Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 28

Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 ✝ Páll M. Jóns-son húsasmíða- meistari fæddist á Auðkúlu í Arnar- firði 19. júlí 1919. Hann lést á Sól- vangi 30. sept- ember 2013. Foreldrar hans voru Guðmunda María Gísladóttir ljósmóðir, f. á Auð- kúlu 2. júlí 1878, d. 28. júlí 1966 og Jón Bjarni Matthíasson, skipstjóri og bóndi, f. að Baulhúsum í Arn- arfirði 25. apríl 1876 d. 15. jan. 1929. Þau eignuðust níu börn. Þau sem komust á legg voru: Ólafur, f. 1911, d. 1993, Gísli, f. 1909, d. 1980, Matthea, f. 1904, d. 2006, Guðrún, f. 1906 sem er nú, ein systkinanna á lífi, 107 ára. 24. júní 1944 kvæntist Páll, Bergþóru Guðmundsdóttur klæðskera, f. á Sæbóli í Aðal- vík, 17. okt. 1918, d. á Selfossi 20. júlí 2000. Foreldrar Berg- þóru voru Guðmundur Lúther Hermannsson, f. 17. mars 1890, d. 12. ág. 1973 og Margrét Hall- dóra Þorbergsdóttir, f. 3. des. 1896, d. 23. júlí 1973. Börn Bergþóru og Páls eru: 1) Gunn- ar Ingi, húsasmíðameistari, f. 16.3. 1945, 2) Guðmundur Kjartan, húsasmíðameistari, f. 17.12. 1947, kvæntur Vilfríði Þórðardóttur, f. 18.8. 1945. Börn þeirra eru a) Páll Berg- þór, f. 12.9. 1966, kvæntur Sig- rúnu Einarsdóttur, f. 25.11. 1964, börn þeirra eru Einar Þór, Hrefna Þórdís (látin) Guð- mundur Freyr, Úlfar Hrafn, Þórdís Silja. b) Hrefna Þórdís, f. 25.4. 1971, d. 29.6. 1971. c) Hrefna Guðný, f. 21.4. 1972, gift Gunnlaugi Gunnarssyni, f. 15.3. 1972, börn þeirra eru Gunnar Aðalsteinn, Hrafnkell Þórður og Vilfríður Hekla. d) Grímur Valtýr, f. 25.2. 1974, á soninn Róbert Andra með fyrr- verandi sambýliskonu, Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, f. 12.8. 1979, og soninn Björn Starkað með Kristínu Önnu Ein- arsdóttur, f. 1971. 3) Margrét María, f. 3.1. 1952, gift Ara Kristinssyni, kvikmyndagerðar- manni, f. 16.4. 1951. Börn þeirra eru a) Kristinn, f. 17.6. 1971, kvænt- ur Helgu Leu Eg- ilsdóttur, f. 25.3. 1971, börn þeirra eru Kristjana Ýr, Mar- grét Lea og Ari Freyr. b) Berg- þóra, f. 1.9. 1986, gift Guð- mundi Marteini Hannessyni, f. 28.2. 1986. 4) Guðrún, við- skiptafræðingur, f. 7.12. 1956. Fyrri maður Guðrúnar er Gísli Valtýsson, rafeindavirki, f. 19.7. 1947, dóttir þeirra er Bergdís Ester, f. 10.10. 1981, trúlofuð Kristian Jensen, f. 3.2. 1981, sonur þeirra er Bjarki Noel. Síðari eiginmaður Guð- rúnar er Jón Grímsson, flug- stjóri, f. 22.8. 1950, dóttir þeirra er Halla Guðrún, f. 4.1. 1992. Páll ólst upp á Auðkúlu, fluttist til Þingeyrar 1929 og 1931 til Hafnarfjarðar. Páll nam trésmíðar, komst að sem lærlingur á trésmíðaverkstæði Jóhannesar Reykdal. Páll stofn- aði eigið trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði og flutti það síðan í Kópavog 1952. Páll og Berg- þóra hófu búskap á Skúlaskeiði 28 Hafnarfirði 1944, fluttu í Kópavog 1964 og þaðan á Sel- foss árið 1977. Eftir að Berg- þóra lést flutti Páll 2003 aftur heim í Hafnarfjörð að Skúla- skeiði 28 þar sem hann hafði hafið búskap. Þar bjó með hon- um Gunnar Ingi sonur hans og