Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 44

Morgunblaðið - 09.10.2013, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Krafðir um endurgreiðslu launa 2. Lokkaður út af heimili sínu 3. Fannst hún geta andað á Íslandi 4. Missti hárið í ástarsorg »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Major Lazer mun koma fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík sem haldin verður 13.-15. febrúar. Major Lazer hefur leikið á mörgum stærstu og virtustu tónlist- arhátíðum heims og lék m.a. í júní sl. á Sónar í Barcelona. Áhrifa frá tónlist Jamaíku, reggíi og dancehall gætir í rafskotinni tónlist Major Lazer en hljómsveitina stofnaði bandaríski skífuþeytirinn Diplo árið 2009. Hún vakti mikla athygli fyrir fyrstu breið- skífu sína, Guns Don’t Kill People? Lazers Do, sem kom út árið 2009. Diplo hefur starfað með fjölda heims- kunnra tónlistarmanna, m.a. Björk, M.I.A. og Beyoncé. Af öðrum tónlist- armönnum sem boðað hafa komu sína á hátíðina má nefna Daphni, plötusnúðinn Kölsch og íslensku hljómsveitirnar Hjaltalín, Moses Hightower, Sykur, Sometime og Halleluwah. Sónar Reykjavík verður haldin á sex sviðum í Hörpu. Yfir 80 hljómsveitir, listamenn og plötusnúð- ar munu koma fram á hátíðinni og búist er við að um 1.500 erlendir gestir sæki hátíðina. Major Lazer leikur á Sónar Reykjavík  Kammerkór Suðurlands mun flytja tónlist eftir John Lennon og John Tavener við tendrun friðarsúlunnar í Viðey í kvöld kl. 20, m.a. Give Peace a Chance sem útsett hefur verið í stíl Taveners af Örlygi Benediktssyni tón- skáldi. Kórinn mun einnig flytja tvö ný- leg verk eftir Kjart- an Sveinsson. Yoko Ono mun tendra friðar- súluna. Kórsöngur við tendr- un friðarsúlunnar Á fimmtudag Gengur í sunnan 10-18 m/s með rigningu eða súld V-til, en hægara og bjart fyrir austan. Hlýnar talsvert í veðri. Á föstudag og laugardag Sunnan- og síðar suðaustanátt 8-15 m/s og súld með köflum sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 13 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 5-10, víða þurrt og bjart, sums staðar dálítil súld við SV- og V-ströndina síðdegis. VEÐUR „Við erum í öðru sæti í riðl- inum og erum staðráðnir í að gefa þá stöðu ekki eftir. Til þess að svo megi verða þá verðum við að vinna þá tvo leiki sem eftir eru, það er bara svoleiðis,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær eftir æf- ingu landsliðsins í Fífunni. Mik- il spenna er að byggjast upp fyrir leikinn á móti Kýp- ur á föstudaginn. »1 Verðum að vinna báða leikina „Liðið sem verður deildarmeistari þarf rétta blöndu af leikmönnum og vinnusemi við æfingar til þess að skapa það hugarfar sem skilar sér í deildarmeistaratitli,“ segir Kristinn Friðriksson í umfjöllun sinni um liðin sex sem hann telur að verði í efri helmingi Domino’s-deildar karla í vetur. »2-3 Kristinn spáir Keflavík deildarmeistaratitli Úrvalsdeild kvenna í körfubolta hefst í kvöld með heilli umferð en í gær var birt hin árlega spá þar sem Val var spáð Íslandsmeistaratitlinum. Morgunblaðið fer yfir hvernig liðin koma til leiks þennan veturinn í úr- valsdeild kvenna. Hvaða lið eru líkleg- ust til árangurs? Hvaða lið gætu komið á óvart og hvaða lið eiga lang- an vetur í vændum? »4 Stelpurnar ríða á vaðið í