Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Dálítið feiminn en með einstaka
söngrödd steig Haukur Morthens
fram á sjónarsviðið á stríðsárunum
þegar hann söng m.a. með hljómsveit
Bjarna Böðvarssonar og fór með
henni í fyrstu hringferð hljómsveitar
um landið. Hann átti síðar eftir að
verða einn ástsælasti og þekktasti
dægurlagasöngvari þjóðarinnar. Það
er ekki á færi allra söngvara að feta í
fótspor Hauks og taka lög sem hann
gerði ógleymanleg. Helgi Björnsson,
sem fyrir löngu söng sig inn í hjörtu
þjóðarinnar, lét þó slag standa og
hélt tónleika fyrir þremur árum í
Salnum í Kópavogi með helstu lögum
Hauks. Skemmst er frá því að segja
að Helgi sló í gegn og fyllti Salinn í
átta skipti og komust færri að en
vildu til að upplifa Hauk Morthens í
útfærslu Helga Björnssonar.
Kom Þjóðverjunum á óvart
Leikurinn verður endurtekinn á
föstudaginn, 11. október, í Hörpu en
þá má búast við því að Helgi geri enn
betur því í þetta sinn hefur hann með
sér hina heimsfrægu þýsku hljóm-
sveit The Capital Dance Orchestra.
„Með þessari hljómsveit syngja og
spila tónlistarmenn eins og Nina
Hagen, Barbara Schöneberger og
Jochen Kowalski þegar þeim gefst
færi til,“ segir Helgi en það er saga
að segja frá því hvernig hann komst í
kynni við hljómsveitina. „Upphaflega
kynnist ég þeim þegar ég er að opna
leikhús í Berlín árið 2006 en hljóm-
sveitin endurspeglaði bæði bygg-
inguna sem við vorum í og andrúms-
loftið sem við sóttumst eftir. Hún var
því fengin til að spila við opnunina.
Þá stakk einn félagi minn upp á því
að ég myndi syngja eitt eða tvö lög
með hljómsveitinni. Ég gæti trúað
því að þeim hafi ekki þótt það neitt
sérstaklega spennandi að þurfa að
spila undir söng eins eigendanna en
allt kom fyrir ekki og þeim leist nógu
vel á sönginn til að biðja mig um að
syngja með sér inn á plötu.“
Ekkert varð úr því í fyrstu að
Helgi og The Capital Dance Orc-
hestra gerðu saman plötu enda tíma-
setningin ekki heppileg að mati
Helga á þeim tíma. „Gífurlega marg-
ir voru að gefa út standardaplötur á
þessum árum eins og Robbie Willi-
ams, Rod Stewart o.fl. þannig að ég
vildi einbeita mér að öðru,“ segir
Helgi.
Í þessari viku er þó komin í versl-
anir plata Helga og The Capital
Dance Orchestra með lögum Hauks
Morthens. „Við hljóðrituðum plötuna
í apríl í Berlín með þessum helstu
lögum sem Haukur gerði vinsæl. Það
verður bæði hægt að nálgast hana í
verslunum og eins á tónlistarveitum
á netinu.“
Gífurleg aukning hefur verið á því
undanfarin ár að tónlistarmenn gefi
tónlist sína einnig út á vínyl enda að
mati margra eitthvað persónulegra
við tónlistina beint af vínylnum.
„Haukur Morthens á auðvitað heima
á vínyl og þess vegna hef ég talað fyr-
ir því að gefa út einhver eintök á ví-
nyl.“
Sungið á íslensku í Berlín
Tónleikarnir sem fara fram í Eld-
borgarsal Hörpu á föstudagskvöldið
verða tvennir, þeir fyrri kl. 20 og þeir
seinni kl. 23. Helgi segir þá ekki að-
eins tileinkaða lögum Hauks heldur
tækifæri til að kynna þessa einstöku
hljómsveit fyrir Íslendingum. „Þetta
er hljómsveit sem ferðast um allan
heim og hefur spilað með fjölda
frægra tónlistarmanna. Þau eru
spennt að koma til Íslands og spila og
ég vona að Íslendingar taki þeim
fagnandi. Síðan koma fram þau Sig-
ríður Thorlacius, Bogomil Font og
Björgvin Halldórsson. Við einblínum
vissulega mest á lög Hauks en tökum
inn á milli önnur þekkt lög eins og
„Mack the Knife“ og „Buona Sera“
og síðan leikur hljómsveitin eitthvað
af sínu efni.“
Vikuna eftir tónleikana í Hörpu
mun Helgi syngja með hljómsveitinni
í Berlín en þar koma fram margir af
þekktari söngvurum Þýskalands.
