Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Uppfærðu óskalistann, þú ert vaxin/n
upp úr því sem þú hélst að þig langaði í.
Nýttu þér kraftinn sem þú býrð yfir og byrj-
aðu að framkvæma.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki gefa foreldrum eða fjölskyldu-
meðlimum loforð sem þú getur ekki staðið
við. Kaup og sala, samningar, stuttar ferðir
og samræður við vini halda þér við efnið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú gætir hafa orðið fyrir von-
brigðum með nýja vinnu eða nýtt tækifæri
sem þú varst að öðlast. Láttu þér ekki bregða
við mótlæti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Afstaða himintungla ýtir hugsanlega
undir tilfinningasemi af þinni hálfu. Ef þú
þarft að fara í fýlu þá komdu þér þangað sem
þú ert ekki fyrir neinum. Þú efast um of um
getu þína.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þegar kemur að aga ertu ósigrandi. Nú
er komið að þér að leggja í púkk mannlegrar
þekkingar. Treystu á sannleikann frekar en
aðstæður.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þrá þín eftir því að ferðast og verða
einhvers vísari um heiminn er sterkari nú en
endranær. Einhver á heimilinu er í bardaga-
ham og rifrildisstuði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Forðastu allt sem tengist fjármálum og
fjárfestingum í dag. Vertu öðrum lýsandi for-
dæmi á þessum degi sem endranær. Þú
sættist við einhvern sem þú hefur átt í ill-
deilum við.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Slysahætta er fyrir hendi, svo þú
þarft að hafa hugann við verkefni sem þú
sinnir. Láttu þér hvergi bregða þó þú fáir ekki
allra óskir uppfylltar strax.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef eitthvað bjátar á milli ástvina
finnst þér alheimurinn hljóma falskt. Börnin
eru framtíðin, vertu góð fyrirmynd.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekkert að því að láta sig
dreyma. Veldu gæði umfram magn. Einhver
sendir þér tóninn, lokaðu eyrunum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú leggur þig yfirleitt fram um að
halda friðinn en í dag er ómögulegt að gera
öllum til hæfis. Forðastu að lána öðrum pen-
inga og að fá peninga að láni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur ekkert til þess að hafa sam-
viskubit yfir og átt að losa þig við sam-
viskubit í eitt skipti fyrir öll. Það er eitthvað
sem þig langar sjúklega mikið til að eignast.
Þórarinn Eldjárn semdi frá sérljóðabókina Grannmeti og
ávextir árið 2001, sem var með níu-
tíu og níu ljóðum og einum losara-
brag handa börnum og barnalegu
fólki. Bókin er eins og margar aðr-
ar úr smiðju Þórarins fagurlega
myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn.
Ekki ber á öðru en að upplagið hafi
selst upp og nýr farmur komið í
búðir ef marka má þennan brag á
fésbókarsíðu skáldsins:
Þegar haustskipin koma frá Kína
klárlega fögnum við þeim,
færandi prentgripi fína
ferska og ilmandi heim,
skáldskaparanda í ámum,
innihald sætt bæði og rammt.
Grannmeti og átvexti í gámum.
Gott að fá nýjan skammt.
Nokkuð hefur á daga kerlingar-
innar á Skólavörðuholtinu drifið
frá því síðast spurðist til hennar. Á
fésbókinni má sjá hana rúnta um á
rauðum blæjubíl með Kristbirni
Haraldssyni – vitaskuld á Skóla-
vörðuholtinu. Hún yrkir um uppá-
tækið:
Þá mun Laugavegskarlinn sér tylla á tá,
ég trúi‘ann hissa þagni,
er sér hann mig lokkandi líða hjá
í litfögrum glæsivagni.
Og hún bætir við:
Flott er ég og fögur enn,
fæstir eru hissa
á hve mikið aðrir menn
öfunda hann Krissa.
Hún klykkir út með:
Alltaf þegar upp mig skvera
ýmsir góla og rýta,
flestum körlum finnst ég vera
fögur á að líta.
