Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 15

Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 15
Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Hafa ber í huga að eign í fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað og lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði hennar. Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandssjóða, www.islandssjodir.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. VÍB er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is | Finndu okkur á Facebook FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA, FRÆÐSLA OG FJÁRFESTINGARAÐFERÐIR SKILA ÁRANGRI Fáðu nánari upplýsingar á www.vib.is eða pantaðu viðtal við ráðgjafa í síma 440 4900. Í nýlegu vali breska fjármálaritsins World Finance þótti VÍB - eignastýringarþjónusta Íslandsbanka standa fremst íslenskra eignastýringaraðila. Við valið er horft til margra þátta og þá helst árangurs síðasta árs, fjárfestingaraðferða, þjónustu og fræðslu. Besta eignastýringin Frábær ávöxtun 40,2% 1 ár 25,6% 2 ár 24,7% -19,2% 4 ár 5 ár 24,7% 3 ár Hlutabréfasjóðurinn hefur skilað frábærri ávöxtun síðastliðin ár og er góð leið til þess að taka þátt í uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins. * Skv. www.sjodir.is Ávöxtunartölur miðast við nafnávöxtun og er ávöxtun umfram 12 mánuði umreiknuð í ávöxtun á ársgrundvelli. Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Öflugt fræðslustarf Fylgstu með fræðslustarfi okkar á www.vib.is Frá byrjun árs 2011 hefur VÍB staðið fyrir hafa sótt eða fylgst með á vef okkar SEM YFIR 20.000 manns 150 fræðslufundum Niðurstaða netkönnunar Capacent Gallup í maí 2013 var sú að Íslendingar myndu leita fyrst til VÍB - eignastýringarþjónustu Íslandsbanka þyrftu þeir á eignastýringar- þjónustu að halda. 30,9% þeirra sem tóku afstöðu nefndu okkur sem fyrsta val. Við erum fyrsta val 31% VÍB/Íslandsbanki 26% 22% FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Frá og með morgundeginum verða Reykvíkingar að auka meðvitund sína um hverju þeir henda í sorp- tunnuna. Eftir 10. október verða grá- ar og grænar sorptunnur Reykjavík- urborgar undir blandaðan úrgang sem innihalda pappír eða pappa ekki tæmdar í borginni. Þá þarf að losa allan pappír úr tunnunum fyrir næstu tæmingu. Pappírsúrgangur má aðeins fara í bláar pappírstunnur, í bláa grenndargáma eða í tilheyr- andi gáma á endurvinnslustöðvum. Einnig bjóða einkaaðilar endur- vinnslutunnur sem hægt er að setja pappírsefni í. Eygerður Margrétardóttir er deildarstjóri umhverfis- og úrgangs- stjórnunar hjá Reykjavíkurborg. „Við munum ekki hirða þær tunnur þar sem augljóslega er ekki verið að flokka pappírinn frá. Nú síðustu þrjár vikur höfum við verið að líma gula miða á gráu tunnurnar þar sem við sjáum pappír í og benda fólki á að það hefur fundist pappír í tunnunni og að eftir 10. október verði slík tunna ekki tæmd. Aðlögunarferlið hófst í október í fyrra þegar við inn- leiddum verkefnið Pappír er ekki rusl. Við höfum verið með skilaboð og fræðslu til íbúa síðan þá og þetta er í raun og veru lokaáfanginn á þessari innleiðingu,“ segir Eygerður. Skil á pappírsefnum í endur- vinnslu hafa aukist stórlega, bæði á endurvinnslustöðvum, grenndar- stöðvum og í bláu pappírstunnurnar. „Ef maður horfir á september núna í ár og miðar við september í fyrra þá hefur orðið 17% aukning á flokkun og skilum á pappír og pappa til endurvinnslunnar. Í ár hafa 3.680 tonn af pappírsefnum skilað sér í endurvinnslu og á sama tíma var 4% samdráttur í blönduðum úrgangi. Í nóvember í fyrra greindi Sorpa blandaða úrganginn sem var settur í gráu tunnurnar og þá var hlutfall af pappírsúrgangi 23% sem var urðaður í Álfsnesi. Það verður önnur slík greining gerð núna í nóvember og vonumst við til að hlutfall pappírs- úrgangs sem endar í urðun verði búið að minnka mikið. Við erum að horfa á pappírinn sem auðlind.