Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 30

Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 ✝ Laufey SvalaKortsdóttir fæddist í Landa- koti, Sandgerði, 20. nóvember 1920. Hún lést á Garð- vangi í Garði 2. september 2013. Foreldrar henn- ar voru Guðný Gísladóttir frá Varmá í Mosfells- sókn, f. 14. október 1884, d. 23. janúar 1972, og Kort Elísson frá Ysta-Skála, Eyjafjallahreppi, f. 8. ágúst 1883, d. 8. ágúst 1944. Laufey Svala átti einn albróð- ur, Axel Svan Kortsson, f. 7. desember 1917, d. 17. júlí 2007. Þá átti hún tvo hálfbræður, Að- alstein Ingimundarson, f. 20. sept. 1907, d. 21. desember 2001, og Óskar Kortsson, f. 2. október 1907, d. 11. nóvember 2001. Hinn 30. nóvember 1942 eignaðist Laufey Svala soninn John Eral Kort Hill með Banda- ríkjamanni, John Paul Hill. John Earl Kort Hill er kvæntur Þórunni Kristínu Guðmunds- Árið 1943 fluttist hún til Sand- gerðis, en þá höfðu foreldrar hennar flutt þangað. Bjuggu þau þá í Sigtúni í Sandgerði. Vann hún við fiskverkun í Sand- gerði og einnig fór hún í síld- arsöltun til Siglufjarðar. Þá var hún ráðskona hjá Garði hf. í Sandgerði. Árið 1945 flutti hún ásamt bróður sínum og móður í húsið Akur í Sandgerði, en faðir hennar hafði látist árið áður. Fljótlega eftir það fór Laufey Svala að vinna verslunarstörf, fyrst í Reykjavík og síðan í verslun Nonna og Bubba í Sand- gerði. Síðar fór hún að vinna í verslun kaupfélagsins í Sand- gerði og upp frá því var hún ávallt kölluð „Svala í kaupfélag- inu“. Hún vann þar í yfir 30 ár, eða þar til hún fór á eftirlaun. Laufey Svala var um árabil í kirkjukór Hvalsneskirkju og einnig var hún í leikfélaginu í Sandgerði. Eftir að móðir hennar dó bjó hún áfram á Akri með Axel bróður sínum þar til hann fór á sjúkrahús árið 2005. Fljótlega eftir það flutti hún til Innri- Njarðvíkur, en sonur hennar og sonardætur voru öll flutt þang- að. Í janúar 2013 flutti hún á dvalarheimilið Garðvang í Garði. Útför Laufeyjar Svölu fór fram í kyrrþey 13. september 2013. dóttur frá Vatns- leysuströnd, f. 8. maí 1947. Þau eiga þrjár dætur, Guð- nýju Hafdísi Hill, f. 15. febr. 1966. Hún á tvö börn og tvö barnabörn. Sig- rúnu Erlu Hill, f. 13. ágúst 1967. Hún á fjögur börn og tvö barnabörn. Laufeyju Svölu Hill, f. 4. des. 1979. Hún á fimm börn. Fyrir átti John son, Jón- svein Joensen, búsettur í Fær- eyjum. Hann á þrjú börn. Alls eru afkomendur Laufeyjar Svölu 23. Laufey Svala flutti tveggja ára gömul að Melabergi í Hvalsneshverfi ásamt for- eldrum sínum, bróðurnum Axel og föðurömmu sinni. Á Mela- bergi ólst hún upp og gekk í barnaskólann í Hvalsnesi. Hún fermdist í Hvalsneskirkju. Átján ára gömul fór hún í vist til Reykjavíkur. Einnig vann hún ýmis störf í Reykjavík í nokkur ár, m.a. á Hótel Vík. Þá vann hún einnig við verslunarstörf. Elsku besta Svala amma okk- ar, þegar kallið kom vorum við systur staddar erlendis. Þetta voru erfiðar fréttir fyrir okkur þó svo að við vissum þegar við fórum að þetta gæti gerst, þar sem þér hafði hrakað mikið, enda orðin hátt í 93 ára gömul. Það var bara svo erfitt að sleppa þér og til- hugsunin um að hitta þig ekki aft- ur svo óraunveruleg þar sem þú hefur alltaf verið svo stór partur af okkar lífi. Okkur verður hugsað til æsk- unnar, þá vorum við eins og heimalningar hjá þér, nánast daglega var komið við hjá ömmu til að gæða sér á jólaköku, grjónagraut eða fá kandísmola og alltaf gafstu þér tíma til að spjalla, það var ekkert sem ekki var hægt að ræða við ömmu um, því þú varst ótrúlega víðsýn, rétt- sýn og fordómalaus, aldursmun- urinn hvarf í þinni návist. Þú tal- aðir alltaf vel um alla og máttir ekkert aumt sjá, í seinni tíð voru ófáar stundirnar sem við spjöll- uðum og hlógum yfir kaffi og Bai- leys, þú komst alltaf einstaklega skemmtilega að orði og gast látið ómerkilegustu viðburði hljóma skemmtilega og spennandi. Þú tókst ástfóstri við Spán og fórst þangað lengi vel á hverju sumri og alltaf var mikill spenn- ingur þegar amma kom frá Spáni með fullar ferðatöskur af glaðn- ingi handa okkur systrum og engu líkara en jólin væru komin, svo sagðir þú okkur frá ævintýr- unum sem þú lentir í þar. Heilsuhraust varst þú alla tíð og má það án