í íbúðinni fyrir neðan bjó Mar- grét María dóttir hans. Á Skúlaskeiðinu bjó hann þangað til hann fór á hjúkrunarheimilið Sólvang snemma á þessu ári. Útför Páls verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. október 2013, kl. 15. Ég kynntist tengdaföður mín- um Páli M. Jónssyni, 1970 þegar ég og Margrét María, dóttir hans, fluttum inn á heimili Páls og Bergþóru Guðmundsdóttur að Digranesvegi 97 í Kópavogi. Þau tóku mér strax sem einum úr fjöl- skyldunni og hafa alla tíð síðan staðið við bakið á mér. Meðal annars styrktu þau mig myndar- lega þegar ég fór til náms í Bandaríkjunum 1979. Fyrir þennan stuðning er ég þeim æv- inlega þakklátur. Páll var trésmiður, mikill hag- leiksmaður, viðurinn lék í hönd- unum á honum. Hann var óend- anlega vinnusamur og vinnan varð stór hluti af lífi hans. Eitt sinn þegar honum varð litið upp frá vinnu sinni og út um gluggann á verkstæðinu, tók hann þó eftir glæsilegri konu sem gekk þar hnarreist framjá. Þetta var Berg- þóra Guðmundsdóttir. Hann varð umsvifalaust ástfanginn og þau giftu sig og hófu búskap að Skúlaskeiði 28 Hafnarfirði. Þar í kjallaranum stofnaði hann sitt fyrsta trésmíðaverkstæði. Það stækkaði fljótt og var að lokum komið í stórt húsnæði að Álfhóls- vegi 11 Kópavogi. 1966 var Páll með tíu manns í vinnu þegar eldur kom upp um nótt í verkstæðinu og það brann til kaldra kola. Hjónin horfðu þar á lífsstarf sitt fuðra upp á augna- bliki. Þó þetta væri vissulega áfall fyrir Pál var engin uppgjöf í honum. Hann réðst strax í að reisa nýtt og veglegt verslunar- og skrifstofuhús á lóðinni. Að því loknu hóf Páll aftur rekstur tré- smíðaverkstæðis, nú við Auð- brekku í Kópavogi og rak hann það, þar til hann og Bergþóra fluttu á Selfoss 1977. Á Selfossi undu þau sér vel, hann kom sér upp smíðaaðstöðu í tvöföldum bíl- skúr og saman plöntuðu þau trjám í kringum húsið og rækt- uðu sinn garð. Þau keyptu sér einnig stórt sumarbústaðarland í Grímsnesi og héldu þar áfram skógrækt sinni. Þó Páll væri orðinn sjötugur og hefði látið af störfum vegna aldurs sem umsjónarmaður íþróttahússins á Selfossi var hann ekki hættur að byggja. Hann átti ennþá draum um að byggja eitt hús enn, stóran sum- arbústað á landi þeirra. Hann byrjaði hægt og rólega að safna að sér timbri, timbri sem aðrir voru hættir að nota. Fór til Reykjavíkur með kerru aftan í bílnum og kom heim með hana hlaðna brettum og öðru timbri. Fyrir utan bílskúrinn á Selfossi stækkaði timburstaflinn stöðugt. Timbur sem við fyrstu sýn virtist mjög óhrjálegt. Inn í skúrnum gerði Páll það sem hann gerði best, breytti grófu timbri í unna vöru; panil, glugga og hurðir. Þetta ferli tók nokkur ár og þó heilsa hans væri oft misjöfn hélt Páll samt alltaf áfram. Þegar hann byrjaði að grafa fyrir und- irstöðum bústaðarins kom í ljós að hann var alls ekki með í huga að byggja neinn smákofa. Hægt og bítandi reis bústaðurinn úr jörðu og í ljós kom að hann var tvær hæðir. Sex árum eftir að timbursöfnunin hófst var þarna komið hið glæsilegasta hús, sem fáir hefðu trúað að maður á þess- um aldri hefði getað reist. Þetta afrek Páls og öll hans ævi, sýnir afkomendum hans; að hann trúði því að sá sem hefur þekkingu, óbilandi vilja og trú á sjálfum sér getur gert næstum því hvað sem er. Enn og aftur Páll, takk fyrir mig. Ari Kristinsson. Páll M. Jónsson ✝ Tryggvi Gunn-laugsson fædd- ist í Vestmanna- eyjum 26. maí 1945. