Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 23

Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • fastus@fastus.is • www.fastus.is Í öll betri eldhús Blandari • Töfrasproti Handþeytari • Safapressa Turmix eru hágæðavörur frá Sviss fyrir þá sem gera miklar kröfur í eldhúsi. Tækin eru ekki aðeins vönduð og sterk heldur er einnig mikið lagt upp úr glæsilegri hönnun og vönduðu útliti. Tæki fyrir þá alkröfuhörðustu. Turmix vörurnar fást m.a. í Búsáhöld, Kringlunni. Veit á vandaða lausn Belgískir slökkviliðsmenn sprauta froðu á lög- reglumenn sem stóðu vörð við bústað forsætisráðherra Belgíu í Brussel. Slökkviliðsmennirnir efndu til mót- mæla við embættisbústaðinn þegar ráðherrar ríkis- stjórnar Belgíu komu þar saman til að ræða fjárlög næsta árs. Slökkviliðsmennirnir kröfðust þess að fram- lög til slökkviliða og eldvarna yrðu aukin, að sögn fréttaveitunnar AFP. Lögreglan fær að kenna á slökkviliði AFP Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur hvatt öll aðildarríki sín til að samþykkja aukna öryggis- gæslu og eftirlit um allt Miðjarðar- hafið til að koma í veg fyrir mann- skæð slys á borð við það sem varð við ítölsku eyjuna Lampedusa í vikunni sem leið. Talið er að um 300 flótta- menn frá Afríku hafi drukknað þeg- ar bátur þeirra sökk undan strönd eyjunnar. Alls höfðu 274 lík fundist í sjónum við eyjuna í gær en fleiri er enn saknað. Cecilia Malmström, sem fer með innanríkismál í framkvæmdastjórn- inni, kvaðst í gær hafa skorað á öll aðildarríki sambandsins að stórauka björgunar- og eftirlitsstarf Frontex, Landamæraeftirlitsstofnunar Evr- ópusambandsins, í Miðjarðarhafi allt frá Kýpur til Spánar. Hún sagði að fyrstu viðbrögð leiðtoga aðildarríkj- anna hefðu verið jákvæð. Frontex hefur aðstoðað ítölsk yfir- völd við strandgæsluna, en stofnunin hefur aðeins getað lagt til fjögur skip, tvær þyrlur og tvær flugvélar, að sögn fréttavefjar BBC. Skipstjóri í haldi Malmström sagði að með því að auka eftirlitið væri hægt að minnka líkurnar á hörmulegum sjóslysum á borð við slysið í vikunni sem leið þeg- ar bátur með um 500 flóttamenn frá Afríku fórst. 35 ára Túnismaður, sem mun hafa verið skipstjóri báts- ins, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp. ESB vill auka eftirlitið  Aðildarríkin hvött til að samþykkja stóraukna öryggis- gæslu um allt Miðjarðarhaf til að afstýra fleiri sjóslysum Breski vísindamaðurinn Peter Higgs og belgíski vísindamaðurinn Francois Englert fá Nóbels- verðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir vinnu sína við smíði kenningar um Higgs-bóseindina, sem sumir vilja reyndar kalla guðseindina en vís- indamenn eru lítt hrifnir af því. Á sjöunda áratug síðustu aldar voru þeir Higgs og Englert á með- al nokkurra eðlisfræðinga sem lögðu fram staðallíkan til að út- skýra hvers vegna efnisheimurinn hefði massa. Eftir 45 ára leit fannst Higgs- bóseindin loks árið 2012, en það voru vísindamenn við evrópsku rannsóknastöðina í öreindafræði, CERN, í Genf í Sviss tilkynntu fundinn sem þykir stórmerkilegur. Tilvist Higgs-bóseindarinnar færði sönnur á að ósýnilegt svið, svokall- að Higgs-svið, léki um allan al- heiminn sem gæfi efni massa. Higgs-bóseindin er nefnd eftir Peter Higgs sem gat sér til um til- vist hennar árið 1964. jonpetur@mbl.is Nóbel fyrir bóseind AFP Heiðraður Elio Di Rupo, forsætisráðherra Belgíu (til hægri), óskar vísinda- manninum Francois Englert til hamingju með Nóbelsverðlaunin.  Higgs og Englert verðlaunaðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.