Monitor - 28.11.2013, Side 18
18 Monitor fimmtudagur 28. nóvember 2013
Reglulega ríður ný bylgja eiturlyfja yfir heimsbyggðina með tilheyrandi
skaða. Fíkniefnið Mollý hefur hlotið mikla umfjöllun hérlendis upp á
síðkastið og hefur efnið valdið miklu heilsutjóni og hörmungum eins og
fjallað var um í nýlegu tölublaði Monitor. Mollý er þó ekki eina váin sem ber
að dyrum í fíkniefnaheiminum, en „Purple Drank“ eða „Fjólusaft“ hefur víða
gert vart við sig í skemmtanalífinu.
Vökvar geta líka verið eiturlyf
Því miður virðist fíkniefnaheimurinn vera í sífelldri „framþróun“ og
hugmyndir bæði fíkla og eiturlyfjasala um nýjar blöndur og efni eru nánast
óþrjótandi. Mat fólks á því hvenær um er að ræða eiturlyf og hvenær ekki
er æði misjafnt, en margir virðast tengja orðið helst við sprautunálar, pillur
eða reykingar af ýmsu tagi.
Síðustu árin hefur það hins vegar orðið ljóst að ærin ástæða er til þess
líta ýmis efni innbyrt í vökvaformi sömu augum, en fólk á það til telja slíkt
saklausara en annað enda þar „bara drykkur“ á ferð.
Nýjasta „æðið“ í fíkniefnaheiminum er einmitt innbyrt með þessum hætti,
en það gengur undir hinum ýmsu nöfnum. Þó hér sé um nýlega bylgju að
ræða er fyrirbærið þó ekki nýtt af nálinni, en það á rætur sínar að rekja allt
aftur til seinni hluta síðustu aldar.
Læknadóp úr hóstasafti
Vinsælasta heiti fyrirbærisins er „Purple Drank“ og er það samsett úr
sérstakri gerð hóstasafts og einni eða annarri gerð gos- eða ávaxtadrykkja.
Fyrirbærið varð fyrst vinsælt meðal rappara frá suðurríkjum Bandaríkjanna
og eftir að nokkur lög og plötur höfðu verið gefnar út með tilvísun í drykk-
inn fór hann sem bylgja um suðurhluta landsins. Nú virðist slík bylgja vera
að taka við sér aftur og hefur fyrirbærið komið upp víða, bæði hér á Íslandi
sem og erlendis.
Blandan hefur reynst gríðarlega hættuleg enda inniheldur hóstasaftið
sem notast er við morfínverkjalyfið kódein. Saftið er lyfsseðilskylt og er því
um svokallað læknadóp að ræða. Talað hefur verið um fyrirbærið í ýmsum
rapplögum í gegnum tíðina, en athygli vekur að margir þeirra sem röppuðu
og töluðu einna mest um efnið enduðu með því að látast langt fyrir aldur
fram vegna neyslu þess.
Tengsl við íslenskt lyfjafyrirtæki
Þrátt fyrir að hafa ekki enn tröllriðið Íslandi í sama mæli og Bandaríkj-
unum tengist drykkurinn fjólublái Íslandi þó að nokkru leyti. Þannig er
nefnilega mál með vexti að hóstasaftið sem mest er notað í blönduna er
framleitt af lyfjafyrirtækinu Actavis og er eitt slanguryrðanna yfir drykkinn
einfaldlega nafn fyrirtækisins.
Hægt er að finna myndbönd undir heitinu „Mixin‘ Actavis“ og fjölmargar
Instagram myndir bera hash-tögg eins og #actavis, #actavisonly, #acta-
vislifestyle og #actavisforsale. Hægt er að kaupa „actavis varning“ eins
og derhúfur, límmiða og bolla og er þar í öllum tilfellum átt við drykkinn.
Í ljósi þessarar þróunar áætlar fyrirtækið að taka lyfið af markaði í
Bandaríkjunum. Hér má finna ýmsar myndir, punkta og slanguryrði tengd
drykknum.