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 27. september 2013. Foreldrar Tryggva voru þau Gunnlaugur Sigur- sveinn Árnason, f. 27. júlí 1919, Mýr- um, A. Skaft., d. 17. apríl 1995 og Ingibjörg Fjóla Ingvars- dóttir verkakona frá Neðridal í Vestur Eyjafjallahreppi, f. 11. jan. 1918, d. 7. apríl 2010. Syst- ur Tryggva eru Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, f. 1950, og hálfsystir Ásta Gréta Björns- dóttir, f. 1957. Tryggvi var í sambúð með Aðalheiði Jónatansdóttur. Þau skildu. Hún átti eina dóttur. Aðal- heiður er látin. Frá 7 ára aldri ólst Tryggvi upp að Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði hjá Jónínu ömmu sinni og Árna afa sínum, Gísla föðurbróður og síðar föður sín- um. Ungur fór hann til sjós og var á nokkrum bátum og skipum þar til hann flutti til Reykjavík- ur sem ungur maður. Tryggvi starfaði við margt í Reykjavík t.d. við smíði tankanna niðri á Granda, keyrslu á trukkum og áfram var hann í sjómennsk- unni. Útför Tryggva fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 9. október 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Sem unglingur að austan kom ég oft til Reykjavíkur og gisti þá hjá föðurbróður mínum, Bjarna Gunnarssyni. Bjarni var ættræk- inn maður og einn daginn fór hann með mig til að leita að frænda okkar Tryggva sem þá var kominn með annan fótinn á götuna og eftir það fórum við alltaf á fund Tryggva þegar ég kom til Reykjavíkur. Bjarni hafði nefnilega séð út að einhver yrði að taka við sambandinu við Tryggva eftir hans dag og fór það svo að ég fékk Tryggva í arf frá þessum föðurbróður mínum. Fór vel á með okkur og árin sem hann var á útigangi þá vissi hann alltaf hvar ég var að spila og mætti hann þar oft og iðulega á hjólinu til að spila með á munn- hörpuna og þiggja smá veitingar. Alltaf vissum við hvað hinn var að gera en það var ekki fyrr en síðustu árin sem við urðum nánir vinir. 17. júní árið 2000 hætti Tryggvi drykkju og skalf þá jörð eins og hann sagði. Bjó hann sér nýtt líf sem best hann kunni inn- an AA-samtakanna og átti þar sín bestu ár. Eignaðist ómetan- lega vini sem áttu stórt pláss í hjarta hans. Tryggvi var nægju- samur og vildi ekki vera byrði á nokkrum manni en ef hann þurfti á hjálp að halda þá valdi hann sjálfur þá er hann treysti til þeirra hluta. Ég var einn af þeim heppnu sem fengu að hjálpa og að vera til staðar fyrir hann. Kallaði Tryggvi fram það besta í mér og fyrir það verð ég ævi- langt þakklátur. Þegar hann veiktist skráði hann mig sem nánasta aðstandanda og hef ég reynt að standa þá vakt sem best ég kunni. Höfum við frændur átt margar ómetanlegar stundir saman og