Það fylgir sögunni að Kristbjörn,
sem mun vera bróðir Sigrúnar Har-
aldsdóttur, góðrar vinkonu kerling-
arinnar, hafi fengið þessa hvatn-
ingu frá kerlingunni áður en hann
tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu:
Láttu vindinn leika um kinn,
losa þrótt úr böndum
hlauptu eins og andskotinn
elti þig á röndum.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af haustskipum, kerling-
unni og rauðum blæjubíl
Í klípu
„ÉG ER ÓSAMMÁLA. GLÆPIRNIR SEM ÞÚ
SAKAR MIG UM ERU VISSULEGA GRÓFIR,
EN AÐEINS MJÖG VIÐKVÆMU FÓLKI
ÞÆTTU ÞEIR VIÐBJÓÐSLEGIR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BARA KAFFIBOLLA FYRIR MIG, TAKK.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... uppfull af óvæntum
uppákomum.
KLEINUHRINGIR
KETTIR SKIPTAST Í FRUM-
SKÓGARKETTI OG HÚSKETTI.
EITT SKILUR
ÞÁ AÐ.
KATTASAND-
UR MEÐ
ILMEFNUM.
SIÐLAUSU
FRUMSKÓGAR-
VILLINGAR!
LÍF VÍKINGA
ER EKKI TÓM
SÆLA!
REYNDAR ER ÞAÐ
UPPFULLT AF KVÖLUM,
BÆÐI ANDLEGUM OG
LÍKAMLEGUM!
HA? AND-
LEGIR OG
LÍKAMLEGIR
FISKAR?
KJÁNINN
ÞINN!
HVALIR ERU
EKKI FISKAR!
Nýfallinn snjór lá yfir öllu þegarVíkverji leit út um gluggann í
gærmorgun. Spáð hafði verið snjó-
komu en samt var Víkverja örlítið
brugðið, eins og sumarleysið gerði
tilkall til vetrarleysis. Víkverji fór
beint inn á mbl.is til að athuga hvort
ekki væri allt í uppnámi vegna ofan-
komunnar. Svo fór hann og skóf
snjóinn af rúðum sjálfrennireiðar
sinnar til þess að hann sæi til á leið-
inni í vinnuna, þótt hann hafi farið
hana svo oft að sjálfsagt gæti hann
ekið hana eftir minni. Á það verður
kannski reynt síðar. Víkverji átti von
á umferðarstöppu við hvert hring-
torg og gatnamót og hann myndi
sitja fastur til hádegis hið minnsta,
en aldrei þessu vant gekk umferðin
snurðulaust fyrir sig. Í útvarpinu
glumdu frásagnir af lokuðum brekk-
um og hálku hér og hálku þar. Vík-
verja leið eins og hann væri í öðrum
veruleika, en lýst var í útvarpinu, og
brunaði áfram.
x x x
Svo rann upp fyrir honum ljós.Maður á dekkjaverkstæði sagði
að allt væri brjálað að gera hjá sér
og klukkutíma bið fyrir þá, sem vildu
láta setja vetrardekkin undir bílinn
hjá sér. Þar var komin skýring á því
hvað umferðin gekk vel. Bílarnir,
sem venjulega stífla göturnar, sátu
allir í biðröð við dekkjaverkstæði.
x x x
Víkverji skilur ekki tímasetninguEvrópskrar kvikmyndahátíðar.
Honum finnst vissulega tilefni til að
koma á framfæri kvikmyndum, sem
eru frábrugðnar hinum hefðbundnu
matseðlum kvikmyndahúsanna, en
áttar sig ekki á að haldin skuli evr-
ópsk kvikmyndahátíð á sama tíma
og kvikmyndahátíð í Reykjavík,
RIFF. Athugasemd Víkverja kemur
til af því að hann á við sama vanda að
glíma og margir aðrir. Hann getur
aðeins verið á einum stað í einu.
Framboðið á RIFF er nógu fjöl-
breytt til að valda valkvíða, að ekki
sé bætt við annarri kvikmyndahátíð.
Aðstandendum evrópsku hátíðar-
innar hlýtur að hafa verið ljóst að
RIFF, sem nú fór fram í tíunda
skipti, stæði yfir á sama tíma og
kvikmyndaunnendum væri engin
greiði gerður með tímasetningunni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki
kominn til að tortíma mannslífum,
heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.)
Vandaðir og vottaðir ofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
10 - 50%
LAGERSALA Á THOR
MIÐSTÖÐVAROFNUM
Allt að
afsláttur á völdum ofnum
*ATH. Lagersalan gildir út mars 2013
Eura L Eura C