Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.10.2013, Qupperneq 18
AUSTURLANDDAGAHRINGFERÐ BAKKAFJÖRÐUR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þau Indriði Þóroddsson og Frey- dís Guðmundsdóttir þekkja sam- félagið á Bakkafirði betur en flest- ir. Hafa þau bæði búið þar í áratugi og segja að þrautseigja einkenni bæjarbúa sem hafi mátt þola aflabrest og fólksfækkun. Indriði starfar sem hafnarvörður við nýbyggða höfnina og hefur ver- ið verkstjóri hjá bænum und- anfarin 18 ár. „Gamla höfnin var ekki nógu örugg og nýja höfnin var byggð þar sem mun auðveld- ara var að koma bátum að sam- kvæmt öldumælingum Siglinga- stofnunar. Það þurfti alltaf að hífa alla báta á land með krana í gömlu höfninni,“ segir Indriði. Stærsti hluti bæjarbúa hefur atvinnu af sjávarútvegi. Bæði við vinnslu og smábátaveiðar. Indriði flutti til Bakkafjarðar fyrir tæpum 40 árum en kona hans Unnur Gunnlaugs- dóttir er alin upp í sveit nærri bænum. „Ég myndi lýsa þessu sem trillusamfélagi. Svona hefðbundið lítið sjávarpláss þar sem allir þekkja alla,“ segir Indriði. Þrautseigja einkennir fólkið Hann segir margt hafa breyst í samfélaginu. Sérstaklega þar sem sauðfjárbúskapur hefur að mestu lagst af í nærliggjandi sveitum. Þegar mest lét árið 1995 voru 160 Morgunblaðið/Golli Fleira fólk Freydís segir það verkefni bæjarbúa að snúa fólksfækkun við. „Hér sérðu norð- urljós og heyrir fuglana syngja“  Trillusamfélag þar sem allir þekkja alla  Veitingamaðurinn Baldur Öxdal á Laugarvatni vinnur nú að endurbótum á Halldórshúsi, gamla Kaupfélagshús- inu í bænum sem er elsta hús Bakka- fjarðar. Það var byggt í kringum alda- mótin 1900 og er eina timburhúsið sem eftir stendur af gömlum timb- urhúsum á tanganum svonefnda. Til stendur að vera þar með veit- ingarekstur og gistiaðstöðu. Að sögn Baldurs hefur vinnan geng- ið vel og stefnt er að því að hefja þar rekstur 2015. Spurður að því hvort hann eigi ræt- ur að rekja til Bakkafjarðar segir Bald- ur svo ekki vera. „Ég keyrði óvart í kringum þetta hús sumarið 1999 eða 2000. Mér fannst þá og finnst enn þetta vera fallegasta staðsetning á húsi sem ég hef séð hér á Íslandi.“ Baldur segir mikinn áhuga á að varðveita húsið. „Fólkið í þorpinu, Minjavernd og Þjóðhátíðarsjóður. Það hafa allir skilning á að það þarf að bjarga þessu húsi.“ Ónýtt paradís „Á Bakkafirði er gamla góða Ísland, ósnortið og friðsælt og það er svo vel hægt að snúa við blaðinu og gera staðinn að huggulegu sjávarþorpi þar sem mikið er um að vera fyrir ferða- menn. Þarna er allt til alls, ótrúleg náttúrufegurð, mikil kyrrð og líklega bestu aðstæður til hvalaskoðunar á landinu. Þarna þarf ekki einu sinni að fara út á sjó til að sjá hvali,“ segir Baldur. Gera líka upp gamla bryggju „Á Bakkafirði er líka ein fallegasta gönguleið sem til er; út í Digranesvita. Þetta er ónýtt paradís og þarna eru svo ótal margir möguleikar.“ Halldórshús er ekki það eina sem verið er að gera upp á Bakkafirði. „Við, nokkuð stór hópur fólks, erum að reyna að bjarga gömlu bryggjunni,“ segir Baldur. Að auki stendur hann að endurbótum á Lindarbrekku, bónda- bæ skammt fyrir utan Bakkafjörð, þar sem til stendur að reka gistiheimili. „Við þurfum ekkert alltaf að finna upp eitthvað nýtt. Hér er allt til staðar; ósnortin náttúran og fólkið. Við eigum að hlúa að því sem fyrir er.“ annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Golli Halldórshús Elsta hús Bakkafjarðar er nú fagurgrænt og fær senn nýtt hlutverk. Elsta hús Bakkafjarðar gengur í endurnýjun lífdaga  Í grunnskólanum á Bakkafirði er lögð rík áhersla á að nemendur taki ábyrgð á eigin námi. Til dæmis vinna elstu nemendur skólans eftir einstaklingsbundnum áætlunum sem þeir eiga sjálfir þátt í að móta. Í samfélagsgreinum fást þeir við sjálfstæð viðfangsefni og vinna þá ýmist einir eða í hóp. Nemendur tengja viðfangsefni sín stundum ýmsum tegundum miðlunar, eins og t.d. myndrænni tjáningu eða kvik- myndagerð, en þegar útsendarar Morgunblaðsins litu við í skólanum nýverið var verið að vinna að gerð stuttmyndar. Að sögn Maríu Guðmundsdóttur, skólastjóra grunnskólans á Bakka- firði, hefur þetta fyrirkomulag reynst vel. „Við tókum þetta upp vegna þess að nemendur voru áhugalausir og leiðir í hefðbundnum samfélags- og náttúrufræðitímum. Við vildum tengja listgreinar við þessar greinar og að nemendur hefðu val. Þeir eru ánægðir með þetta fyrirkomulag og eru sjálf- stæðir og áhugasamir í sinni vinnu,“ segir María. annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Golli Kvikmyndagerð Nemendur á Bakkafirði vinna verkefnin sín á ýmsan hátt, meðal annars með gerð stuttmynda. Krakkarnir taka ábyrgð á eigin námi mest lét störfuðu 13 manns með Ólafi en vegna tækniframþróunar hefur starfsfélögunum fækkað jafnt og þétt. Eru þeir Halldór Halldórsson nú tveir eftir en þeir hafa starfað saman frá upphafi starfs- ferils Ólafs. „Þú veist í rauninni aldrei hvað bíður þín í upphafi dags. Til að mynda þurfti ég að sinna snjómokstri þegar ég mætti til vinnu í dag,“ segir Ólafur og hlær við. Ratsjáin stendur á Gunnólfs- víkurfjalli sem er um 20 kílómetra frá Bakkafirði. Ólafur, sem er með sveinspróf í bifvélavirkjun, segir að engin stórvægileg bilun hafi komið upp á þeim tíma sem hann hefur starfað sem ratsjármaður. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ólafur Björn Sveinsson hefur starfað sem ratsjár- maður á Bakkafirði í 22 ár. Á þeim tíma hefur rat- sjármönnum fækkað ört, en einungis starfa um átta slíkir á þeim fjórum stöðvum sem í notkun eru á landinu. Hlutverk ratsjáa er að fylgjast með loft- helgi og flugumferð við Ísland og er tækjabúnaður að hluta fjármagnaður með fé frá NATO. Ratsjárnar eru nú í umsjá Landhelgisgæslunnar en voru áður reknar af bandaríska hernum. Þegar Af þrettán ratsjármönnum eru nú aðeins tveir eftir  Ólafur keyrir á Gunnólfsvíkurfjall á hverjum degi Morgunblaðið/Golli Ratsjármaður Ólafur hefur starfað sem slíkur í 22 ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.