Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 32

Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Sitjum hér – bara svolítið lengur Saman við tvö – bara svolítið lengur. Það er svo huggulegt hér að hlusta á plötur einn með þér. Ég veit ég ætt’að fara heim en ekkert haggar okkur tveim bara – eitt lag enn Já sitjum hér – bara svolítið lengur Saman við tvö – bara eitt lag enn Ó – má ég vera hér – bara svolítið lengur Sæll í faðmi þér – bara svolitla stund Hlustum lögin okkar á Unaðsstund í sælli þrá Ég átt’að vera haldinn heim en ekkert haggar okkur tveim bara – einn koss enn Já sitjum hér – bara svolítið lengur Saman við tvö – bara svolítið lengur Elsku pabbi, ég kveð þig með laginu sem þú söngst oft fyrir mig og spilaðir á gítarinn. Upp í hugann koma ótal myndir af þér með gítar í hendi. Tónlist, íþrótt- ir og fréttir lýsa þér vel. Góð sál varstu og engum vildir þú illt. Aldrei man ég eftir að hafa heyrt þig kvarta þótt spilin sem þú hafðir á hendi væru ekki góð. Veikindin tóku sinn toll og núna ertu farinn. Erfitt er að sjá þig ekki aftur en ég hugga mig við að núna líður þér betur. Elsku pabbi, takk fyrir allar góðu stundirnar. Sjáumst seinna. Þín dóttir, Sigurlaug Maren. Elsku pabbi minn. Ég vissi að við ættum takmarkaðan tíma eft- ir með þér en ég var ekki alveg tilbúin að missa þig strax. Ég man þegar þú sagðir eitt sinn við mig að það væri betra að hafa átt og misst en að hafa aldrei átt. Þegar ég hugsa um þig kemur bara eitt orð upp í hugann og það Guðmundur Helgi Pétursson ✝ GuðmundurHelgi Péturs- son fæddist í Garðabæ 6. janúar 1954. Hann lést á heimili sínu 15. september 2013. Guðmundur var jarðsunginn frá Garðakirkju 27. september 2013. er góður. Þú varst svo góð sál, for- dómalaus og vildir engum illt nema kannski þeim sem komu illa fram við dætur þínar. Þú varst duglegur að hvetja mann áfram og alltaf að segja manni hvað þér fyndist mikið til manns koma. Það lýsir þér vel að vinum okkar systkina, sem kynntust þér, þótti rosalega vænt um þig og fékk maður oft að heyra hvað maður ætti svalan pabba enda varstu alltaf svo ungur í anda og komst fram við alla sem jafn- ingja. Ég á eftir að sakna þín, elsku pabbi, ég var litla prins- essan þín og mikil pabbastelpa. En ég hugga mig við allar minn- ingarnar, öll lögin sem þú hlust- aðir á og að núna líður þér betur. Ég veit að við munum hittast aft- ur en þangað til verður þú hjá foreldrum þínum og öllum kis- unum okkar. Ég elska þig, pabbi minn. Ég vil þig, pabbi, kveðja, þótt brostin sé þín brá og bleikt og fölt sé ennið, er kossi’ þrýsti ég á. Ég veit ógerla enn þá, hve mikið ég hef misst, en mér er ljóst, að fölt er ennið, sem ég hefi kysst. Þótt lát þitt góði faðir, nú leggist þungt á mig þá lengst af finn ég huggun við minninguna’ um þig. Hún stendur mér svo skýr, og hún er svo helg og heit og hreinni’ bæði og ástríkari’ en nokkur maður veit. Ég vil hér ekki ljóða neitt lof eða hól um þig, en lengst af þessi hugsun mun fróa og gleðja mig. Og lengi mun þín röddin lifa’ í minni sál til leiðbeiningar för minni’ um veraldarál. – – – Og tár af mínum hrjóta hvörmum og heit þau falla niður kinn, því vafinn dauðans er nú örmum hann elsku – hjartans pabbi minn. (Kristján Albertsson) Sara Petra Guðmundsdóttir. ✝ Hjalti fæddist áÞuríðarstöðum í Fljótsdal 12. des- ember 1933. Hann lést á heimili sínu 19. september 2013. Foreldrar hans voru Soffía Ágústs- dóttir frá Lang- húsum í Fljótsdal og Jónas Þor- steinsson frá Bessa- stöðum í sömu sveit. Systkini Hjalta í aldursröð: Ágústa Vil- Guðríður, f. 24. mars 1943 og Soffía, f. 21. júní 1944. Hjalti var ókvæntur en átti tvö börn: Baldur, f. 13. júní 1964 og Ástu, f. 25. maí 