efa þakka nægju- semi, jafnaðargeði og léttri lund. Takk, elsku amma, fyrir allt sem þú gafst okkur, við munum sakna þín sárt en um leið er okk- ur þakklæti í huga fyrir hversu lengi við fengum um njóta þinnar nærveru. Við vitum að þú ert komin heim, umvafin vinum, ætt- ingjum og æðri mætti sem þú trúðir svo staðfastlega á alla tíð. Þín barnabörn, Hafdís og Sigrún Hill. Elsku amma mín, nú ertu kom- in á góðan stað og veit ég að vel var tekið á móti þér. Þú varst svo sannarlega búin að skila þínu ævi- starfi enda að verða 93 ára og bjóst og sást um þig sjálf allan tímann fyrir utan þessa átta mán- uði áður en þú kvaddir og fékk ég svo sannalega að njóta góðs af því. Þú varst alltaf kölluð Svala í kaupfélaginu og var ég þá kölluð Svala litla. Allir vissu hver Svala í kaupfélaginu var og var ein ljós- móðir sem ég hitti þegar ég gekk með yngsta barn mitt sem talaði um að hún hefði búið í Sandgerði sem krakki og hún mundi sko eft- ir Svölu í kaupfélaginu því hún var svo góð kona, enda var hún amma mín með hjarta úr gulli. Það var alltaf svo gaman að fá að gista hjá ömmu því hún sagði manni endalaust af sögum og var ég þannig barn sem lifði fyrir sögur og ævintýri, en skemmti- legastar fannst mér sögurnar af ykkur Svan á Melabergi. Sem krakki var ég mjög myrk- fælin en aldrei þegar ég var að fara til ömmu, þá valhoppaði ég yfir Bensatúnið vitandi að amma var í eldhúsglugganum að fylgj- ast með mér. Eftir skóla var svo oftast tekinn krókur á heimleið- inni og komið við hjá ömmu og Svan og fékk ég makkarónugraut og eða ömmukleinur, það klikkaði aldrei. Við sátum stundum langa stund og töluðum um daginn og veginn, alltaf var gott að tala við ömmu og leita ráða. Þú varst allt- af til staðar fyrir alla og alltaf hægt að leita til þín. Þú vast mikill húmoristi og fannst okkur það mjög skondið þegar hringt var í þig og þér boð- ið í partí en ætlunin var að hringja í hina Laufeyju Svölu. Þú tókst bara vel í þetta en sagðist nú samt koma boðunum til réttr- ar manneskju, við hlógum mikið að þessu þótt öðrum hafi ekki fundist þetta eins fyndið. Þú varst mikilvægur partur í minni bernsku og fékk ég gott veganesti frá þér út í lífið. Þegar Svan dó gat ég ekki hugsað mér að þú yrðir ein svo ég kom inn á þig páfagauki sem þér þótti voða vænt um og stytti hann þér stundir og svo seinna fékk ég handa þér kisuna þína sem þú þurftir reyndar að hafa svolítið fyrir til að byrja með en varð svo litla dekurrófan þín. Já, ég er svo heppin að eiga endalaust mikið af minningum um þig, elsku amma mín, og ætla ég að kveðja þig með þessu fal- lega ljóði: Fósturlandsins Freyja, fagra vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís. Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár. Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár. (Matth. Joch.) Laufey Svala Hill. Laufey Svala Kortsdóttir Það er mér nokkuð þungt að setjast niður og skrifa minning- arorð um Erling Sturlu Einars- son, hann var ekki bara góður vinnufélagi heldur góður félagi sem stóð allaf á sínu, sama hvað aðrir sögðu. Einhvern veginn hugsaði maður aldrei um dauð- ann og Erling í sömu andrá. Það var í kringum 1982 að ég sá að reffilegur karl gekk inn portið á Höfðabakka 9, hann var mættur til vinnu við að stand- setja bíla og fleira, já og miklu fleira en það, þá hjá véladeild SÍS. Upp frá því unnum við Er- lingur saman meira og minna til ársins 2004. Fyrst hjá Véladeild- inni og öllum þeim bílafyrirtækj- um sem voru undir SÍS-merkinu og síðan hjá Ingvari Helgasyni eða Bílheimum eftir að við flutt- um okkur niður á Sævarhöfðann. Það má rifja upp endalausar sögur og setningar sem Erlingur sagði, hvað þá ef maður hefði geymt allar vísurnar sem hann setti saman nánast eftir pöntun. Erlingur var einn af bestu Erlingur Sturla Einarsson ✝ ErlingurSturla Einars- son fæddist í Reykjavík 4. októ- ber 1938. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 23. september 2013. Útför Erlings fór fram frá Guðríðar- kirkju 27. sept- ember 2013. vinnufélögum sem hægt er að hugsa sér, hann rauk allt- af af stað ef eitt- hvað vantaði, ann- aðhvort fyrir verkstæðið eða fyr- ir söluna, engin vandamál. Stundum þurfti hann að segja nokkur vel valin orð fyrst og svo var rokið af stað. Hann var ekki allra en náði mjög vel til strákanna á verkstæðunum sem hann vann með og hélt góðu sambandi við þá. „Það á að byrja vinnu klukkan átta en ekki mæta þá!