Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Snjókoma Snjór og slydda geta málað náttúruna fögrum skuggum. Á Þingvöllum var vetrarfegurðin einstök í gær, grjótið var bólstrað mjúkum snjó og snjókorn teiknuðu strik. Ómar Vegna greinar Frið- riks Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Skjásins ehf., í Morg- unblaðinu á laugardag- inn er rétt að benda á eftirfarandi: Á fjögurra ára tíma- bili, frá 2009 til 2013, hafa stjórnvöld skert þjónustutekjur Rík- isútvarpsins um 1,1 milljarð króna að raun- gildi, eða um fjórðung. Samkvæmt fjárlögum ársins 2009 voru þjónustutekjurnar um 4.300 milljónir króna að nú- virði en á yfirstand- andi ári eru þær 3.195 milljónir króna. Þetta er gert með því að taka hluta af útvarps- gjaldinu ár hvert og nota í aðrar þarfir rík- issjóðs, auk þess sem gjaldið fylgir ekki al- mennri verð- lagsþróun. Í gildandi lögum frá í vor um Ríkisútvarpið var gert ráð fyrir að frá næstu áramótum rynni útvarpsgjaldið óskert til RÚV en á móti tæki það á sig tekju- skerðingu og útgjaldauka sam- kvæmt sömu lögum. Þar vegur langþyngst almennt bann við sölu á kostun, en einnig er auglýsingamín- útum sem RÚV má selja í sjónvarpi fækkað úr tólf á klukkustund í átta – og síðan kemur til kostnaðarauki vegna kvaða um stofnun og rekstur dótturfélaga um hluta starfsem- innar. Samanlögð neikvæð áhrif af þessu þrennu á rekstur RÚV eru áætluð um 470 milljónir króna. Rekstraráætlanir RÚV byggðust að sjálfsögðu á þessum grundvall- arforsendum gildandi laga. Í nýkynntu fjárlagafrumvarpi er hins vegar hætt við að skila út- varpsgjaldinu óskertu til RÚV en afkomuskerðingin látin standa að fullu. Til þess þó að koma að ein- hverju leyti til móts við þá skerð- ingu er hlutur RÚV af útvarps- gjaldinu hækkaður um 215 milljónir króna, til viðbótar við verðlags- hækkun upp á 104 milljónir. Jafn- framt kemur fram í fjárlaga- frumvarpinu að RÚV eigi að fá útvarpsgjaldið óskert frá 2016 en þá verði búið að lækka það um 500 milljónir króna. Þannig hafa stjórnvöld ákveðið að lækka þjónustutekjur RÚV til fyrirsjánlegrar framtíðar um 1,1 milljarð króna á ári, eða um fjórð- ung að raunvirði frá 2009. Þessu til viðbótar kemur lögþvinguð lækkun á tekjum af kostun og auglýsingum – og girt fyrir að hægt sé að auka slíkar tekjur til að mæta skerðing- unni á þjónustutekjum. Þetta er sá veruleiki sem Ríkis- útvarpið þarf nú að bregðast við. Eftir Pál Magnússon » Þannig hafa stjórn- völd ákveðið að lækka þjónustutekjur RÚV til fyrirsjánlegrar framtíðar um 1,1 millj- arð króna á ári… Páll Magnússon Höfundur er útvarpsstjóri. Tekjur RÚV skertar um milljarð Varnaðarorð stoða lítt sé þeim ekki gaum- ur gefinn. Viðbrögðin hérlendis og á al- þjóðavísu við nýjustu skýrslu loftslags- nefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC), sem kunngerð var í Stokk- hólmi 27. september sl., bera ekki vott um ár- vekni eða að kjörnir leiðtogar ætli sér að nota hana til að ryðja braut fyrir rót- tækar hugmyndir um breytingar heima fyrir og á heimsvísu. Dæmi um þetta er þögnin á Alþingi um loftslagsmálin samhliða ítrekuðum væntingum um olíuvinnslu á Dreka- svæðinu. Í Bretlandi brást umhverf- isráðherra Íhaldsflokksins við skýrslunni með því að túlka hana þannig að með henni sé verið að draga í land um alvöru loftslags- breytinga af mannavöldum. Búa þó Bretar við löggjöf frá 2008 sem skuldbindur þá til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 80% fram til ársins 2050. Það markmið virðist nógu langt undan til að auðvelt sé að gleyma því frá einu kjörtímabili til annars. Sú spurning verður æ áleitn- ari hvort Homo sapiens sé þess megnugur að bjarga sér frá sjálfseyðingu sem blasir við að óbreyttri siglingu. Hvað segja lofts- lagsvísindin? Fyrsta skýrsla IPCC-nefndarinnar kom út árið 1990 og lagði grunninn að lofts- lagssamningi Samein- uðu þjóðanna. Skýrslan nú er sú 5. í röðinni, byggð á langtum traustari gögnum vís- indamanna en fyrri niðurstöður. Þannig hafa rökin fyrir því að lofts- lagsbreytingar með hækkun með- alhita séu að drjúgum hluta