margar sögur hefur hann sagt mér af harðri ævi, samferðamönnum og hugðarefn- um. Síðustu árin mætti hann veikindum sínum af æðruleysi þó hann stundum minntist af- sakandi á að hann væri með klof- ið hné og hálflamaður vinstra megin. Oft gekk mér erfiðlega að passa upp á að hann ætti fyrir leigu, mat og sjúkraþjálfun því hann gaf allt sem hann átti sem peningagjöf eða þá að hann keypti eitthvað til að gefa. Tryggva þótti gott að koma í mat til okkar Sigrúnar minnar og var þá eldaður reyktur fiskur sem honum þótti lostæti eða saltkjöt og baunir. Síðustu árin bjó Tryggvi á dvalarheimilinu í Lönguhlíð og var þar búið sér- lega vel að honum og mætti hann þar mikilli góðmennsku og skiln- ingi. Þakka ég starfsfólkinu af öllu hjarta fyrir góðan tíma í lífi Tryggva. Ég man svo vel þegar hann hringdi í mig til að segja mér að það væri baðdagur og hann hefði bara sest í lyftustól, verið slakað niður í vatn, honum þvegið og sagðist hann vera eins og nýhreinsaður hundur. Alsæll. Þegar veikindin fóru að þyngjast þá varð æðruleysið enn meira áberandi. Ef hann þurfti hjálp þá hringdi hann og þegar komin var niðurstaða þá kvaddi hann með „spáum í því“. Oft hringdi hann bara til að segja að hann hefði átt góðan dag. Síð- ustu daga sína var Tryggvi á krabbameinsdeild Landspítal- ans E11. Þar átti hann hug og hjörtu alls starfsfólks og þvílíkt starfsfólk. Endalaus þolinmæði, góðmennska, kærleikur og vin- semd og atvinnumanneskjur fram í fingurgóma. Tryggvi lést í faðmi vina og ættingja, sáttur eftir góð edrú ár. Ég sakna þín, elsku vin. Bjarni Tryggvason. Ég kynntist Hring, eins og hann var alltaf kallaður, seinni hluta ársins 1984 en hann og sameiginlegur vinur okkar voru þá drykkjufélagar. Örlítið var ég tortryggin gagnvart honum í fyrstu en sú tortryggni var fljót að hverfa því Tryggvi var gæða- blóð og hinn vænsti maður. Hálfu ári síðar er ég farin að vinna á Kaffivagninum úti á Granda og sá þá Tryggva iðu- lega vera að sniglast þar í kring- um bátana. Stundum kallaði ég á hann inn og gaf honum eitthvert lítilræði að borða og alltaf var hann jafn þakklátur fyrir. Það er sennilega um þetta leyti, eða ör- litlu síðar, sem gamall timbur- bátur sem stóð úti á Grandanum er orðinn hans helsta húsaskjól. Einhverju sinni hitti ég hann þegar hann var á gangi í bænum og þá spurði hann mig hvort mig vantaði útigrill. Já, svaraði ég og því næst spurði hann mig hvar ég ætti heima. Ég laug því til að ég byggi á Álfhólsvegi 32 í Kópa- voginum en þar var á þeim tíma starfrækt áfangaheimili fyrir þá sem voru að stíga uppúr áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Það skipti engum togum að skömmu síðar leggur hann það á sig að labba alla leiðina frá miðbænum upp í Kópavog og birtist þar með úti- grillið meðferðis. Hann fékk góðar viðtökur á Álfhólsvegin- um, honum var gefið að borða, búið um rúm handa honum og honum boðin hvíld. Hann dvaldi á áfangaheimilinu um þó nokk- urn tíma eða allt þar til Bakkus og flökkulífið sem honum fylgdi hreif hann til sín á