„Ég spurði þau hvort ég ætti ekki
taka einhver þekkt, klassísk lög, eitt-
hvað sem allir þekkja. Þau tóku það
ekki í mál heldur vildu að ég syngi á
íslensku lögin hans Hauks. Það sýnir
vel á hvaða stall þau hafa sett lögin
hans og meta.“
Eins og gefur að skilja er það ekki
auðvelt verk að velja úr öllum lögum
Hauks fyrir tónleikana þó sum hver
séu þekktari en önnur. „Ég var búinn
að fara í gegnum þetta þegar ég valdi
rúmlega tuttugu lög fyrir þremur ár-
um þegar ég var með tónleikana í
Salnum. Hins vegar var það höf-
uðverkur að velja á milli og þurfa að
hafna lögum,“ segir Helgi og bendir
á að sumum lögum hafi hreinlega
ekki verið hægt að sleppa. „Þú getur
ekki gefið út plötu eða haldið tónleika
með lögum Hauks án þess að syngja
lög eins og „Til eru fræ“ en það er
eitt þekktasta lag Hauks, við texta
Davíðs Stefánssonar.“
Sveifla Helgi með The Capital Dance Orchestra sem leikið hefur með mörgum þekktum söngvurum í Þýskalandi.
Heimsklassa klassík
Helgi Björns kemur fram á tónleikum með þýsku stórhljómsveitinni The
Capital Dance Orchestra í Hörpu Lög Hauks Morthens uppistaða tónleikanna
Morgunblaðið/Sverrir
Raddfagur Haukur Morthens.
Duo Harpverk heldur tónleika í
dag kl. 17 á Kex Hosteli. Duo
Harpverk var stofnað árið 2007 af
hörpuleikaranum Katie Buckley
og slagverksleikaranum Frank
Aarnink með það að markmiði að
panta og flytja tónlist fyrir hörpu
og slagverk og hafa þau pantað
yfir 60 verk eftir tónskáld frá Ís-
landi, Danmörku, Englandi, Ástr-
alíu og Bandaríkjunum. Dúettinn
leggur áherslu á að panta og að
flytja tónlist ungra, íslenskra tón-
skálda og hefur m.a. leikið á
Myrkum Músíkdögum, Iceland
Airwaves, Kirkjulistahátíð og Ung
Nordisk Musik. Frekari upplýs-
ingar má finna á www.duoharp-
verk.com
Duo Harpverk
á Kex Hosteli
Dúettinn Katie Buckley og Frank Aarnink.
Tónleikar til-
einkaðir borgar-
skáldinu Tómasi
Guðmundssyni
verða haldnir í
kvöld í Hann-
esarholti, Grund-
arstíg 10 í
Reykjavík, og
eru þeir liður í
Lestrarhátíð
Bókmenntaborg-
arinnar Reykjavíkur. Á tónleik-
unum koma fram söngkonurnar
Margrét Hannesdóttir og Unda
Dóra Þorbjörnsdóttir með píanó-
leikaranum Sigurði Helga Odds-
syni. Þau munu flytja lög við ljóð
Tómasar og verður ágrip af ævi
hans fléttað inn í dagskrána auk
þess sem ljóð hans verða skoðuð.
Flutt verða lög eftir þekkt íslensk
tónskáld.
Tómasarkvöld
í Hannesarholti
Borgarskáld Tóm-
as Guðmundsson.
Bandaríska leikkonan og Óskars-
verðlaunahafinn Jennifer Lawr-
ence á í viðræðum um að fara með
hlutverk í kvikmynd sem byggð er
á sögunni um Agnesi og Friðrik,
síðasta fólkið sem tekið var af lífi
hér á landi, árið 1830. Handrit
myndarinnar er byggt á bók ástr-
alska rithöfundarins Hannah Kent,
Burial Rites, að því er segir í frétt á
vef dagblaðsins Guardian.
AFP
Agnes? Jennifer Lawrence er ein
eftirsóttasta leikkona Hollywood.
Fer Lawrence með
hlutverk Agnesar?
Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is
opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga
NÝJAR
VÖRUR
á stráka
og stelpu
r
Eitt 400 olíumálverka sem ítölsk
fjölskylda hefur geymt í banka-
hólfi í Sviss árum saman er að
mati sérfræðinga eftir Leonardo
da Vinci og sýnir konu að nafni
Isabella d’Este. Teikning da Vinc-
is frá árinu 1499, sem verkið virð-
ist gert eftir, hangir uppi í
Louvre-safninu.
Rannsóknir hafa verið gerðar á
striganum og litunum og er talið
víst að hér sé komið verk sem í
500 ár hefur verið talið glatað. Talið er að andlitið sé málað af meistar-
anum en frekari rannsóknir munu leiða í ljós hvort nemar da Vincis kunni
að hafa lagt eitthvað af mörkum til annarra hluta verksins.
Málverkið talið vera eftir da Vinci
Merkisfundur Til vinstri er teikning da
Vincis af d’Este. Til hægri er málverkið.