1970, maður hennar er Ólafur Sigvaldason, þau eiga einn son, Sigvalda, f. 13. maí 1992. Hjalti naut ekki langrar skólagöngu, aðeins farskólans í sveitinni. Hann var vinnu- og verkamaður í Fljótsdal en flutti í Egilsstaði 1979 og vann eftir það lengst af hjá Brúnás á Egils- stöðum. Útför Hjalta fór fram frá Eg- ilsstaðakirkju 5. október 2013. Hann var jarðsettur í Valþjófs- staðakirkjugarði. helmína, f. 9. apríl 1927, d. 31. jan. 1999, María, f. 18. apríl 1929, Þórhild- ur Kristbjörg, f. 18. sept. 1930, Þor- steinn, f. 11. apríl 1932, d. 18. okt. 2009, Jón Þór, f. 5. maí 1935, Skúli, f. 21. júní 1936, Berg- ljót, f. 24. sept. 1937, d. 12. apríl 1999, Benedikt, f. 7. ágúst 1939, Ásgeir, f. 29. ágúst 1941, Unnur Við vorum nýlega lögð af stað með fjárreksturinn út norðurdal- inn, föstudaginn 20. september og er við komum út að landa- merkjum Egilsstaða og Þuríðar- staða hittum við pabba og það fyrsta sem hann sagði okkur var að Hjalti bróðir hans væri dáinn. Þegar okkur bárust þau tíðindi að Hjalti föðurbróðir okkar væri dáinn komu margar minningar upp í huga okkar bræðra, mikið um hlátur og oftar en ekki byrj- aði hláturinn með smá tilvitnun í þann í neðra. Í gegnum tíðina var Hjalti oft daglega inni á heimili okkar á Dynskógunum, ekki síst á ung- lingsárum okkar, þegar hann bjó um nokkurra ára skeið í næsta húsi og var í fæði hjá mömmu. Oft var hann þá fram eftir kvöldi og er okkur sérstaklega minnis- stætt þegar þeir bræður, Hjalti og pabbi, hrutu oftar en ekki báð- ir fyrir framan sjónvarpið í kjall- aranum heima á Dynskógunum. Hjalti var mjög gamansamur og mjög stutt í hláturinn hjá hon- um, hann hafði gaman af því að syngja og taka þátt í samræðum og glensi með fólki á öllum aldri. Ekki síður þeim er yngri voru, hann náði mjög vel til yngra fólks. Ein ferð er okkur bræðrum þó sérstaklega minnisstæð og fórum við báðir að hugsa um þessa ferð þegar minningarnar rifjuðust upp. Við fórum einu sinni sem oftar með Hjalta upp í Þuríðarstaði á öðrum degi jóla um miðjan átt- unda áratuginn. Við ferðuðumst á rauðum Datsun 1200, sem Hjalti átti lengi vel. Við fórum seint af stað og það var orðið dimmt og mjög hvasst. Norður- dalurinn var illfær vegna klaka- bólstra en þannig var dalurinn yfirleitt á þessum árstíma, oft þurfti að fara eftir krókaleiðum inn dalinn til að komast framhjá hættulegustu klakabólstrunum. Þó að það væri mjög hvasst var stjörnubjart og tunglskin. Kom- umst við á Datsun inn í Ytri- Glúmsstaði, þar var hann skilinn eftir og við löbbuðum af stað með vindinn í fangið. Þar sem við bræður vorum nú ekki háir í loft- inu, líklega 11 og 12 ára gamlir, þá þótti Hjalta vissara að leiða okkur inn eftir. Þegar við komum inn fyrir Fremri-Glúmsstaði tók- um við stefnuna niður að á og ákváðum að fara yfir Jöklu rétt fyrir neðan svokallaða kerlingu, við héldumst allir í hendur þegar við lögðum út á ísinn en fljótlega tvístruðumst við þar sem engin leið var að halda sér á fótunum á svellinu vegna hvassviðris, við bárumst töluvert niður eftir ánni og Hjalti kallaði á okkur bræður að leggjast niður til að stoppa okkur. Þá byrjuðum við allir að hlæja enda engin hætta á ferðum þar sem allt var lokað af ís og við vissum að við myndum einhvern veginn komast út úr þeim ógöng- um sem við vorum komnir í, það var mikið hlegið þegar við kom- um í Þuríðarstaði þarna um kvöldið. Við þökkum Hjalta samfylgd- ina í gegnum árin og eftir standa margar minningar um góðan og skemmtilegan frænda og vin. Blessuð sé minning þín. Jón Óli og Snorri Benediktssynir. Hjalti Jónasson Smáauglýsingar Bílar VW Passat highline. Árgerð 2005, ekinn 118 þús. km, bensín, 6 gírar. Verð 1.490.000. Rnr. 131976. