Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Golli Að störfum Listakonan Þórunn Bára Björnsdóttir nýtur þess að vinna að listsköpun á vinnustofu sinni. og skynjunin drifkrafturinn. Þórunn Birna á sér lífsspeki sem hún leitast við að lifa eftir. Það er í fyrsta lagi mikilvægt að átta sig á því hvernig maður skynjar heiminn og í öðru lagi að taka eftir því smáa og einfalda í lífinu. „Því allt í heim- inum samanstendur náttúrulega af því smáa og það eru hlutir sem hægja aðeins á okkur og fá okkur til þess að skoða hvað skiptir í raun og veru máli, þannig að við lærum að meta og sjá öðruvísi.“ Í hraða nú- tímans vilja þessir litlu hlutir sem eru allt í kringum okkur því miður gleymast. Einkum og sér í lagi ef maður gleymir að svipast um eftir þeim. Óreiðan í höfðinu Það er stór munur á því að horfa og að sjá, að sögn Þórunnar Báru. „Andstæðan við allt áreiti nútímans er kannski það að stoppa og sjá. Ekki bara horfa, heldur virkilega að taka það inn sem þú ert að horfa á og spyrja „hvað er þetta?“ Við þurfum að nema það sem við sjáum og þar kemur skynjunin inn og hún nær annað hvort til hjartans eða hugans.“ Ef fólk lendir í tímaþröng, það er að segja nær ekki að sjá það sem er í kring, segir Þórunn Bára auðvelt að verða kvíðanum að bráð. „Það verður svona óreiða í höfðinu. Ég held að með því að stoppa aðeins, horfa betur á hlutina, skilja hvað þú ert að sjá, þá gæti maður svolítið dregið niður í firringunni og kvíðanum. Það er það sem náttúran er þekkt fyrir að gera. Fólk samsamar sig við náttúruna og finnur að það tilheyrir því að til þess að virkilega lifa þarf maður að til- heyra einhverri stærri heild. Og mað- ur getur alltaf orðið hluti af nátt- úrunni og við erum það,“ segir Þórunn Bára sem vinnur stöðugt að því í listsköpun sinni að kafa dýpra ofan í náttúruna. Hún er sannfærð um að listin geti komið því á framfæri sem vísindin eru að segja okkur. Það að tvinna saman vísindum og list er að hennar mati vannýtt í samfélag- inu. „Ég held að hæfni okkar til þess að skynja sé vannýtt. Það gæti þurft að kenna fólki að nota skynjunarleið- irnar.“ Lífsgátan viðheldur spennunni Vangaveltur Þórunnar Báru kalla eilítið á þá spurningu hvort henni hafi, gegnum myndlistina og náttúruna, tekist að ráða lífsgátuna. „Nei, lífsgátan er alltaf að breytast og þess vegna held ég áfram að mála vegna þess að það verður alltaf að vera eitthvað spennandi handan við hornið og það heldur mér gangandi. Hluti af því að vera listamaður er að vera forvitinn og það heldur manni gangandi. Það er svo yndislegt að vera forvitinn því þá ertu alltaf að setja þig inn í eitthvað nýtt og kemst að einhverjum lokuðum dyrum sem þú hefðir aldrei komist að ef þú hefð- ir ekki farið í þetta ferðalag.“ Af þessu má ráða að á meðan lífið heldur áfram að koma fólki á óvart hlýtur líf- ið sjálft að vera stórkostlegt ævintýr. Þannig er það alla vega hjá Þórunni Báru sem skyggnist inn í örfínan og agnarsmáan lífheim þörunga, plantna, fléttna og sveppa svo fátt eitt sé nefnt. Afrakstur ævintýra síð- astliðinna fjögurra ára má sjá á myndlistarsýningunni sem verður opnuð á morgun í Smiðjunni Listhúsi að Ármúla 36. Sýningin stendur í tíu daga og þar ættu gestir að gera eins og Þórunn Bára hvetur til: Staldra við, gefa sér tíma til að sjá en ekki bara horfa, og þannig verður skynj- unin sjálf til. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Psycho Alfred Hitchcock á eitt fræg- asta atriði kvikmyndasögunnar. Vinkonur Kvikmynd Pedro Almadovars, Allt um móður mína, verður skoðuð. HS Veitur hf., kt. 431208-0590, Brekkustíg 36, Reykjanesbæ hefur birt lýsingu vegna töku skuldabréfa útgefnum af félaginu í flokknum HSVE 13 01 til viðskipta. Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef HS Veitna hf. www. hsveitur.is. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast hjá HS Veitum hf., Brekkustíg 36, Reykjanesbæ í 12 mánuði frá dagsetningu lýsingarinnar. Sótt hefur verið um töku skuldabréfa í flokknum HSVE 13 01 að nafnverði 5.623.865.000 krónur til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Áætlað er að skuldabréfin verði í fyrsta lagi tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. þann 15. október 2013. NASDAQ OMX Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku skuldabréfanna til viðskipta og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara. Reykjavík, 9. október 2013. Birting lýsingar HS Veitna hf. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Reuters Fuglavernd í samvinnu við Nýherja og Canon efnir til myndasýningar í dag þar sem ljósmyndararnir Daníel Berg- mann, Óskar Andri, Sindri Skúlason og Jóhann Óli Hilmarsson sýna glæsi- legar fuglamyndir úr náttúru Íslands. Sýningin verður í Borgartúni 37 og verður húsið opnað kl. 17. Allir eru velkomnir og ókeypis er á viðburðinn. Ljósmynd/Daníel Bergmann Haförn á flugi er afar tignarleg sýn. Einstakar fuglamyndir Tónlistarkaffi verður í Gerðu- bergi í kvöld, en á þeim tekur Pét- ur Grétarsson tónlistarmaður á móti gestum, spjallar um tón- list og tekið er í hljóðfæri eftir því sem við á. Notaleg kvöld þar sem gestir geta komið og hlýtt á létt spjall og ljúfa tóna. Í kvöld fær Pétur til sín Snorra Sigfús Birgisson, píanó- leikara og tónsmið. Þeir ræða saman um tónlist byggða á íslenskum þjóð- ararfi. Snorri er einn okkar fjölhæf- asti píanisti og tónskáld en verk hans spanna allt frá einleiksverkum til stórra hljómsveitarverka. Þeir munu meðal annars leika Fimm kvæði – þjóðlög sem Snorri samdi fyrir slag- verk og píanó. Ókeypis fyrir alla. Tónlistarkaffi á þjóðlegum nótum Snorri og Pétur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.