“ Ekki rótað í ruslinu Ruslatunnur eru oft troðfullar við tæmingu og því eflaust erfitt að sjá pappír, Eygerður segir að sorphirðu- mennirnir ætli ekki að fara að róta í þeim eftir pappír. „Um leið og þeir opna tunnurnar og sjá að pappírinn er augljóslega ekki flokkaður frá munu þeir skilja tunnuna eftir. Í einhverjum tilfellum sjáum við gegnum fingur okkar t.d með blautan pappír eða pappír sem er mikið mengaður af matarafgöng- um.“ Nokkuð er um að fólk hafi sam- band við borgina til að kynna sér þetta nýja sorpflokkunarkerfi, áhyggjurnar snúi oft að fjölbýlishús- um þar sem margir deila ábyrgðinni. „Það er húsfélaga að taka á svona málum. Við höfum verið að styðja hússtjórnir og leiðbeina þeim hvern- ig á að taka á málunum, það er t.d. hægt að fá áminningarmiða til að líma fyrir ofan rennurnar.“ Mikil aðsókn í bláar tunnur Íbúar geta pantað sér sérstaka bláa tunnu undir pappírinn og segir Eygerður að það hafi orðið mikil aukning í því. Bláu pappírstunnurnar í notkun í Reykjavík séu orðnar 8.998 akkúrat núna en í lok síðasta árs hafi þær verið tæplega 4.000. „Síðasta hálfa mánuðinn höfum við verið að taka á móti yfir 1.000 pöntunum á tunnunum og það bíða núna yfir 500 pantanir sem við eigum eftir að af- greiða.“ Eygerður bendir á að það sé hag- kvæmt fyrir íbúa sem eru með fleiri en eina gráa tunnu að skipta einni þeirra út fyrir bláa pappírstunnu. Grá tunna kosti 18.600 kr. á ári en sú bláa 6.500 kr. Nánari upplýsingar má finna á: www.pappirerekkirusl.is Pappírinn má ekki fara í ruslið  Sorptunnur með pappír eða pappa í verða ekki tæmdar í Reykjavík frá og með morgundeginum  Orðið 17% aukning á skil á pappír í endurvinnslu á einu ári  Bláa tunnan ódýrari en sú gráa Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sorphirða Eftir 10. október verða gráar og grænar sorptunnur sem inni- halda pappír eða pappa ekki tæmdar í Reykjavíkurborg. Frá því í ársbyrjun 2011 hafa Akureyringar ekki mátt henda pappír í almennt sorp. Þar er íbúum þó ekki refsað ef pappír finnst í tunnunni, tunnan er tæmd og ábendingum komið til fólks um að gera betur. „Við höfðum til skynsemi fólks og það hefur gengið mjög vel. Ár- angurinn af flokkuninni er mjög góður,“ segir Helgi Pálsson, rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands. „Miðað við það sem var þá fara um 46% af því sem áður fór til urðunar í þenn- an endurvinnslufarveg.“ Grenndarstöðvar eru á þrett- án stöðum í bænum með sex gámum. Í einn fara fernurnar, dagblöðin í annan, bylgjupappír í þann þriðja og svo eru gámar fyrir plast, gler og málma. Einn- ig eru dallar fyrir rafhlöður og kertaafganga. Íbúar geta líka fengið sér endurvinnslutunnu heim og sett alla þessa flokka í hana. „Það eru um 10% bæjar- búa með slíka tunnu og borga 1.255 kr. fyrir á mánuði. Það er síðan flokkað úr tunnunum á sorpstöðinni.“ Höfða til skynseminnar AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.