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is Toyota Yaris Sol. Árgerð 2006, ekinn 65 þús. km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.390.000. Rnr. 107925. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is VW Golf variant comfortline 8v. Árgerð 2006, ekinn aðeins 89 þ. km, bensín, 5 gírar. Verð 990.000. áhvíl- andi lán kr. 700.000. Rnr. 105383. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is Volvo Xc90. Ekinn 21 þús. km, sjálfskiptur. 7 manna, einn með öllu. Einn eigandi frá upphafi. Eins og nýr. Verð 3.990.000. Rnr. 107396. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is Toyota Hilux double cab. Árgerð 1992, ekinn 170 þús. km, bensín, 5 gírar. Verð 499.000. Rnr. 105770. Einn eigandi. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is Skoda Octavia ambiente. Árgerð 2002, ekinn 193 þús. km, bensín, sjálfskiptur. Verð 480.000. Rnr. 106467. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is Toyota Yaris t-sport. Árgerð 2007, ekinn 79 þús. km, bensín, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr. 108226. Áhv. lán 1.190.000. 17" álfelgur, svartar rúður, spoiler o.fl. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is SKRÁÐU BÍLINN FRÍTT OG FÁÐU FRÍA AUGLÝSINGU! Söluhæsta netbílasala landsins. 25% afsláttur af sölugjöldum. Frí auglýsing í Morgunblaðið. www.netbilar.is, Hlíðasmára 2, sími 588 5300. Dodge Durango Limited 5,7 L Hemi. 5/2005, ekinn 143 þús km. 7 manna. Hlaðinn lúxusbúnaði. Einnig dráttarkrókur. Þjónustubók. Gott eintak. Verð: 1.990.000. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Gotti er 10 vikna gamall Shih Tzu strákur sem leitar að frábæru fram- tíðarheimili. Yndislegur og ljúfur, heilsufarsskoðaður og ættbókar- færður hjá HRFÍ. Foreldrar eru sýningameistarar, skapgóðir og heil- brigðir. Upplýsingar á Artelino.net og í síma 868 7448 (Anja). Húsgögn Barnahúsgögn Þið finnið okkur á Facebook undir Litla Trévinnustofan eða í síma 845-4096. Bílaþjónusta Nýkomin sending af fjarstýrðum bílum Tómstundahúsið, Bíldshöfða 18, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is Finnið okkur á facebook. Tómstundir Dýrahald ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, ARNÞRÚÐAR KARLSDÓTTUR handavinnukennara. Sigurveig Kristjánsdóttir, Ólafur Ágúst Ólafsson, Berglind Bragadóttir, Kristján Ólafsson, Ragna Eyjólfsdóttir, Ólafur Ágúst Ólafsson, Jacqueline Santos Silva, Sigrún Sandra Ólafsdóttir, Albert Björn Lúðvígsson, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Gylfi Arnbjörnsson, Hrefna Björk Karlsdóttir, Haukur Pétur Benediktsson, Kristján Friðrik Karlsson, Hulda Kristín Jónsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkar samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HAUKS S. BERGMANN skipstjóra, Vallarbraut 6, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki HSS fyrir frábæra hjúkrun þann tíma sem hann dvaldist þar. Þóra Jónsdóttir, Haukur Þór Bergmann, Aðalheiður Kristjánsdóttir, Sigurður Bergmann, Sólveig S. Guðmundsdóttir og barnabörn. ✝ Okkar hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og mikinn hlýhug vegna andláts okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, PÉTURS SIGURBJÖRNSSONAR, Garðaflöt 1, Garðabæ. Innilegt þakklæti viljum við færa heimahjúkrun Karitasar fyrir hlýja og góða umönnun í gegnum árin. Elín Halldóra Hafdal, Kristján Grétar Pétursson, Steinunn Erna Otterstedt, Pétur Sigurbjörn Pétursson, Berglind Ósk Kjartansdóttir, Rakel Björk Pétursdóttir, Marinó Jónsson, Heimir Þór Pétursson, Vilborg Drífa Gísladóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Jóhann Pálsson og afabörn. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.