af mannavöldum styrkst stig af stigi. Niðurstaða nefndarinnar nú er að þessi áhrif megi teljast nánast örugg, líkurnar séu á bilinu 95-100%. Að baki er margra ára starf herskara sérfræðinga og sívaxandi fjöldi rann- sókna sem byggjast á athugunum um allan heim. Horfur varðandi áfram- haldandi hlýnun eru nú taldar á bilinu 1,5°-4,5°C. Breytingin á hita- stigi verði mest í yfirborðslögum heimshafanna, og yfirborð þeirra hækki um allt að 80 cm til næstu aldamóta. Samfara þessu súrni sjór- inn stig af stigi frá því sem nú er með hættu á afar neikvæðum áhrifum á sjávarvistkerfi. Eigi að takast að halda hlýnun að meðaltali innan við 2°C, sem talin eru afdrifarík mörk, má frekari brennsla kolefnis ekki fara yfir eina trilljón tonna. Það ger- ist hins vegar innan 30 ára, sé ekki þegar gripið til róttækra aðgerða. Afneitarar hafa sótt í sig veðrið Í alþjóðlegri efnahagskreppu síð- ustu ára hefur hægt á losun gróð- urhúsalofts sem segir sitt um rót vandans. Þungi opinberrar stjórn- málaumræðu hefur snúist um hag- vöxt sem flestra meina bót. Jafn- framt hafa andmælendur loftslagsvísindanna færst í aukana, drifnir áfram af olíuiðnaðinum og einsýnum hagvaxtarpostulum. Af- neitunin birtist sem trúarbrögð, þar sem vísindalegum niðurstöðum er hafnað. Eftir útkomu IPCC- skýrslunnar og frekari kynningu hennar á komandi vetri reynir á hvort alþjóðleg viðspyrna fæst til marktækra aðgerða. Loftslags- ráðstefnan í Kaupmannahöfn 2009 endaði án bindandi samkomulags um losun. Eftir tvö ár reynir á hvort nið- urstaða næst á ársfundi loftslags- samningsins í París 2015 um bind- andi losunarmörk. Þrátt fyrir endurnýjanlega orkugjafa er Ísland í hópi þeirra ríkja sem losa mest gróð- urhúsaloft á mann, staðan um 14 tonn per höfuð árið 2011. Nú erum við bundin í ETS-sölukerfi Evrópu- sambandsins með losunarheimildir, en það kerfi hefur hingað til skilað litlum árangri. Örlagaglíma aldarinnar Hlýnun andrúmsloftsins af manna- völdum er stærsta umhverfisógn sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir til þessa og leggst á eitt með marg- slungnum vanda af öðrum toga. Þar er fyrirsjáanleg fjölgun jarðarbúa um 2 milljarða fram til 2050 nærtæk og samslungin aukinni losun gróð- urhúsalofts. Slíkri mannfjölgun fylgir jafnframt enn aukið álag á náttúruleg vistkerfi og fæðuöflun. Ekki bætir úr skák ónýtt og ósjálf- bært hagkerfi þar sem blind mark- aðsöfl ráða ferðinni og eiga stóran hlut í núverandi vistkreppu. Um þátt markaðarins er hins vegar deilt, einnig á vettvangi loftslagsmálanna. Formaður IPCC-nefndarinnar, Raj- enda Pachauri, er gagnrýndur fyrir að vísa á fjármálamarkaði heimsins sem helsta haldreipi í loftslagsglím- unni með því að verðleggja losun gróðurhúslofttegunda nógu hátt. Andmælendur hans vilja halda sig við samræmdar og víðtækar reglur og þak á losun í einstökum löndum og framleiðslugreinum. Horfurnar trúlega enn dekkri Þótt alþjóðasamfélagið reyni um sinn að halda sig við 2°C hlýn- unarmarkið fjölgar þeim röddum sem telja það óraunsætt. Í þeim hópi eru talsmenn Alþjóðabankans sem í fyrra gaf út skýrslu sem gefur til kynna að hlýnunin stefni í 4°C fyrir lok 21. aldarinnar. Slík þróun mun að sögn höfunda leiða til ógnarástands víða um heim með fæðuskorti, hung- ursneyð og óviðráðanlegum flótta- mannastraumi. Í hópi þeirra sem telja IPCC-skýrsluna of varfærna er Stern lávarður, höfundur þekktrar skýrslu fyrir bresk stjórnvöld. Hann vísar m.a. á hættuna af stóraukinni losun metans vegna bráðnunar síf- rera á heimsskautasvæðum. Íslensk- ir ráðamenn gerðu rétt í að draga hið fyrsta til baka þátttöku Íslendinga í olíuleit á Drekasvæðinu og leggjast þess í stað á árar um ábyrga stefnu í þeirri örlagaglímu sem bíður uppvax- andi kynslóðar. Eftir Hjörleif Guttormsson » Íslenskir ráðamenn gerðu rétt í að draga til baka þátttöku í olíu- leit á Drekasvæðinu og leggjast þess í stað á ár- ar um ábyrga loftslags- stefnu. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Mannkynið á hraðferð í sjálfseyðingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.