nýjan leik. En svo kom að því að einn þekktasti og litríkasti útigangsmaður landsins náði varanlegri fót- festu. Og maður fór að rekast á hann í bænum þar sem hann var á leiðinni á fundi. Það var mikið gleðiefni að fylgjast með því hvernig hann náði að byggja sér upp gott líf hin síðari ár. Í stað þess að gefa upp öndina einn og yfirgefinn einhvers staðar úti á vergangi yfirgaf Tryggvi jarð- vist sína umvafinn vinum sem sýndu honum væntumþykju á allan máta. Þetta var einstaklega falleg sál. Ég vildi óska þess að við hin, sem höfum lifað svo miklu þægi- legra lífi á svo margan máta, hefðum þessa sömu fegurð til að bera. Ég veit að Tryggvi er nú kominn á stað þar sem hvorki fordómar né fyrirlitning finnast. Ég veit að okkar himneski Faðir og Frelsari okkar hafa svo sann- arlega tekið fagnandi á móti hon- um. Ég vil enda þessi minningar- orð með tilvitnunum í texta eftir Halldór Fannar Ellertsson: Það gekk hér framhjá maður með slitið bogið bak. Hann virtist vera ölvaður, eitthvert óláns úrhrak. Hann var í rifnum frakka og reikul voru hans skref með húfu ræksnið skakka og ill-þolandi þef. Við köllum hann róna og útigangsdýr. En skyldi nokkurn gruna hvað undir þessu býr. Við fyllumst vandlætingu á gjörðum þessa manns. Með fullri óvirðingu dæmum fortíð hans. Hann átti eitt sinn hlutverk hann átti fagurt skeið. En vínlöngunin var of sterk, hann var dæmdur róni um leið. En ef að þú vilt hjálpa þessum manni að snúa við, þá mun Guð þér launa fyrir góðverkið. Hvíl þú í friði, Tryggvi minn. Blessuð sé minning þín. Þórlaug (Þollý) Rósmundsdóttir. Kær vinur minn, hann Tryggvi Gunnlaugsson, er dáinn. Ég sakna hans, hann var partur í mínu daglega lífi, og gerði það auðugra. Okkar kynni voru ekki löng en þau voru góð, hittumst á fundum hjá samtökum þar sem við vor- um báðir félagar. Það sem tengdi okkur var brennandi áhugi á reiðhjólum og síðar, eftir að kynni okkar urðu nánari, að við hefðum það eins gott og lífið bauð upp á og líka það sem hann gerði betur flestum öðrum og fór þá ekkert í manngreinarálit – að líða bara vel og hafa nægilegt af öllu því veraldlegu og andlegu sem til þess þarf, að eiga gott líf. Hjólið hans sem hann seldi mér og gaf varð sífellt smá bit- bein milli okkar en þá komumst við að samkomulagi og báðir ánægðir. Hann vildi gefa það, ég vildi borga. Svona var hann hispurslaust góðmenni út í gegn. Sárast þykir mér að eiga ekki lengur þessi næstum daglegu samtöl okkar þar sem ég sagði honum frá síð- ustu svaðilförum mínum á hjól- unum okkar. Hann svaraði mér alltaf eins. „Þú ert agalegur. Verður að fara varlega. Ertu með hjálm?