Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 40

Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Sjaldan hefur hlé á bíómyndkomið á jafnslæmum tímaog það gerði í myndinniPrisoners. Spennan var í hámarki þegar ljósin kviknuðu, en að sama skapi var sýningar- stjórum vorkunn, því að ekkert at- riði í myndinni er betur fallið en önnur til þess að gera hlé eftir. Prisoners er nefnilega það spenn- andi frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu að hvergi var dauð stund. Það hlýtur að teljast afrek í ljósi þess að myndin er rúmur tveir og hálfur klukkutími á lengd. Þegar myndinni svo lauk mátti sjá og heyra á áhorfendum að þeir voru nánast í losti, agndofa yfir því sem þeir höfðu orðið vitni að. Hér verður ekki farið út í sögu- þráð myndarinnar svo neinu nemi. Með því myndi ég gera lesendum mikinn óleik. Því minna sem áhorfandinn veit um söguþráðinn fyrir, því betra. Látið verður nægja að segja að aðalleikarar myndarinnar, þeir Jake Gyllenha- al og Hugh Jackman sýna báðir sínar allra bestu hliðar, sem og aðrir í myndinni. Paul Dano (Little Miss Sunshine) sýnir á sér nýja hlið sem einfeldningurinn Alex Jones. Raunar er nær hvergi snöggan blett að finna á myndinni, sem kallar fram samanburð við það besta sem meistari Hitchcock lét frá sér. Einnig koma í hugann myndir eins og Mystic River og Zodiac. Leikstjórnin er í föstum skorðum og þó að framvinda myndarinnar sé í hægari kant- inum sleppir hún aldrei tökum á áhorfandanum. Þáttur Jóhanns Jóhannssonar, tónskálds myndarinnar, hefur ver- ið dreginn sérstaklega fram í er- lendri gagnrýni um myndina. Og ekki að undra. Tónlistin á stóran þátt í því að skapa spennuna sem ríkir í myndinni frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Kæmi það alls ekki á óvart ef að verðlaunatil- nefningar biðu Jóhanns fyrir þátt sinn í myndinni. Prisoners er mynd sem spyr spurninga á borð við: Hversu langt myndir þú ganga þegar ver- öld þín er hrunin til grunna til að fullnægja réttlætinu og hversu viss þarftu að vera um sekt eða sakleysi áður en þú getur fellt dóm? Svörin sem hún veitir eru ófögur. Það breytir því ekki að hér er einfaldlega á ferðinni besta spennumynd ársins, mynd sem þarf mögulega að fara á tvisvar. Hversu langt myndir þú ganga? Spennandi Jake Gyllenhaal og Hugh Jackman í kvikmyndinni Prisoners sem gagnrýnandi telur bestu spennumynd ársins. Sambíóin Prisoners bbbbb Leikstjóri: Denis Villeneuve. Handrits- höfundur: Aaron Guzikowski. Leikarar: Hugh Jackman, Jake Gyllenhaal, Viola Davis, Terence Howard, Maria Bello, Melissa Leo, Paul Dano, Dylan Minnette, Zoe Borde og Erin Gerasimovich. Bandaríkin, 2013. 153 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Rapparinn Emmsjé Gauti heldur tónleika með rappsveitinni Úlfur Úlfur og hljómsveitinni Agent Fresco í salnum Kaldalóni í Hörpu, 18. október næstkomandi. Emmsjé Gauti mun flytja blöndu, gömul lög ásamt nýjum sem koma út á breiðskífunni Þey fyrir ára- mót. Úlfur Úlfur leikur einnig lög af plötu sem sveitin vinnur að þessa dagana. Rokkararnir í Agent Fresco verða tónlistar- stjórar og leika undir flutningi rapparanna þannig að lögin verða flest í nýjum útsetningum, tölu- vert frábrugðnum þeim sem þau voru í upphaflega. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Morgunblaðið/Styrmir Kári Blanda Rapparinn Emmsjé Gauti flytur lög sín við undirleik rokksveitar- innar Agent Fresco í Kaldalóni í Hörpu, 18. október næstkomandi. Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur og Agent Fresco Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Það skelfur nefnast endurminn- ingar Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings sem Skrudda gef- ur út fyrir jólin. Í bókinni rekur Ragnar æsku sína og uppvöxt, póli- tísk afskipti, einkum á 7. og 8. ára- tug síðustu aldar, og fjallar jafn- framt um líf sitt fram á þennan dag, einkum í ljósi samfélagsþróun- ar og stjórnmálaástands. Þú skrínlagða heimska nefnist heimildasaga eftir Þorstein Ant- onsson. Bókin byggist á skrifum Sævars Marinós Ciesielskis frá þeim tíma þegar hann sat í gæslu- varðhaldi og meðan á afplánun stóð á Litla-Hrauni. „Í þeim skrifum fjallar hann um ýmsa þætti í lífi sínu, allt frá æskuárum, en stærst- ur hluti bókarinnar lýsir aðdrag- anda svonefndra Guðmundar- og Geirfinnsmála og síðan gæslu- varðhaldvist hans. Þorsteinn vann bókina upp úr þessum fangels- ispappírum í samráði við Sævar á árunum upp úr 1990 samhliða ann- arri um málaferlin, sem út var gef- in um það leyti, en afráðið var, að sú persónulegri biði síns tíma,“ seg- ir m.a. í tilkynningu frá Skruddu. Þar kemur fram að Þorsteinn send- ir einnig frá sér aðra bók sem er afmælisritið Á jaðrinum. Ný bók frá Ólafi Hauki Skýjaglópur skrifar bréf eftir Ólaf Hauk Símonarson er þriðja bókin í trílógíu Ólafs um uppvaxt- arár sín í Vesturbænum og lands- hornaflakk á yngri árum. Einnig er væntanleg kiljuútgáfa bókarinnar Fuglalíf á Framnesvegi eftir Ólaf Hauk sem fyrst kom út árið 2009. Skáldaspegill – Tímar Lystræn- ingjans nefnist bók eftir Ólaf Orms- son. Þar er rakin útgáfusaga Lyst- ræningjans sem kom út um langt skeið á 8. og 9. áratug síðustu ald- ar. „Fjallað er um fjölda rithöfunda og aðra listamenn sem tengdust út- gáfunni. En bókin er jafnframt kostuleg lýsing á tíðarandanum í Reykjavík á síðustu tveimur ára- tugum aldarinnar,“ segir í tilkynn- ingu. Ferðaklúbburinn 4x4 30 ára nefnist bók eftir Jón G. Snæland sem væntanleg er í nóvember. „Hér er fjallað um sögu klúbbsins og ein- stakra deilda frá upphafi, sögu jeppa á Íslandi, landmælingar og slóðamál, skála klúbbsins, umhverf- is- og tæknimál og þannig má lengi telja. Í bókinni er urmull ljósmynda úr starfi klúbbsins auk ýmissa hag- nýtra upplýsinga fyrir jeppamenn.“ Landbúnaðarsaga Íslands eftir Árna Daníel Júlíusson og Jónas Jónsson nefnist rit í fjórum bindum þar sem saga landbúnaðar á Íslandi er rakin frá landnámi til okkar daga. „Fyrsta bindið rekur þróun landbúnaðar frá upphafi byggðar fram til 1800. Í öðru bindi er fjallað um bændasamfélagið á 19. og 20. öld og þær miklu breytingar sem orðið hafa á þessu tímabili. Þriðja og fjórða bindi fjalla um búgrein- arnar. Í þriðja bindi er sauð- fjárrækt, nautgriparækt og hrossa- rækt til umfjöllunar og í fjórða bindi er fjallað um aðrar greinar landbúnaðarins, jarðrækt, garð- rækt, skógrækt, fiskeldi og veiði í ám og vötnum, svína- og alifugla- rækt, og loks loðdýrarækt.“ Meira um Lísu í Undralandi Skrudda gefur einnig út Ferðina að miðju jarðar eftir Jules Verne. „Bókin hefur komið út á íslensku í styttri útgáfu undir titlinum Leynd- ardómar Snæfellsjökuls. Sagan seg- ir frá ferð niður í iður jarðar í gegn um gosrás Snæfellsjökuls og þeim undrum sem þar ber fyrir augu. Bókina prýða myndir úr upp- haflegu útgáfunni frá 1864.“ Í flokki barnabóka er væntanleg Í gegnum spegilinn eftir Lewis Carroll, en þar er um að ræða seinni bókina um Lísu í Undra- landi; Að læra heima án þess að gubba eftir Trevor Romain, sem felur í sér hollráð handa börnum og unglingum varðandi heimanám, og Taktu argið úr reiðinni eftir E. Verdick og M. Lisovskis sem veitir börnum og unglingum góð ráð um hvernig takast má á við reiði og skapofsaköst í daglegu lífi. Einnig er von á Þekktu litina og Teljum á fingrunum, sen hvor tveggja er fyr- ir yngstu börnin. Endurminningar og landbúnaðarsagan  Ævintýri jafnt sem blákaldur veruleikinn hjá Skruddu Ragnar Stefánsson Jules Verne Sævar Marinó Ciesielski Lewis Carroll Ólafur Haukur Símonarson Jón Garðar Snæland Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Yamaha píanó og flyglar með og án “silent” búnaðar. Áratuga góð reynsla gerir Yamaha að augljósum kosti þegar vanda skal valið. Veldu gæði, veldu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.