Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
VÍB styður
Víking Heiðar Ólafsson
til góðra verka.
FAGMENNSKA
SKILAR ÁRANGRI
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ríkissaksóknari og sérstakur sak-
sóknari hafa dregið til baka ákæru á
hendur Erlendi Magnússyni sem í
starfi sínu sem framkvæmdastjóri hjá
Glitni fyrir hrun var sakaður um inn-
herjasvik. Ákær-
an var þingfest í
Héraðsdómi
Reykjavíkur í
byrjun síðasta
mánaðar.
Í samtali við
Morgunblaðið
segist Erlendur
fagna þessari nið-
urstöðu og hún
staðfesti að end-
urvakning máls-
ins hafi verið röng.
Hann var sakaður um að hafa nýtt
sér innherjaupplýsingar þegar eign-
arhaldsfélagið Fjársjóður, sem var í
eigu Erlendar og konu hans, seldi
hlutabréf í Glitni fyrir 10 milljónir
króna að markaðsvirði vorið 2008.
Sérstakur saksóknari komst að þeirri
niðurstöðu í mars sl. að ekki væru
lengur forsendur fyrir ákæru í málinu
og Erlendur segir það hafa verið
vandlega rökstutt. Var honum í kjöl-
farið tilkynnt að rannsókn málsins
væri lokið og það fellt niður. Viðskipt-
in voru þá búin að vera til rannsóknar
í tvö ár og átta mánuði. Málið var síð-
an tekið upp aftur í sumar, að kröfu
Fjármálaeftirlitsins, FME, sem vildi
að ríkissaksóknari breytti niðurstöðu
sérstaks saksóknara, þvert á niður-
stöðu þess síðarnefnda. Í framhaldinu
var ákæra gefin út í byrjun ágúst.
Rangar sakargiftir FME
Erlendur dregur í efa hvort FME
hafi sem eftirlitsstofnun haft heimild
til að krefjast endurupptöku málsins
og haft þannig afskipti af störfum
ákæruvaldsins. „Ég hef velt því fyrir
mér hvort ég ætti að leggja fram
kæru á hendur FME fyrir rangar
sakargiftir en hreint út sagt tel ég það
ekki þjóna neinum tilgangi að bæta
við enn einni kærunni í okkar sam-
félagi, það yrði engu bættara með
það,“ segir Erlendur, sem er mjög
ósáttur við þá málsmeðferð sem hann
hefur fengið á undanförnum árum.
„Það kom gríðarlega flatt upp á
mig í upphafi að þetta mál var tekið til
rannsóknar, ég sá enga ástæðu til
þess. Í öllu eðlilegu árferði hefðu lög-
regluyfirvöld ekki rannsakað ein við-
skipti svona mikið. Hins vegar hefur
ástandið ekki verið eðlilegt undanfar-
in ár og ýmsar grundvallar réttar-
farsreglur mátt víkja. Þannig hafa
hundruð manna haft stöðu grunaðra í
áraraðir, þó að það sé deginum ljós-
ara að þeir muni fæstir sæta ákæru.
Það er auðvitað ekki gott fyrir neitt
samfélag,“ segir Erlendur, sem taldi
sína ákæru út í hött. Þar hafi m.a.
ákveðnar setningar verið slitnar úr
samhengi en meðal gagna sérstaks
saksóknara var tölvupóstur sem Er-
lendur framsendi til Lárusar Weld-
ing, forstjóra Glitnis, 14. mars 2008.
Erlendur var þá yfir deild sem sá um
skuldsetta fjármögnun Glitnis og
hann segir tölvupóstinn hafa fjallað
um ástand á alþjóðlegum peninga-
mörkuðum.
Erlendur segir það verulega
íþyngjandi að sæta rannsókn og
ákæru, hvort sem menn séu sekir eða
saklausir. „Í því felst gríðarleg refs-
ing og í mínu tilviki hafði það alvar-
legar afleiðingar. Ég varð fyrir fjár-
hagslegu tjóni og varð að draga mig
út úr ýmsum verkefnum tímabundið
sem ég var kominn í, eftir að ég hætti
í bankanum. Það tjón verður ekki
bætt,“ segir Erlendur en í dag starfar
hann við eigið fyrirtæki ásamt fé-
lögum sínum. Fyrirtækið; Total Capi-
tal Partners, er í London en hann býr
á Íslandi.
Ósáttur við fréttaflutning
„Annars er engin ástæða til að vera
reiður eða gramur, það kemur bara
verst við mann sjálfan. Það er mjög
ánægjulegt að þessu máli sé lokið,“
segir Erlendur, sem vonast til að end-
anleg niðurstaða hafi nú fengist, enda
geti ekkert nýtt komið fram sem gefi
tilefni til frekari rannsókna. Hann er
einnig ósáttur við fréttaflutning af
þingfestingu ákærunnar í byrjun
september sl.
„Ákæran ein og sér getur skemmt
mannorð manns, jafnvel þó svo að
fjölmiðlar hafi í einu og öllu ákæru-
efnið rétt eftir. Ákæran segir aðeins
takmarkaða sögu og því varhugavert
að byggja frétt á henni. Verra er þeg-
ar fjölmiðlar taka upp á því að skálda
við ákæruefnið,“ segir Erlendur og
vísar þar til fréttastofu RÚV, sem
hafi bætt því við að hann hafi ritað
bréf til Lárusar tveimur vikum fyrir
viðskipti sín með hlutabréfin. „Ég
framsendi til hans tölvupóst með
stuttri athugasemd og tölvupóstur er
eins og ritað talmál, eins og allir vita,“
segir Erlendur að endingu.
„Ákæra ein og sér
skemmir mannorðið“
Ákæra felld niður á hendur fv. framkvæmdastjóra í Glitni
Rannsókn hafði áður verið hætt Afar ósáttur við FME
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftirmál Erlendur starfaði hjá Glitni þar til bankinn féll haustið 2008.
Erlendur
Magnússon
Hætt við 82 mál
» Sérstakur saksóknari hefur
fengið inn á borð til sín 182
mál síðan embættið tók til
starfa í ársbyrjun 2009.
» Í 82 málum hefur rannsókn
verið hætt, ákærur dregnar til
baka eða verið vísað frá dómi,
að því er kom fram í RÚV.
» Rannsókn á 58 málum
stendur yfir en aðeins hefur
verið dæmt í þremur málum í
Hæstarétti.