Sumir þekkja það sem Actavis, aðrir sem Sizzurp og enn aðrir sem
Purple Drank. Hér er komin nýjasta váin á eiturlyfjamarkaðnum.
Fjólusaft skekur
skemmtanalífið
TónlisTar-
heimurinn
“i sipp codeine , it makes a
southside playa lean (makes me
leeeaaaan)“
– Sippin Codeine með DJ Screw
(1998)
„smokin out, throwin up, keepin lean
up in my cup“
– Big Pimpin‘ með Jay Z (1999)
„sipping and dipping and tripping,
man i’m bout all out
sippin’ on some sizurp, sip, sippin’
on some, sip”
– „Sippin‘ on some syrup“ með Three
6 Mafia (2000)
„i got them rainbow colors in my
cup, That’s that syrup“
- Rainbow Colors með Three 6 Mafia
(2003)
“Please don’t blow my high When i’m
sippin’ that purple rain“
– úr laginu Purple Rain með Beanie
Sigel (2005)
“Purple drank n my sprite purp n my
blunt got me high as a kite i’m jus
livin my life”
– Purple Drank með Gorilla Zoe (2008)
“up in the studio me and my drank
Please let me be and let me do my
thang
Thinkin about a certain..certain
somebody
that perfect somebody sexy purple
body”
– Me and my drank með Lil Wayne
(2009)
“Purple drank, i still sip, purple weed
blunt still lit“
- Purple Swag með A$AP Rocky (2011)
„Pop a molly, smoke a blunt, drink
some actavis“
– úr laginu Randy Savage með Waka
Flocka Flame (2012)
slanguryrði
• Purple Drank
• Sizzurp
• Actavis
• Syrup
• Lean
ÖrlÖg tónlistarmanna
tengd PurPle drank:
Þann 16. nóvember árið 2000 lést
rapparinn DJ Screw. Dánarorsökin
var skráð sem ofneysla kódeins,
sem er aðaluppistaðan í „Purple
Drank“. DJ Screw var einn helsti
talsmaður drykkjarins og samdi
ýmis lög um efnið.
Þann 14. október 2007 lést rapp-
arinn Big Moe eftir að hafa fengið
hjartaáfall. Hann var rétt eins og DJ
Screw frá Texas og gaf frá sér heilu
plöturnar sem byggðust á Purple
Drank, þ.á.m. City of Syrup og Pur-
pleWorld og rappaði hann almennt
mikið um drykkinn.Talið var að
hjartaáfall hans mætti einmitt rekja
til neyslu drykkjarins.
Rapparinn Pimp C fannst látinn
á hótelherbergi í Hollywood þann
4. Desember 2007. Hann var frá
Texas og hafði líkt og ofangreindir
listamenn rappað mikið um efnið,
m.a. í lagi sínu „Pourin‘ Up“. Dauða
hans var talið að mætti rekja til
samspils undirliggjandi sjúkdóms
og neyslu Purple Drank.
Í mars síðastliðnum var rapparinn
Lil Wayne lagður inn á spítala eftir
neyslu drykkjarins. Hann fékk flog
og var talinn í lífshættu í nokkurn
tíma og þurfti m.a. að dæla upp úr
maganum á honum þar sem mikið
magn kódeins fannst. Rapparinn
slapp þó lifandi frá atvikinu. Lil
Wayne gaf frá sér lagið „Me and my
drank árið 2009“
Work #acTavis #snaPbacks
#limiTedediTion
cjbigbusiness #oc80, #roxy,
#oxy, #Pillsforsale,
#acTavis, #acTavisforsale
goddess is back
#acTavis #codeine
#PromeThazine
@Trillog #acTavisonly
black/Pink #16oz #rxxx
#ThearTofliving
#finesseTeam#smb
sTaying av8Ted on This
money makin sunday
... #av8TedlifesTyle
#leaning#leaninlikeahoe
#sTayav8Ted #28grams
#doPe geT yours noW!!!
alWays TriPPy #dabs #Wax
#acTavis #acTrighT #leanseason
#leanTeam#TexasTea #mud
#bricks #acTonly #Wfayo #PurPle
#drank #syzurP email me#sealed