úrvalsdeildinni í körfu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Þetta er bara um unglinga; hvað unglingar elska, hvað unglingar hata og margt annað. Þetta er bara húmorinn okkar,“ segir Óli Gunnar Gunnarsson, leikari og leikskáld, sem í félagi við frænda sinn og vin, Arnór Björnsson, frumsýnir leik- ritið „Unglingurinn“ í Gaflaraleik- húsinu fimmtudaginn 17. október næstkomandi. Hugmyndin að verkinu kom frá leiðbeinanda á leiklistarnámskeiði sem piltarnir sóttu en í framhald- inu settust þeir við skriftir, sem tóku rúman mánuð að sögn Óla Gunnars. Leikstjóri verksins er Björk Jakobsdóttir en hún segir kveða við nýja og ferska tóna í af- greiðslu félaganna á hugarheimi unglingsins. „Það er svo oft sem við gerum unglingaleikrit sem eru skrifuð af fullorðnum með ákveðinn forvarn- artón en þarna sjáum við bara veruleikann, að vera unglingur frá sjónarhorni unglinga, og ég held að jafningjafræðslan og forvarnagildið sé svo miklu sterkara þegar það kemur einhver sem þorir að gera grín að sjálfum sér og nálgast mál- in frá þeim sjónarhóli,“ segir Björk. Töffaragríman og blæðingar Húmorinn er raunar í fyrirrúmi í verkinu, þótt þar sé komið inn á málefni eins og einelti. „Markmið okkar er að gera allt fyndið,“ segir Óli Gunnar og nefnir leikritið 39 þrep í uppsetningu Leikfélags Akureyrar sem dæmi um inn- blástur. „Þeir eru ekkert að taka sig alvarlega og gera stólpagrín að sjálfum sér,“ segir Björk um þá Óla Gunnar og Arnór, sem nota eigin nöfn í sýningunni og taka m.a. á töffaragrímunni, ung- lingum fyrir og eftir hormóna og kenningu unglingspilta um hvað gerist þegar stelpur byrja á blæð- ingum. Hugmyndarík æska Björk segir að verkið ætti að höfða til allra krakka á grunn- skólaaldri og allra þeirra sem um- gangast unglinga en það sé bæði einlægt og opinskátt. „Ég hef unnið svolítið með krökkum og unglingum og verð alltaf jafn steinhissa á því hvað þessir krakkar eru frjóir og eru að gera flotta hluti. Aldrei nokkurn tímann hefði mér dottið í hug að gera eitthvað svona. Þannig að heimur fer sannarlega ekki versn- andi, þrátt fyrir að við fullorðna fólkið höldum sífellt að allt sé á leiðinni til andskotans,“ segir hún. Ástir og hatur unglingsins  Gamansöm heimsókn í hugar- heim ungs fólks Leikritshöfundar Þeir Óli Gunnar og Arnór eru í 9. og 10. bekk en fengu hugmyndina að leikritinu á leiklistar- námskeiði. Þeir ákváðu að fylgja hugmyndinni eftir og skrifuðu „Unglinginn“ á rúmum mánuði. Óli Gunnar á ekki langt að sækja leikhúshæfileikana en hann er sonur Bjarkar og Gunnars Helgasonar leikara. Hann segist hafa fengið góðan stuðning frá mömmu og að samstarfið hafi gengið ljúflega. „Það hefur bara verið rosa flott, af því að vana- lega dettum við öll í vinnugírinn þegar við komum á sviðið, en það koma móment þar sem hún er í móðurhlutverkinu fyrir og eftir æfingar,“ segir Óli Gunnar. „Hún skammar okkur alveg eins og aðra leikara,“ bætir hann við. Björk segir strákana ótvírætt hæfileikaríka. „Þeir bara fengu þessa hugmynd að skrifa verk fyrir unglinga og við hvöttum þá til að gera það,“ segir hún. „Okkur fannst þetta frábær hugmynd og verðmætt handrit.“ Samstarfið hefur gengið vel MÆÐGIN SAMAN Í LISTSKÖPUN Björk Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.