Monitor - 28.11.2013, Blaðsíða 16
16 Monitor fimmtudagur 28. nóvember 2013 stíllinn
Hverjar eru Kristín, Sigrún og Lilja?
Við höfum allar ólíkan bakgrunn, Kristín er
sjúkraþjálfari, Sigrún fyrrum flugfreyja með
BA í sálfræði og Lilja menntuð tónlistarkona,
en við deilum sameiginlegum áhuga á
hönnun og myndlist. Með tímanum erum
við farnar að sjá hvernig ólíkir styrkleikar
okkar nýtast í fyrirtækinu og hver og ein fær
sitt hlutverk. Ein er til dæmis köldust við að
hafa samband við fólk, önnur er snjöllust í
tæknimálunum og sú þriðja hefur skipulags-
gáfuna og stórt tengslanet. Við erum sífellt að
læra eitthvað nýtt og skemmtilegt í tengslum
við fyrirtækið. Þetta er búið að vera frábært
ævintýri frá upphafi og við hlökkum til
framhaldsins.
Hvaðan kom hugmyndin að
vegglímmiðunum?
Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði þegar
við systurnar sátum saman á kaffihúsi eitt
vetrarkvöld snemma árs 2012.Við spjölluðum
um ýmislegt þetta kvöld, m.a. hvað það væri
gaman að vinna að einhverju skapandi saman
og stofna jafnvel fyrirtæki í kringum það.
Umræða um vegglímmiða dúkkaði einnig
upp þar sem tvær af okkur voru að leita sér
að slíkum límmiðum. Okkur fannst vegglím-
miðar vera snilldarlausn í rými, bæði flottir
og praktískir. Það er skemmtilegt hvernig þeir
samlagast veggnum, nánast eins og myndin
hafi verið máluð á. Þeir eiga við alls staðar
og á sumum stöðum eru þeir sérstaklega
sniðugir, t.d. í leiguíbúðum þar sem bannað er
að negla og einnig fyrir ofan rúm þar sem þeir
geta ekki dottið ofan á fólk.Við ræddum um
að það væri gaman ef úrval vegglímmiða væri
meira hér á Íslandi og þá kviknaði hugmyndin
um að við gætum sjálfar stofnað fyrirtæki
og framleitt vegglímmiða. Oft lætur maður
sig dreyma um hlutina en guggnar á því að
láta raunverulega verða af þeim. Maður er
hræddur um að manni mistakist og það er
einfaldlega þægilegra að halda sig við gömlu
rútínuna.Við systurnar könnuðumst allar
við að hafa fengið góðar hugmyndir sem við
þorðum síðan ekki að framkvæma. Í þetta
skiptið vorum við þó ákveðnar í að láta ekkert
stoppa okkur!
Hver hannar/velur límmiðana og hvaðan
fáið þið innblástur?
Þegar kom að því að velja myndefni
fannst okkur Ísland bjóða upp á óþrjótandi
uppsprettu hugmynda, svo viðkvæmt og
kraftmikið í senn. Okkur fannst að það yrði
skemmtilegt fyrir Íslendinga að prýða veggina
með einhverju sem er þeim svo kunnuglegt og
einnig erlenda ferðamenn sem gætu þannig
átt eitthvað til minningar um landið.Við vor-
um einnig mjög spenntar fyrir því að tengja
saman íslenska myndlist og vegglímmiða.
Sú leið hefur ekki verið farin áður svo við
vitum til og okkur fannst það afar áhugaverð
nýjung. Úr þessu spruttu fram tvær vörulínur:
Farsælda Frón, vegglímmiðar með áherslu á
sögu, menningu og náttúru Íslands og Kvak,
vegglímmiðar unnir af myndlistarkonunni
Guðrúnu Sigurðardóttur. Við vönduðum
mikið til verks við báðar þessar vörulínur og
erum virkilega ánægðar með afraksturinn.
Límmiðarnir eru alfarið framleiddir hér heima
á Íslandi og við skerum þá út í hágæðafilmu
sem endist lengi á veggnum. Umbúðirnar
eru sterkar og koma í veg fyrir að þeir verði
fyrir hnjaski. Hverjum límmiða fylgir síðan
fræðslutexti um myndefnið, bæði á íslensku
og ensku.
Hvar er hægt að versla vegglímmiðana?
Vegglímmiðarnir fást í nokkrum fallegum
búðum í Reykjavík og á Akureyri. Einnig
höfum við nýlega opnað okkar eigin vefversl-
un, www.vegg.is, en þar er hægt að skoða
vöruúrvalið og fá nánari upplýsingar.
Saman hafa systurnar Kristín, Sigrún og Lilja stofnað
fyrirtækið VEGG sem selur sérhannaða vegglímmiða með
íslensku ívafi. Vegglímmiðar eru nútímaleg, einföld og
falleg leið til að skreyta auða veggi og því þótti Stílnum
afar spennandi að spjalla við systurnar um þessu
sniðugu lausn fyrir heimilið.
VEGGlist
SySturnar KriStín Harðardóttir,
LiLja BjörK runóLfSdóttir og
Sigrún Þuríður runóLfSdóttir Mynd/runólfur Birgir Leifsson
drottningarfjöður
gaMLa reyKjavíK
einar Ben
afSaKið HLé
BiðuKoLLa
SKreið