“ Farðu í friði, kæri vinur. Eiríkur Einarsson. Tryggvi Gunnlaugsson Okkar ástkæri Reynar er fall- inn frá. Þó vitað sé að kallið geti komið hjá öldruðum manni þá var það samt óvænt, eiginlega ótímabært. Reynar var lélegur til heilsunnar síðastliðin ár en alltaf gott að koma til hans. Hann hélt þeim eiginleikum til hinstu stundar að vera jákvæð- ur, uppbyggilegur og glettinn. Reynar var fæddur á Snæfells- nesi og á tímabili nágranni föður míns á Hellissandi er báðir voru ungir að árum. Á þessum tíma Reynar Hannesson ✝ Reynar Hann-esson fæddist á Vaðstakksheiði í Neshreppi utan Ennis 26. febrúar 1922. Hann lést á Hjúkrunarheimil- inu Sóltúni 19. sept- ember 2013. Útför Reynars fór fram frá Nes- kirkju 26. sept- ember 2013. sóttu menn ekki söngvara né hljóð- færaleikara langt að. Reynar átti góða söngrödd og rifjaði upp með trega og stolti þeg- ar hann söng ein- söng við útför frænda síns er lést ungur. Söngröddin hans fagra veitti okkur fjölskyldunni gleði. Uppáhaldið okkar var Næturljóð Chopins, það krefst góðs raddsviðs og fallegrar túlk- unar og þetta varð einmitt svo fallegt í hans meðförum. Fleiri uppáhaldslög áttum við með Reynari, svosem Hvar ertu vina sem varst mér svo kær. Reynar og Sigga bjuggu sér hlýlegt skjól í Skorradal og þar var notalegt. Honum féll ekki verk úr hendi og fann sér sífellt eitt- hvað að dytta að í bústaðnum. Við fjölskyldan höfum átt þar ómældar ánægjustundir. Á heimili þeirra bjó ég tvö ár á menntaskólaárunum. Þá var Elli í Samvinnuskólanum á Bifröst en þeim þótti sjálfsagt að bjóða mér að búa hjá sér á meðan og mat ég það mikils. Reynar og Sigga fóru á eftirlaun um það leyti sem börnin okkar voru í leikskóla og að byrja skóla- göngu. Þau voru boðin og búin að gæta þeirra á starfsdögum skóla. Og börnin voru sæl með að fara til afa og ömmu á Haga- mel. Þar fengu þau góðan og hollan mat, hlustuðu á gamla og góða tónlist, teiknuðu, lituðu, spiluðu og spjölluðu margt. Starfsævi sína átti Reynar framan af hjá Landleiðum og síðan hjá Olíufélaginu Esso. Þar gegndi hann ábyrgðarstöðu í áratugi sem yfirmaður starf- seminnar á Gelgjutanga. Starfið krafðist yfirsýnar margra verk- þátta og starfsmannahalds. Þar var verkstæði fyrir bílaflotann, birgðastöð og samráð við af- greiðslustaði út um landið. Mín tilfinning var sú að Reynar leysti þetta vel af hendi og væri farsæll í starfi. Eitt sinn á menntaskólaárunum fór ég í eft- irlitsferð með Reynari á Snæ- fellsnesið. Þessi ferð er ógleym- anleg, hann þuldi upp bæi og frásagnir af fólki alla leiðina, dreif mig í kaffi á viðkomustöð- unum og svo var hann góður bíl- stjóri – og fór hratt yfir. Ég segi hér ekkert um hvar bensínmæl- irinn lá mestan hluta ferðarinn- ar. Synirnir störfuðu um lengri og skemmri tíma hjá Esso og margt snerist því um fyrirtækið. Börnin okkar Ella spurðu leik- félagana að því framan af með hvaða olíufélagi þeir héldu, það stóð þeim nær en að spyrja um íþróttafélag. Á efri árum gætti hann mark- visst að heilsunni, fór í göngu- túra og félagsstarf, skar út, æfði sig á harmonikkuna og fylgdist með því sem um var að vera hjá fjölskyldunni. Á hjúkrunarheim- ilinu nutu eðlisþættir hans sín og hann talaði fallega og af virð- ingu um aðra íbúa og starfsfólk. Ég kveð kæran tengdaföður minn til áratuga og minnist hans og Sigríðar með hlýju og sökn- uði. Steinunn K. Jónsdóttir. Meira: mbl.is/minningar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.