“ Svo var skellt hurðum og brosandi lét hann þá heyra það, strákana niðri á Sævarhöfða. „Þetta er til að kenna þeim,“ sagði hann, alltaf stutt í húm- orinn. Eftir að við hættum að vinna saman hittumst við og spjölluð- um um hagi okkar beggja, hann var fræðimaður mikill og kunni söguna utan að, bæði sögu landsins, flugsöguna og bílasög- una. Okkar bestu tímar voru þegar við fórum saman á bílasýning- arnar í Frankfurt, sem við gerð- um reglulega til fjölda ára. Þetta eru mér ógleymanlegar ferðir. „Gamli“, takk fyrir ferðalagið sem við höfum átt saman síðast- liðna áratugi. Guð veri með þér og blessi að- standendur þína. Jóhann Berg. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNA KEMP, lést föstudaginn 4. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 14. október kl. 13.00. Jarðsett verður á Akureyri. Elísabet Kemp, Haraldur Sigurðsson, Þórey S. Guðmundsdóttir, Kristján H. Ingólfsson, Ragna Kemp, Sævar Vigfússon, Guðmundur Óli Guðmundsson, Guðbjörg Antonsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA JAKOBÍNA EIRÍKSDÓTTIR frá Dröngum, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni laugardagsins 5. október. Útförin verður auglýst síðar. Þórunn Káradóttir Hvasshovd, Stein Hvasshovd, Aðalsteinn F. Kárason, Bergþór N. Kárason, Guðríður Jónsdóttir, Berglind A. Káradóttir, Sigurður H. Árnason, Ragnheiður S. Káradóttir, Pálmi Þ. Ívarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, BJARNEY STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR, Austurvegi 5, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, sunnudaginn 6. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðmundur S. Haraldsson, Jóhannes Ívar Guðmundsson, Haraldur Guðmundsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Ómar H. Egilsson, Heiðar Þór Guðmundsson, Anna Sigrún Ásgeirsdóttir, Kári Guðmundsson, Alma S. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku pabbi minn, tengdapabbi, afi og bróðir, VILHELM JÓNATAN GUÐMUNDSSON, Villi frá Karlsá, tónlistarmaður, Nýbýlavegi 40, Kópavogi, lést á heimili sínu sunnudaginn 6. október. Íris Diljá Vilhelmsdóttir, Birgir Halldórsson, Indiana Birgisdóttir, Lúkas Birgisson, Jón M. Guðmundsson og fjölskylda, Guðrún H. Guðmundsdóttir, Viggo Block, Gestur Guðmundsson og fjölskylda, Snjólaug Guðmundsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og fjölskylda. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN JÓHANNESDÓTTIR, Hjarðarholti 8, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 6. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 11. október kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Sjúkrahús Akraness. Jóhannes R. Hreggviðsson, Ragnhildur Bjarnadóttir, Klara Hreggviðsdóttir, Guðjón Kjartansson, Haraldur B. Hreggviðsson, Ragnhildur Edda Ottósdóttir, Karl Þór Hreggviðsson, Íris Böðvarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, FANNEY LEÓSDÓTTIR, lést á líknardeild Lansdspítalans, mánudaginn 7. október. Már Karlsson, Anna Lára Másdóttir, Birna Björg Másdóttir, Sigmar Jónsson, Karl Kári Másson, Íris Rut Agnarsdóttir, Fanney, Bjarki Már, Hildur Hrönn, Agnar Már og Fannar Davíð. ✝ Elskulegur bróðir okkar og frændi, GUÐSTEINN PÁLSSON frá Fit, andaðist á Kirkjuhvoli föstudaginn 4. október. Jarðarförin fer fram frá Stóra-Dalskirkju laugardaginn 12. október kl. 11.00. Systkinin og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ARNÞRÚÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Addý sjúkraliði, Strikinu 8, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 11. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á söfnun vegna línuhraðals. Banki nr. 513-26-22245, kt. 640394-4479. Arna Valdís Kristjánsdóttir, Vilberg K. Kjartansson, Stella Kristjánsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Jóhanna Kristín Gísladóttir, Jana Björk Ingadóttir, barnabörn og systkini.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.