Fimm ár-
um síðar byrjaði hún að læra mynd-
list, bæði hér heima, í Skotlandi og
Bandaríkjunum. Nú er hún á grænni
grein og listaverkin verða til hvert á
fætur öðru. „Maður fer stundum
hring í lífinu og mér fannst ég þurfa
að fara þennan hring því það var svo
margt sem ég þurfti að gera því ég
vissi það í hjarta mínu að þegar ég
yrði komin á þennan stað yrði ekkert
aftur snúið.“
Lífsorkan og Surtsey
Þann 14. nóvember 1963 hófst
eldgos suðvestur af Heimaey. Því
man Þórunn Bára vel eftir en hún var
þá þrettán ára. Síðan hefur Surtsey
skipt hana miklu máli og oft verið
henni innblástur við listsköpun. Að-
spurð hvers vegna segir hún einfald-
lega að Surtsey sé líf. „Surtsey er
bara merki um líf og lífsorkuna og
það hvernig lífið hefur þróast. Þeir
vísindamenn sem eru að fást við
rannsóknir þar hafa getað fylgst vel
með því hvernig vistkerfin vinna
saman og hvað lifnar og hvað deyr.“
Hún hefur alltaf haft mikla ást á nátt-
úrunni. „Náttúran er undur, eilíf
uppspretta og fegurð. Svo hef ég líka
unnið mikið með það hvernig fólk
skynjar tilveruna og í myndlistinni
næ ég saman þessu sem ég hef mest-
an áhuga á og finn mér óþrjótandi
innblástursefni. Það þarf eitthvað að
kveikja í manni og maður þarf að
vera forvitinn og áhugasamur, ann-
ars held ég að það verði aldrei neitt af
viti úr því sem maður er að gera,“ og í
list og lífi Þórunnar báru er náttúran
Náttúran er undur og
uppspretta fegurðar
Þórunn Bára Björnsdóttir er sjúkraliði og myndlistarkona. Hún málar lífheiminn
eins og hún skynjar hann og smáatriðin í náttúrunni eru að hennar mati óþrjót-
andi uppspretta fegurðar. Á morgun verður opnuð myndlistarsýning með verkum
hennar og í forgrunni er Surtsey og hið undraverða lífríki sem þar er. Það er vel
við hæfi að Surtsey sé í forgrunni því árið 2013 eru fimmtíu ár frá Surtseyjargosi.
Hið smáa Þessi mynd nefnist Í skjóli hraunjað-
ars, og má greina ótal smáatriði í náttúru
hraunjaðarsins og mosans.
Undrið Lífríki Surts-
eyjar kemur fyrir á
mörgum mynda Þór-
unnar Báru.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Surtseyjargosið hófst að morgni 14.
nóvember 1963 um 20 km suðvestur
af Heimaey í Vestmannaeyjum. Það
eru því nokkrar vikur í að Surtsey eigi
fimmtugsafmæli.Tveimur árum eftir
gosið, árið 1965, þegar sýnt þótti að
Surtsey myndi verða varanleg eyja,
komu áhugamenn um rannsóknir sér
saman um að stofna nefnd og seinna
félag sem stuðlaði að skipulagi og
eflingu rannsókna þar. Þó svo að fé-
lagið sjálft sjái ekki um rannsókn-
arstörf hefur það gefið út skýrslur
með niðurstöðum vísindastarfa sem
farið hafa fram í eynni. Skýrslurnar
eru aðgengilegar á síðunni og hafa
átta skýrslur verið gefnar út síðan
1970. Ýmiss konar fróðleikur er á
síðu Surtseyjarfélagsins, til dæmis
um fugla, plöntur og aðrar lífverur
sem þrífast á eynni. Auk þess er gott
myndasafn af tegundunum á síðunni
og kort af eynni.
Vefsíðan www.surtsey.is
Ljósmynd/Sæmundur Ingólfsson
Lífríki Surtsey hefur verið ýmsum vísindamönnum uppspretta lifandi fróðleiks.
Brátt verður Surtsey fimmtug
Sýningu Þorvaldar Jónassonar í kaffi-
húsi og anddyri Gerðubergs fer senn
að ljúka. Þar er sýnd kalligrafía og
leturgerðir til að varpa ljósi á þá þró-
un sem orðið hefur á leturgerð frá
upphafi okkar tímatals til dagsins í
dag. Þorvaldur nam skriftgrafík í
Ósló undir handleiðslu Ottars Helge
Johannessen, eins kunnasta grafík-
listamanns Norðmanna.
Sýningunni lýkur 13. október og fer
því hver að verða síðastur til að
skoða þessi merkilegu verk og fræð-
ast um leturgerðir ýmissa tíma.
Endilega …
… sjáið svart
og hvítt
Leturgerðir Sýningu Þorvaldar í
Gerðubergi lýkur 13. október.
Á haustönn 2013 og vorönn 2014
verður boðið upp á kvikmynda-
fræðslu klukkan 14.15 í Bíó Paradís.
Markhópurinn er framhalds-
skólanemar og er verkefnið stutt af
Kvikmyndamiðstöð Íslands, Reykja-
víkurborg og Europa Cinemas.
Oddný Sen kvikmyndafræðingur er
verkefnisstjóri og er megintilgang-
urinn með sýningunum að gefa
nemendum tækifæri til að kynnast
kvikmyndum sem hafa hlotið alþjóð-
legar viðurkenningar og skipa sess
innan kvikmyndasögunnar. Kvik-
myndirnar eru frá ýmsum löndum
og gætu sumar þeirra nýst við
tungumálakennslu. Sýningarnar eru
nemendum og kennurum að kostn-
aðarlausu og á undan hverri sýningu
er haldinn fyrirlestur með það fyrir
augum að auðvelda nemendum að
greina kvikmyndina og fá hugmyndir
að ritgerðarefni. Kvikmyndirnar eru
þematengdar og verður meðal ann-
ars rýnt í úrvinnslu tilfinninga, fé-
lagsleg tengsl, samfélagsleg tengsl,
einelti, listsköpun, stjórnmál, mann-
réttindi og síðast en ekki síst tengsl
nútímakvikmynda við sjálfa kvik-
myndasöguna. Kvikmyndir á borð
við hryllingsmyndina Psycho eftir
Alfred Hitchcock og Allt um móður
mína, eftir spænska leikstjórann
Pedro Almodóvar eru á meðal
mynda á dagskrá og nokkuð ljóst að
umræðurnar um þær verði líflegar.
Fyrsta sýning er föstudaginn 25.
október og sú síðasta 4. apríl. Þeir
nemendur og kennarar sem vilja
nýta sér þetta einstaka tækifæri til
að fræðast um kvikmyndasöguna
ættu að hafa samband við verkefn-
isstjóra með því að senda póst á
oddnysen@gmail.com.
Kvikmyndafræðsla fyrir framhaldsskólanema
Lykilmyndir í kvikmynda-
sögunni kynntar í Bíó Paradís
Verkefnastjórinn Oddný Sen heldur
utan um dagskrána í Bíó Paradís.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
www.gilbert.is
ÍSLENSK ÚR FYRIR ÍSLENDINGA